Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2005
Fréttir UV
Mafíósi áfram
í gæslu
Hæstiréttur staðfesti í
gær úrskurð Héraðsdóm
Austurlands yfir lítháískum
karlmanni sem kom hingað
til lands nýverið með Nor-
rænu. Maðurinn er eftir-
lýstur fyrir peningaþvætti
og eiturlyfjasmygl í Þýska-
landi og er þess nú beðið
að framsalskrafa verði tekin
fyrir í dómi. Maðurinn er
talinn tengjast skipulagðri
glæpastarfsemi í heima-
landi sínu.
Hættur -
farinn
Jón Khútur Ásmunds-
son mun láta af störfum
sem ritstjóri Austur-
gluggans, héraðsfrétta-
blaðs á Austurlandi, í
næsta mánuði og hefur
starfið verið auglýst til
umsóknar. Jón Knútur
hefur stýrt Austurglugg-
anum firá því um mitt ár
2003. Jón Knútur sagði í
samtali við DV í gær að
enn væri óvíst hvað
hann hyggðist taka sér
fýrir hendur, en hann sé
með nokkur járn í eldin-
um. „Ég byrja á því að
fara í frí og sé svo til,“
sagði Jón Knútur, fráfar-
andi ritstjóri Austur-
gluggans.
Hverjir vinna
bresku
kosningamar?
Hannes Hólmstelnn
Glssurarson prófessor.
„Ég held að Verkamannaflokk-
urinn taki þetta núna.Ástæð-
an: Blair er pólitískur sonur
Thatcher og því má segja að
hún hafí unnið slðustu kosn-
ingar þar eins og oft áður.
Verkamannaflokkurinn hefur
verið að færa sig til hægri, og
er þaö vel enda kapitalisminn
„the only game in town,"eða
það eina sem mark er á tak-
andi."
Hann segir / Hún segir
„Ég held að Verkamannaflokk-
urinn vinni. Þó að frjálslyndir
bæti við sig skiptir það ekki
máli þar sem kosningakerfíð
er svo ósanngjarnt. Ihaldið er í
forystukreppu og það er auö-
vitað ástæðan, þessi viðvar-
andi forystukreppa. Frjálslynd
jafnaðarstefna er málið í dag."
Krlstrún Heimisdóttir
iögfræðingur.
Sóknarpresturinn Carlos Ferrer í Hafnarfirði þurfti að halda sáttafund með foreldr-
um fermingarbarna sinna eftir að hann talaði opinskátt um sjálfsfróun og bað þá
krakka sem höfðu stundað sjálfsfróun að rétta upp hönd. Síðar barði Carlos ferm-
ingardreng í höfuðið með kústskafti. Aftur var haldinn sáttafundur en faðir
drengsins segir öruggt að næsta barn hans verði ekki fermt í sömu sókn.
Carlos Ferrer sóknarprestur I
TjarnarprestakalliBað þá ferm
ingarkrakka sem stunduðu sjálfs■
fróun að rétta upp hönd.
Baroi fermingardreng
í höfuðið meö kústskafti
„Auðvitað gera þetta allir,“ er setningin sem Carlos Ferrer, sdkn-
arprestur í Hafnarfirði telur að hafi orðið honum að falli. Þessi
orð lét Carlos falla í tíma með fermingarbörnum sínum þegar
talið barst að sjálfsfróun. Carlos bað þá krakka sem stunduðu
sjálfsfrðun að rétta upp hönd en þá var foreldrum nóg boðið.
Carlos hélt fund í lok janúar með
foreldrum sem margir voru óá-
nægðir með þessar nýstárlegu
kennsluaðferðir. Sjálfur segist Car-
los hafa gert ákveðin mistök.
„Ég gerði þau mistök að byrja að
tala um sjálfsfróun eftir að orðið
„fró“ kom upp í klassískum texta.
Ég sagði: „Auðvitað gera þetta allir“
og bað þá sem stunduðu sjálfsfróun
að rétta upp hönd.“
Viðbrögð foreldra voru þess
eðlis að Carlos ákvað að halda
sáttafund.
Barði dreng með kústskafti
Sátt náðist á fundinum og öld-
urnar lægði í kringum Carlos. Stóra
sjálfsfróunarmáhð í Tjarnapresta-
kalli er þó ekki eina atvikið þar sem
gustað hefur um þennan óvenjulega
prest. Skömmu fyrir áramót missti
presturinn stjórn á skapi sínu og
lamdi fermingardreng í höfuðið
með kústskafti. Skúfi Bjarnason,
húsasmíðameistari og faðir drengs-
ins, segir Carlos hafa beðið þau
hjónin innilegrar afsökunar á fundi
með öllum foreldrum fermingarár-
gangsins.
„Við ætlum að minnsta
kosti ekki að ferma
stelpuna okkar hjá
þessum presti. Ein
ferming hjá honum
ernóg."
Ekki aftur
„Það voru nú einhver læti í
krökkunum og hann ætíaði að
krækja í son minn með kústinum,"
segir Skúh. „Það vildi þó ekki betur
til en hann hitti ekki heldur bankaði
son minn í hausinn." Skúh segir son
sinn hafa komið heim með stóra
kúlu og verið afar ósáttur með prest-
inn eins og fjölmargir foreldrar og
krakkar í fermingarárganginum.
„Við ætíum að minnsta kosti ekki að
ferma stelpuna okkar hjá þessum
presti. Ein ferming hjá honum er
nóg,“ segir Skúli.
Óhræddur prestur
Carlos Ferrer vildi ekki tjá sig um
atvikið með kústinn. Hann segist
fara óvenjulegar leiðir í fermingar-
fræðslu sinni, sé óhræddur við að
ræða við krakkana um hlutverk
þeirra sem kynverur þótt hann telji
það ekki hlutverk kirkjunnar að
stunda kynfræðslu. Aðpurður hvort
hann ætíi að breyta sínum kennslu-
háttum segist Carlos sífellt vera að
læra og þróast með hverju árinu.
„Maður er alltaf að breyta ferm-
ingarundirbúningnum og þróa sig
áfram,“ segir hann.
simon@dv.is
Víða liggja eignir fyrirtækis á söluskrá
Síminn á jörð
í Þjórsárdal
Síminn er stór landeigandi í
Þjórsárdal og mun jörðin Skriðufell
fylgja með í kaupunum þegar Sím-
inn verður seldur. Gildir þar hið
sama og hvað varðar listaverkaeign
Símans, en eins og fram hefúr kom-
ið í fréttum þá á Síminn töluvert
magn málverka eftir Rósu Ing-
ólfsdóttur fjöllistakonu auk annarra
lausamuna sem eru í geymslu víða
um höfuðborgina.
„Síminn eignaðist jörðina
Skriðufell í Þjórsárdal árið 1999,“
segir Eva Magnúsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans. „Jörðin kom í eigu
Símans í makaskiptum vegna lands
sem Síminn áttí áður að Gufuskál-
um á Snæfellsnesi, en það land er nú
orðið hluti af þjóðgarðinum Snæ-
Eva Magnúsdóttir
Slminn á 60 hektara
jörð á einum feg-
ursta stað landsins.
fellsjökli á Snæfellsnesi."
Skriðufell í Þjórsárdal er 60 hekt-
arar og á jörðinni er 140 fermetra
heilsárshús auk 40 fermetra sumar-
hús sem standa starfsmönnum Sím-
ans og gestum þeirra til boða.
„Einnig er á staðnum hlaða og
tjaldaðstaða fýrir starfsmenn og
gestí þeirra en starfsmennimir hafa
talsvert grætt upp landið þarna í
kring í góðri samvinnu við skóg-
ræktina á staðnum," segir Eva
Magnúsdóttir.
Töf á áfrýjun í Hæstarétti
Vill gæsluvarðhaldi hnekkt
„Áfrýjunin verður ekki tekin fyrir
fyrr en á morgun (í dag) en ég taldi,
og tel enn, að hún hafi ekki átt rétt á
sér,“ segir Sveinn Andri Sveinsson,
verjandi manns sem játað hefur að
hafa ráðist á Gunnlaug Geirsson
prófessor fyrir utan heimili hans síð-
astliðinn föstudag.
Amfríður Einarsdóttír kvað
upp þann úrskurð á laugar-
daginn að maðurinn skyldi
sæta mánaðar gæsluvarðhaldi
fyrir árásina, auk þess sem hann
var dæmdur til að sæta nálgun-
arbanni gagnvart prófessornum
og gert að sæta geðrannsókn.
Sveinn Andri áfrýjaði gæslu-
varðhaldsúrskurði málsins
þegar í stað og
taldi að veik rök
lægju á bak við úr-
skurð Amfríðar
enda væri skjól-
stæðingur hans
ekki þekktur af ofbeldisbrotum né af
því að brjóta skilorð; ennfremur
hefði hann samþykkt nálgunar-
bannið. Á það hefði því átt að reyna
fyrst, áður en maðurinn var sviptur
frelsi sínu og hnepptur í varðhald.
helgi@dv.is
Ekkl sáttur Sveinn Andrihef-
ur lýst þvi yfir að enginn
ástæöa sé til að hneppa skjói-
stæðing hans t gæsluvarðhald.
I í haldi Guðmundur Þórarinsson
J situr nú á Litla-Hrauni vegna árás-
j ar á prófessor. Bíöurþess að Hæsti-
J réttur taki afstöðu til áfrýjunar
|hans á gæsluvarðhaldsúrskurðinn.