Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Síða 22
I
22 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRlL 2005
Sport DV
Shevchenko
sættíst víð
Ancelottí
Úkraínski framherjinn Andryi
Shevchenko heíur beðið Carlo
Ancelotti, þjálfara AC
Milan, afsökunar á ^ ■'
ifamkomu sinni á
laugardaginn þegar - \
honum var skipt út >
af íleikACMilan
og Parma.
f
s-
OPEL
Shevchenko
brást illa við
skiptingunni -i
og átti orða-
skipti við
Ancelotti, bæði
á hliðarlínunni og
síðan inni í klefa
eftir leikinn. „Ég
gerði mistök.
Þetta var rétt
ákvörðun hjá
Ancelotti og kannski þurfti ég
kjaftshögg. Mér leið bara eins og
öllum framherjum sem vilja spila
sem mest því að mér fannst ég
geta skorað fleiri mörk,“ sagði
Shevchenko. Þrátt fyrir þetta rifr-
ildi Shevchenko og Ancleotti mun
Úkraínumaðurinn byrja inná
gegn PSV í meistaradeildinni í
kvöld enda lykilmaður í Milan-
liðinu.
Cafu orðinn
þreyttur
Brasilíski bakvörðurimi Cafu,
sem er orðinn 35 ára gamall, hef-
ur viðurkennt að þreytan sé farin
að segja til sín nú þegar farið er
að síga á seinni hluta tímabilsins
hjá AC Milan. Félagið er í harðri
baráttu við Juventus um ítalska
meistaratitilinn og er í undanúr-
slitum meistaradeildarinnar. „Það
er ekki auðvelt að spila þegar
álagið er svona mikið. Það má
segja að við
spilum
baraí
stað
þess
að æfa.
Ég átti að
fá kærkom-
ið frí gegn
Parmaum
| helgina en
síðan meiddist
Jaap Stam og ég
þurfti að spila.
^ Sem betur fór
það vel, ég skor-
, - aði og við náð-
'"X um að landa
mikilvægum
sigri," sagði hinn
síimgi Cafu sem er þó farinn að
finna fyrir aldrinum.
Nesta í
leikbanni
Varnarmaðurinn sterki
Alessandro Nesta hjá AC Milan er
eini leikmaðurinn sem verður í
banni í leik AC Milan og PSV í
kvöld. Nesta fékk sitt þriðja gula
spjald í keppninni í seinni
leiknum gegn Internazioanle í
átta liða úrslitunum. Massimo
Ambrosini er eini leikmað-
.--ur AC Milan sem er á
hættusvæði fyrir leik-
inn í kvöld en hann
fer í leikbann ef
hann fær gult
spjald í leiknum.
ítalska liðið AC Milan og nýkrýndir hollenskir meistarar PSV Eindhoven mætast í kvölí :
arinnar. Það sem er merkilegt við þessa viðureign er að samlandar verja mörk þessara
deildinni síðan 2. nóvember á síð-
asta ári og hefur haldið hreinu í 520
mínútur og eru þar með taldar mín-
úturnar 72 í leiknum gegn Intern-
azionale í átta liða úrslitum 12. apríl
en sá leikur var flautaður af eftir að
Dida hafði fengið flugeld í öxlina.
Kvöldið eftir var Gomes í sviðs-
ljósinu en hann átti stærstan þátt í
„Þegar ég var neyddur
til að standa í markinu
fannst mér það ekki
gaman en ég virtist
hafa hæfileika og nú
myndi ég ekki skipta á
þeirri stöðu fyrir alla
heimsins peninga. Ég
vil vinna allt í Evrópu
og ég vona að ég verði
einhvern tíma jafn
góður og Dida."
Henrelho Gomes
Aldur: 24 ára
Hæð: 1,91 m
Þyngd: 82 kg
Ald
Hæ
Þyn
Hver man ekki eftir Valdir Perez, markverði brasilíska landsliðs-
ins á HM á Spáni árið 1982. Brasilíumenn voru með stórkostlegt
lið en þeirra akkilesarhæll var Perez karlinn. Hann sór sig ætt
annarra brasilískra markvarða sem hefur löngum stundum stað-
ið öðrum brasilískum leikmönnum langt að baki. Það tók ekki
betra við árið 1986 þegar Carlos stóð á milli stanganna. Segja má
að þessir tveir markverðir hafi átt stærstan þátt í því að Brasilíu-
menn urðu ekki heimsmeistarar í þessum keppnum jafnvel þótt
flestir hafi verið sammála um að þeir hafi verið með besta liðið,
bæði á Spáni 1982 og í Mexíkó 1986. Nú er hins vegar öldin önn-
ur því að Brasilíumenn eiga tvo markverði sem hafa slegið í gegn
í meistaradeildinni í vetur.
Heurelho Gomes Fagnar hér eftir að hafa
varið vitaspyrnu gegn Lyon Iátta liða
úrslitunum.
því að PSV tókst að slá út franska lið-
ið Lyon eftir vítaspymukeppni í átta
liða úrslitum meistaradefldarinnar.
Gomes varði víti frá bæði Mich-
ael Essien og Eric Abidal og
gerði það að verkum að PSV
komst í fyrsta sinn í sautján
ár í undanúrslit þessarar
keppni.
Ólíkir karakterar
Þessi frábæra ffammistaða
þeirra hefur fært mönnum heim
Það er ljóst að brasilískur mark-
vörður mun standa á milli stang-
anna hjá öðru hvoru liðinu í úrslita-
leik meistaradeildar Evrópu í Istan-
búl 25. maí næstkomandi. Fyrir land
sem hefur hingað til verið jafn þekkt
fyrir að flytja út góða knattspymu-
menn og ljúffengar kaffibaunir em
þetta stórfféttir því brasilískir mark-
verðir hafa oftar
en ekki haft á
sér vafasam-
an stimpil
sem veikasti
hlekkur
brasilíska landsliðsins.
Tveir markverðir, Dida hjá AC
Milan og Heurelho Gomes hjá PSV
Eindhoven, hafa þó unnið duglega
að því í vetur að afmá þennan
stimpil með frábærri frammistöðu
bæði heima fyrir í deildunum og í
sjálffi meistaradeildinni. Þessir tveir
markverðir munu berjast í undanúr-
slitum meistciradeildarinnar í kvöld
og í næstu viku um það hvor þeirra
fari til Istanbúl.
Hetjudáðir í meistaradeild
Dida og Gomes hafa báðir stolið
Ágúst Jóhannsson, fyrrverandi þjálfari Gróttu/KR, snýr aftur á Hlíðarenda
Þjálfar kvennalið Vals næstu þrjú árin
Ágúst Jóhannsson, sem hefur
þjálfað karlalið Gróttu/BCR í hand-
boltanum undanfarin þrjú ár, mun
stýra kvennaliði Vals á komandi
tímabili. Ágúst.skrifaði undir þriggja
ára samning þess efnis í gær og sagði
í samtali við DV að hann væri mjög
sáttur við niðurstöðu mála.
„Mér stóð til boða að fara til Dan-
merkur en eftir að hafa skoðað mál-
in með fjölskyldunni þá gekk það
ekki. Ég ákvað því að taka tilboðinu
um að þjálfa kvennalið Vals. Ég
hefði getað farið að þjálfa karlalið en
það hefði orðið að vera spennandi.
Það er í sjálfu sér lítill munur á
kvenna- og karlahandboltanum á ís-
landi og því lít ég ekki á þetta sem
skref niður á við fyrir mig.“
Ágúst þjálfaði í fjögur ár hjá Val
fyrir nokkrum árum, þar af eitt ár
sem þjálfari meistaraflokks kvenna,
og hann sagðist hafa fundist hann
skulda félaginu að koma aftur og
klára verkið sem hann byrjaði. „Ég
hætti frekar óvænt með meistara-
flokkinn á sfnum tíma þegar mér var
boðin staða þjálfara kvennalands-
liðsins. Mér fannst ég ganga frá hálf-
kláruðu verki og það er því gaman
að koma til baka.
Mér leið afskaplega vel í Val á sín-
um tíma og ég þekki félagið og fólk-
ið sem starfar í kringum liðið. Það
spillir heldur ekki fyrir að það er fullt
af efnilegum stelpum hjá félaginu
sem eru tilbúnar til að leggja mikið á
sig. Ég hef trú á því að kvennadeild-
in verði mjög sterk á næsta ári eftir
deyfð í vetur. Það verða tíu Uð í
deildinni og spiluð tvöföld umferð.
Ég á von á spennandi keppni á milli
Hauka, ÍBV, Stjörnunnar, FH og
okkar," sagði Ágúst.
„Það spillir held-
ur ekki fyrir að
það er fullt af
efnilegum
stelpum hjá
félaginu sem
eru tilbúnar
til að leggja
mikið á
sig."
Ágúst Jóhanns-
son Mun þjálfa
kvennalið
Vals I hand-
boltanum
næstu þrjú
árin og segir
fulltafefni-
legum
stelpum vera
I félaginu sem
séutilbúnarað
leggja mikiö á sig.