Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Síða 11
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2005 7 7
Pólitískar
bjöllutegundir
Þrjár nýuppgötvaðar
bjöllutegundir hafa verið
nefndar eftir George W.
Bush (Agathidium bushi),
Dick Cheney (A. cheneyi)
og Donald Rumsfeld (A.
rumsfeldi). Ákvörðunin
hefur valdið kurr meðal
skordýrafræðinga. Þeir sem
skýrðu segjast íhaldssamir
aðdáendur stjómar Bush
en aðrir gagnrýna að
stjómmálum sé blandað
inn í skordýrafræðina. Vís-
indamenn sem uppgötva
nýjar dýra- eða plöntuteg-
undir mega gefa þeim
nöfn. Bjöllutegundir hafa
meðal annars verið nefndar
eftir Darth Vader úr
Stjörnustríði og indíána-
stelpunni Pocahontas.
Listræn
fæðing
Þýsk kona fæddi á
dögunum bam sitt fyrir
framan þrjátíu áhorf-
endur. Konan, Ramune
Gele, og Winfried Witt,
maki hennar, ákváðu að
nota fæðingu bams síns
sem innsetningu í DNA-
listagaUeríinu í Berlín.
Framkvæmdastjóri gall-
erísins sagði að parið
hefði viljað brjóta upp
viðhöfð gildi og sjá
hvernig samfélagið
höndlaði það. Læknar og
trúarleiðtogar hafa gagn-
rýnt uppákomuna harð-
lega. Kirkjuleiðtoginn
Stefan Foemer segir
fæðingu mjög persónu-
lega upplifun og hún
ætti að vera það áfram.
Páfinn.com
Roger Cadenhead, íbúi
Flórídaríkis, ætlar að spyrja
kaþólska ömmu
sína hvað hann eigi
að gera við netlénið
www.Benedict-
XVI.com. Roger
keypti lénið 1. apríl
síðastliðinn og veit
nú ekkert hvað
hann á að gera í
málinu. í viðtali við fjöl-
miðla sagði Roger að
ákvörðunin byggðist á því
að styggja ekki þann rúma
milljarð sem fylgir kaþólsku
kirkjunni. Roger keypti lén
með nöfnum páfa seinustu
þriggja alda en náði ekki að
krækja í JóhannesPálIII.com
eða J0hannesXXTV.com.
Kauðsleg
klósettferð
Lögreglumaðurinn
Craig Clancy særði óvart
mann þegar hann gekk
öma sinna á almennings-
salemi í borginni San Ant-
onio í Bandaríkjunum. I
sömu andrá og Craig girtí
niður um sig datt byssan
hans úr slíðrinu. Þegar
hann reyndi að grípa hana
greip hann óvart í gikkinn
og hleypti af tveimur skot-
um við það. önnur kúlan
fór í gegnum þunnan
vegginn og hæfði mann í
fótlegginn þar sem hann
stóð og þvoði sér um
hendumar. Innra eftirlit
lögreglunnar í Texas rann-
sakar nú málið.
Guðmundur Þórarinsson, sem nú situr í gæsluvarðhaldi fyrir að kýla prófessor,
verður líklega ákærður fyrir amfetmínframleiðslu á næstu dögum. Guðmundur og
tveir félagar hans voru gripnir við að framleiða amfetamín í Kópavogi fyrir einu
og hálfu ári. Ríkissaksóknari lét lögreglu milda ákæruna þar sem ekki væri um
stórfellt fíkniefnabrot að ræða.
PrófessorsiíDingiir í varöhaldi
ákæröur tvrlr spítlframleiöslu
Hér var framleitt amfetamín
Á efstu hæð þessa húss var fram-
leittefnisem einn sakborninga i
mdlinu sagði hafa verið allt að
nlutlu prósent hreint amfetamln.
Lögfræðideild Lögreglunnar í Reykjavík mun á næstu dögum að
öllum líkindum gefa út ákæru í eins og hálfs árs gömlu amfeta-
mínmáli. Athygli vekur að ekki er ákært fyrir stórfellt fíkniefna-
brot, þrátt fyrir að um nokkuð umfangsmikla amfetamínfram-
leiðslu hafi verið að ræða í málinu, heldur mun ákæran hljóða
upp á fíkniefnabrot. Munurinn á þessum tveimur ákærum ligg-
ur í því að fyrir stórfellt fíkniefnabrot er hægt að dæma menn í
12 ára fangelsi en í sex ár fyrir vægari ákæruna. Erfið sönnunar-
byrði sögð ástæðan.
Fflaiie&ialögreglan gerði áhlaup
á efstu hæð iðnaðarhúsnæðis á mót-
um Vesturvarar og Hafnarbrautar í
nóvember 2003. Lögreglumenn
höfðu þá haft spurnir af því að hugs-
anlega væri höndlað með fíkniefni í
íbúðinni. Það reyndist rétt - og rúm-
lega það.
Rassía með aðstoð
slökkviliðs
Þegar lögreglan sparkaði upp
hurðina að íbúðinni voru þar inni
þrír karlmenn á þrítugsaldri. Lög-
reglu brá þó enn meir í brún þegar í
ljós kom að umfangsmikil fram-
leiðsla á amfetamíni hafði verið og
var í íbúðinni. Slökkviliðsmenn
þurfti til að fjarlægja tæki, tól og efni
til eiturlyfjagerðarinnar enda geta
þau verið hættuleg.
Mennimir þrír vom handteknir
og settir í gæsluvarðhald en sleppt
stuttu síðar. Einn þeirra, Guð-
mundur Þórarinsson, situr nú í
gæsluvarðhaldi fyrir að hafa ráðist á
og ógnað Gunnlaugi Geirssyni pró-
fessor.
Spíttfíkill í 17 ár
Guðmundur sagði við DV fyrir
nokkmm mánuðum að hann hefði
sjálfur verið fíkill í amfetamín og því
hefði hann farið að fikta við gerð
þess sjálfur. Hann væri hins vegar
edrú í dag. „Minnið er svoh'tið
gloppótt," sagði Guðmundur um af-
leiðingar þess semhann sagði 17 ára
fíkn í efni sem í daglegu tali er kallað
spítt. „Meðan aðrir tóku inn tíu pró-
sent amfetamín var ég kominn upp í
þrjátíu til níutíu prósent," sagði
Guðmundur þá og af þeim orðum
Erfið sönnunarbyrði
Ekki náðist í Boga Nilsso rflds-
saksóknara í gær vegna málsins.
Samkvæmt heimildum DV
mun ástæðan fyrir því að fallið
var frá hugmyndum um að
ákæra fýrir stórfellt fíkni-
efnabrot vera sú að
Ákærður Guðmundur Þórarinsson
er einn þriggja manna sem handtek-
mn varfyrirað framleiða amfetamin I
Kópavogi fyrir einu og hálfu ári.
f,Meðan aðrir tóku inn
tíu prósent amfeta-
mín var ég kominn
upp íþrjátíu til níutíu
prósent."
má ráða að framleiðsla félaganna
hafi gefið af sér hreinara efni en al-
mennt má nálgast á „götunni."
Ekki stórfellt
Að sögn Eyjólfs Eyjólfssonar, full-
trúa hjá lögfræðideild Lögreglunnar
í Reykjavík, er rannsókn málsins nú
lokið og lfklegt að ákæra verði gefm
út á næstu dögum. Eyjólfur var ófús
til að ræða efhisatriði málsins að
öðru leyti.
DV hefur hins vegar heimildir
fyrir því að málið, sem áður hafði
verið sent rfkissaksóknara, hafi verið
sent þaðan aftur þar sem mönnum
þar á bæ hafí ekki hugnast á hvaða
grundvelli ákæra átti í málinu, en
lögregla hafði lagt til að ákært yrði
fýrir stórfellt fíkniefnabrot en það
taldi ríkissaksóknari að gæti ekki
gengið. Ákæran nú mun því hljóða
upp á fíkniefnabrot, en refsirammi í
slflcum brotum er helmingi lægri,
eða sex ár.
fordæmi eru fýrir því
í sams konar málum
að ákært sé lflct og nú
er. Enn fremur
herma heimildir
blaðsins að þótt mik-
ið magn af efnum hafi
verið í vinnslu þegar
lögregla stöðvaði
framleiðsluna sé erfitt
að færa sönnur á hversu
mikið hafi verið framleitt
af efninu, utan þess sem
fannst við húsleitina. Ekki
hefur fengist uppgefið
hversu mikið magn af tilbúnu
efni var haldlagt í aðgerð
um lögreglu.
helgi@dv.is
wm
Örvæntingarfull leit að tveimur bandarískum systkinum
Móðirin yfirheyrð með lygamæli
| Örvæntingarfullur faðir
Dennis Payne skoðar hér
örvæntingarfuiiur myndir
af börnunum sínum.
Lögregla í Georgíu-fylki
í Bandarflcjunum leitaði í
gær ákaft tveggja ungra
systkina, tveggja ára
stelpu og þriggja ára
stráks, sem hurfu af heim-
ili sínu í bandaríska bæn-
um Warrenton síðastliðið
laugardagskvöld.
John Bankhead, tals-
maður rannsóknarlög-
reglu Georgíu-fýlkis, segir
öh úrræði stofnunarinnar
notuð í leitinni, meðal
annars hitaleitartæki sem
notað er í skógum í kring-
um heimili barnanna,
Nicole og Jonah Payne.
Hlé var gert á leitinni
síðdegis á sunnudag meðan lögregla
yfirheyrði móður krakkanna. Frétta-
stofan Fox News greindi frá því að
faðir krakkanna, Dennis Payne,
hefði sagt í viðtali að
móðirin, Lottie Kain,
hefði meðal annars verið látin gang-
ast undir lygamælispróf. Lögreglan
vildi ekki staðfesta það en segist
hafa yfirheyrt nokkra með lygamæl-
inum. Hún neitar hins
vegar að upplýsa hvort for-
eldrarnir liggi undir grun
eða einhver annar, eða
hvort talið sé að krakkarn-
ir hafi sjálfir labbað út.
Forsaga málsins er að á
laugardagseftirmiðdaginn
síðasta, 18 að staðartíma,
var Lottie ásamt börnun-
um Jonah og Nicole á
heimfli þeirra í Warren-
sýslu. Lottie segist hafa
heyrt hávaða meðan hún
var inni á baðherbergi.
Þegar hún kom fram stóð
útidyrahurðin opin og
krakkarnir tveir hvergi sjáanlegir.
Lottie tilkynnti hvarfið um leið og
hún áttaði sig á því að börnin væri
hvergi að sjá. Lögregla hóf strax leit
með hjálp leitarhunda og þyrlu-
sveita.
Nicole og Jonah Engarvísbendingarliggja
fyrir um afdrifsystkinanna sem hjálpað gætu
við leitina.
Yfirvöld segja að von um að finna
krakkana á lífi fari þverrandi eftir því
sem lengra líður frá hvarfi þeirra.
Hitastigið í Warrenton fór niður fyr-
ir frostmark síðasdiðið laugaradags-
kvöld. Leit heldur þó áfram og ætíar
lögreglan sér að fara aftur yfir þau
svæði sem þegar er búið að leita á.