Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Blaðsíða 37
DV Lífið
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2005 37
Endurtekið etni frá
Wnody Allen
Melinda and Melmda
Sýnd i Smárabíói. Leikstjóri:
Woody Allen. Aðalhlut-
verk: Will Ferrell,
Radha Mitchell,
Stephanie Roth
Haberle.
★★
Sigurjón for 1 bio
Woody Allen er New York-búi á
áttræðisaldri sem sefur hjá stjúpdótt-
ur sinni. Hann hefur þann hæfileika
að geta samið skemmtileg „sitkom" í
bíómyndaformi sem ansi margir hafa
missldlið sem snilldarverk, út af
rassvasaheimspekinni, tilvistar-
kreppunni og bókmenntatilvísunun-
um sem í þessum myndum má finna.
Nær allar myndir Allens gerast
ofarlega á Manhattan, þar sem aðal-
persónurnar búa í huggulegum
íbúðum og undir er spiluð Ragtime-
tónlist eða heimilislegur djass. Oft
leikur hann sjálfur í myndunum og
er þá alltaf sama týpan, taugaveikl-
aður, óðamála maður í tilvistar-
kreppu. í seinni tíð hefur hann látið
sér yngri menn túlka þetta hlutverk.
Nú síðast meistara Will Ferrell í
Melinda and Melinda.
í myndinni er sögð saga Melindu,
konu í mikilli tilvistarkreppu og sag-
an er sögð ffá tveimur hliðum. Hinni
tragísku og hinni kómísku. Eða
þannig er það sett upp í spjalli nokk-
urra vina á ítölskum veitingastað.
Radha Mitchell leikur Melindu í
báðum sögunum en mismunandi
leikarar fara með hin hlutverkin. Ég
átti nú frekar erfitt með að sjá til-
ganginn með þessari skiptingu, þar
sem báðar útgáfurnar voru frekar
svipaðar. Það var ekki auðvelt að sjá
hvor útgáfan átti að vera sú tragíska
og hver sú kómíska. Það var svona
dæmigert Woody Allen-yfirbragð á
þeim báðum.
Saga Melindu er svo alveg laus
við að vera áhugaverð. Kona gift
tannlækni sem þráir meiri spennu í
sitt líf og fer að daðra við ítalskan
fola. Við það fer tannsinn frá henni.
og tekur bömin. ítalski folinn er
síðan ekki lengi að láta sig hverfa.
Sögumar báðar segja okkur svo frá
afdrifum hennar eftir að hún kemur
til New York og er á barmi sjálfs-
morðs. Hvernig gengur henni að
finna ástina á ný?
Það má segja að það skemmtileg-
asta við myndina sé Will Ferrell sem
túlkar Woody Allen-hlutverkið á
skemmtilegan hátt. Hann túlkar
þarna atvinnulausan leikara, sem
verður ástfanginn af Melindu. í
meðfömm Ferrells öðlast þessi
gamalkunna týpa nýja vídd, verður
einhvern veginn stærri, klunnalegri
og fyndnari. Minnir helst á Þorstein
Guðmundsson.
Það er hálfátakanlegt að sjá
hvemig Allen er farinn að endurtaka
sjálfan sig. Þama má sjá augljósar
tilvísanir í myndir eins og Hannah
and her Sisters, Manhattan og ekki
síst Play it Again Sam. í heildina get
ég ekki sagt að þetta sé merkileg
mynd og ljóst að ef Woody Allen
hafði eitthvað hér í denn þá er það
löngu horfið.
Siguijón Kjartansson
Portishead með
nýja píötu
Breska hljómsveitin Portis-
head er að klára þriðju plötuna
sína um þessar mundir og er
áætlað að hún komi út síðar á
þessu ári. Sveitin sló í gegn
1994 með plötunni Dummy,
sem var hluti af trip-hopbylgj-
unni sem kennd er viö borgina
Bristol. Næsta plata kom þrem
ámm síðar og þótti ekki bæta
miklu við þótt hún væri ágæt.
Síðan þá hefur lítið spurst til
Portishead nema hvað söng-
konan Beth Gibbons gaf út
sólóplötu 2002 með Paul Webb
úr hljómsveitinni Talk Talk.
Hinn meölimur Portishead er
Geoff Barrow og hann segir að
það hafi aldrei hvarflað að þeim
að hætta með bandið. „Þó að
við höfum ekki gert plötu í átta
ár höfum við alltaf hist reglu-
lega og búið til nýja
tónlist," sagði hann
nýlega við BBC
en vildi að
öðru leyti lít-
ið tjá sig um
nýja efiiiö.
Spennandi
verður að
sjá hvort
Portishead
nær aftur
sömu hæðum
með nýju plötunni.
Stór nöfn á
Lollapalooza
Tilkynnt hafa verið nokkur
helstu nöfnin sem koma fram á
Lollapalooza-tónlistarhátíðinni
sem haidin er í Chicago 23.-24.
júlí í sumar. Meðal þekktustu
nafnanna em
Pixies, Weez-
er, Dino-
saur Jr.,
theKill-
ers,
Death
Cab for
Cutie, Liz
Phair, The
Arcade Fire og
Billy Idol. Sú var tíðin að Lolla-
palooza var aðal-tónlistarvið-
burðurinn í Bandaríkjunum og
fluttist hátíðin á milli borga um
allt landið. Nú er þetta orðin
venjuleg hátíð yfir eina helgi og
nokkuð sterk sem slík. önnur
nöfti sem staðfest hafa komu
sfna em Dashboard Confess-
ional, the Walkmen, Cake,
Widespread Panic,
Kasabian,
Kaiser
Chiefs,
M83, The
Black
Keys,
Dandy
Warhols,
Brian Jones-
town Mass-
acre, The Bravery,
Blonde Redhead, Digable
Planets, VHS or Beta, Tegan &
Sera, Louis XTV, Ambulance
LTD og the Changes.
Snorri Ásmundsson endurgerir Citizen Kane
Snorri Ásmunds-
son Vinnuraöend-
uraerð á Citfren
„Myndin verður tekin
upp á íslandi en ég er ekki
ennþá búinn að ákveða
hvort ég ætla að hafa þessa
mynd á íslensku eða ensku. Það er
ekki búið að fastmóta þetta allt sam-
an en ég hef verið að sýna mörgum
framleiðendum þessa hugmynd og
það hafa allir verið mjög áhugasam-
ir um þetta verkefni. Eg er líka búinn
að sækja um styrki víða og á eftir að
fá svar við því. Ég verð samt að fá að
gera þessa mynd á minn eigin hátt
en ekki einhverja Hollywood-út-
gáfu.“
Orson Welles kom til mín í draumi
Snorri Ásmundsson, myndlistar-
maður og fyrrverandi forsetaefni, er
um þessar mundir að vinna að end-
urgerð bandarískrar kvikmyndar og
það engrar annarrar en Citizen Kane
eftir Orson Welles.
Orson Welles leikstýrði og lék
aðalhlutverkið í óskarsverðlauna-
myndinni Citizen Kane sem kom út
árið 1941 og varð samstundis að
stórstjörnu í Hollywood. „Þegar
myndin kom út varð Orson að hálf-
gerðu óskabami í Hollywood," segir
Snorri. „Þessi mynd hefur verið
minn heimur. Hún hafði mjög djúp
áhrif á mig þegar ég sá hana fyrst
enda hefur hún alltaf verið talin
besta kvikmynd sem gerð hefur ver-
ið og ég held að það sé kominn tími
á að endurgera þessa mynd."
Ástæða þess að Snorri Ásmunds-
son er að snúa sér að kvikmynda-
gerð er ekki leiðindi eða gróðaleit
heldur varð hann fyrir reynslu sem
hafði djúpstæð áhrif á hann.
„Orson Welles kom til mín í
draumi. Hann kom til mín og bað
mig að gera þessa mynd," segir
Snorri sem er að vinna í handritinu
þessa dagana.