Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2005, Page 39
DV Síðast en ekki síst
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2005 39
Lýðræði í löndum múslíma
Okkur er sagt að lýðræðishug-
myndir hafi vaxandi byr í Arabaríkj-
um og öðrum löndum múslíma. Það
er rétt að meira er um lýðræði talað í
þessum ríkjum en lengst af fyrr og
Bandaríkjamenn segjast allir af vilja
gerðir að ýta undir lýðræðisþróun.
Þetta mál er þó allt hið snúnasta - og
ekki bara vegna þess að múslímar
vantreysta Bush forseta og hans liði.
Eru kosningar háskalegar?
Sprengjur halda áfram að springa
í írak - og þau ótíðindi eru í sjálfu sér
ekki aðeins tengd bandarísku her-
námi landsins heldur og því að þar í
landi var reynt að eftia til kosninga.
Sé það gert í sæmilegri alvöru fer
ekki hjá því að arabískir Súnnítar,
sem áður voru í forystuhlutverki í
einsflokksríki Husseins, komist í
minnihluta og óttist þar með um
sinn hag í ríki þar sem þeir sem áður
sættu misrétti, Sjítar og Kúrdar, geta
nú tekið stjórnartauma í sínar hend-
ur. Þetta ástand er að nokkru svipað
því sem skapaðist í gömlu Júgó-
slavíu þegar hvert sambandsríki
fékk sjálfstæði: f hverju hinna nýju
ríkja (nema Slóveníu) voru stórir
þjóðernisminnihlutar sem óttuðust
um sinn hag gagnvart meirihluta-
þjóð sem nú gæti gengið á hag
þeirra í krafti nýrra valdahlutfalla.
Kjósa menn ranga flokka?
Það er ágætt að hvetja til lýðræð-
is, í Arabalöndum sem annars stað-
ar. En menn verða þá að vera við því
búnir að „rangir aðifar“ sigri í lýð-
ræðislegum kosningum. Munum
hvað gerðist fyrir 14 árum þegar al-
mennar kosningar fóru fram í Alsír.
Róttækur íslamskur flokkur, FIS,
vann sigur og átti að taka við völd-
um. En þá greip herinn í taumana og
lýsti lýðræðislega kosna íslamska
stjórn úrelt fýrirbæri sem menn
gætu ekki sætt sig við. Og á Vestur-
löndum létu menn þetta gott heita,
því heldur vildu þeir fullkomlega
ólýðræðislega herforingjastjóm en
rétt kjörna íslamska stjórn. í fram-
haldi af þessu kom svo til borgara-
styrjaldar sem hefur kostað um
hundrað og fimmtíu þúsundir
manna lífið - en einhverra hluta
vegna hafa fjölmiðlar heimsins fjall-
að minna um það stríð en flest önn-
ur. Enda vitað að þótt bæði íslamist-
ar og herinn séu sekir um mikil
manndráp hefur herinn líklega verið
enn drýgri í blóðsúthellingum.
Fleiri lönd
Svipað ástand gæti komið upp í
fleiri löndum. Haft er eftir Alistair
Crooke, áður ráðgjafa Evrópusam-
flrni Bergmann
segiraðeftilvillsé
„íslamskt tímabir
óhjákvæmilegtávegferð
Arabalanda á leið til
lýðræðis.
Kiallari
bandsins í málefnum Austurlanda
nær, að ef efht væri til raunverulega
fijálsra kosninga mundu íslamskir
flokkar að líkindum sigra í Egypta-
landi, Jórdan og í héruðum Palest-
ínumanna. Hamas (þau samtök sem
ólíklegust eru til samninga við
ísralsmenn) gætu meira að segja
fengið hreinan meirihluta í Palest-
ínu.
í Jórdaníu stjórnar valdamikill
konungur, sem velur sér sjálfur for-
sætisráðherra og aðra ráðherra, sem
og öldungadeild en leyfir þegnum
sínum að kjósa til neðri deildar
þings sem hefur mjög takmörkuð
völd. Lýðræðislegar kosningar í því
landi gætu sópað þessu kerfi burt og
leitt til valda flokk sem mundi styðja
Hamas í Palestfnu og uppreisnar-
menn súnníta í írak.
Til eru borgaralega þenkjandi
menn og hreyfingar í þessum lönd-
Þaðerágættað
hvetja til lýðræðis, í
Arabalöndum sem
annars staðar. En
menn verða þá að
vera við því búnir að
„rangir aðilar" sigri í
lýðræðislegum kosn-
ingum.
um, sem tala máli lýðræðis og
blanda trúmálum lítt í sína pólitík.
Einn slíkur heitir Ajman Núr, foringi
svonefnds Ghad-flokks í Egypta-
landi. Hann hefur verið í andófi við
stjómvöld og setið í fangelsi og gæti
vel hlotið þó nokkuð fylgi í kosning-
um. En hitt er lfldegra að meirihluti
Egypta - fátækir og guðhræddir
Súnnítar, mundu kjósa Múslíma-
bræðralagið, sem er hin íslamska
rödd í egypskum stjórnmálum.
Vinsældir íslamista
Hvers vegna eru einmitt íslamsk-
ar hreyfingar líklegar til að sigra í
lýðræðislegum kosningum? Vegna
þess að stjórnir þessara landa, hvort
sem þær hafa verið hallar undir
Bandaríkin, eða haldið fram
herskárri arabískri þjóðernisstefnu,
einatt andvestrænni (eins og ráða-
menn í Sýrlandi), hafa lengi einokað
hið pólitíska vald. Þær hafa skert
svo mannréttindi, og þar með mál-
frelsi, að þeir kúguðu og fátæku áttu
sér engan vettvang nema trúna til
að finna þörf sinni fyrir andóf far-
veg. íslamskar hreyfingar hafa kom-
ið í staðinn fyrir verkalýðshreyfing-
ar eða vinstri flokka sem hafa ekki
fengið neitt svigrúm í hálfgerðum
eða algjörum lögregluríkjum. Þær
hafa tekið að sér ýmislega félagslega
aðstoð við fátæka meðan spilltar
klflcur nálægt valdhöfum hafa
stungið því fé í vasann sem til slíkra
hluta var ætlað. Vinsældir Hamas-
hreyfingarinnar í Palestínu tengjast
ekki því einu að hún sé herskáasti
andstæðingur ísraelsmanna
Hamasmenn hófu feril sinn með því
að stofna til fátækrahjálpar á Gasa-
ströndinni og dugðu þeim verst
settu mun betur en makráðir og
einatt spilltir skjólstæðingar
Arafats.
Ef til vill verða menn að búa sig
undir það, að „íslamskt tímabil“ sé
óhjákvæmilegur áfangi á lýðræðis-
þróun í heimi múslíma? Eins þótt
slíku stjórnarfari fylgi miklar tak-
markanir á frelsi einstaklinga - svo
sem sannaðist þegar klerkar tóku
við stjórn írans af einvöldum keis-
ara.
• ReynirTraustason
stjömublaðamaður
situr nú á Flateyri við
ritun bókar sinnar
sem fjallar um dópið
og undirheimana á ís-
landi. Vinnutitillinn er
dramatískur: „Fmm-
skógur dauðans" - lykilsaga, byggir á
raunverulegum atburðum. Fram hefur
komið að verið er að vinna heimildar-
mynd um heimildarvinnu Reynis í
tengslum við ritun bókarmnar. Sam-
hliða öllu þessu ritstýrir Reynir Mann-
lífi og í næsta tölublaði, sem kemur út
í kringum 10. maí, er stórt viðtal við
Jónínu Benediktsdóttir. Er þungamiðja
þess viðtals á mannlegu nótunum en
þar mun Jónína ræða óvenju opinská
um ástina og Jóhannes í Bónus...
• Staða Þorgils Óttars Mathiesen for-
stjóra hjá Sjóvá er óljós eftir að Kari
Wemersson og systkini hans keyptu 67
prósent í fyrirtækinu af íslandsbanka
og gáfu fyrir 17,5 millj-
arða. Þorgils Óttar
kemm inn í fyrirtækið
úr íslandsbanka sem á
nú 33 prósent í trygg-
ingarfyrirtækinu. For-
stjórinn og fyrrverandi
handboltakappinn er
þó hvergi deigur og er nú sem stendm
að reisa sér glæsilegan sumarbústað á
bökkum Þingvallavatns. Verkið bauð
hann út og ætlar að ganga inn í bú-
staðinn fullbúinn snemmsumars...
• MMlhópurhefmþegarlýstyfir
stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu
Gfsladóttur og skrifað klásúlm á vef-
síðu hennar sem lýsa því hversu mikil
yfirbmðamanneskja þar fer. Sumum
finnst þetta reyndar nokkuð í and-
stöðumerkingu við
leiðtogadýrkun sem
ISG hefrn talað mjög
gegn. En allt um það;
skáldlegustu tilþrifin
sýnir Jón Bjömsson
og þykir mörgum nóg
um. Jón vann með
Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur í fimm ár og segist ekki
hafa lent í öðm eins. Þá skrifar Jón:
„Hún er sprettharðari en hrygna, víð-
sýnni en haföm og þolnari en hrein-
dýr.“...
morgun
Sólin mun aðeins láta Ijós
sitt skfna með köflum á
morgun ef marka má
veöurspána. Hlýjast verður
á suðvesturhorninu
enda spáð ^
laufléttri
norðanátt og ekki
væri vitlaust að
taka út hjóliðx
og hjóla f '
vinnuna. —
Nokkur
vindur
Nokkur
vindur
Nokkur
vindur
Nokkur
vindur
Strekkingur
• Nú er það að koma á daginn að
heilaspunamenn Halldórs Asgríms-
sonar, þríeykið Bjöm Ingi Hrafnsson,
Pétur Gunnarsson og Steingrímur S.
Ólafsson vom ekki höfundar þess að
eðlilegt væri að þingmenn legðu fram
yfirlit yfir skuldir og eignir. Nei, Hall-
dór mun hafa verið þessarar skoðunar
árum saman og heilaspunamennimir
þrír því í hlutverki
leikstjóra í hinni
glæsilega hönnuðu
atburðarás. Altalað er
innan flokksins að
þessi hafi verið
draumur Halldórs
ámm saman og tekið
til marks um hina
duldu stjómvisku foringjans...
• Annað það sem mikið er rætt innan
Framsóknarflokksins er arftaki Hall-
dórs Ásgrímssonar en
Ámi Magnússon hef-
ur ekki þótt standa
undirvæntingum
þrátt fyrir að hafa hyl-
djúpa röddina og út-
litið með sér. Em þeir
sem um véla innan
flokksins jafnvel á því
að Páll bróðir hans sé meira foringja-
efni. En raddimar snúast ekki um
hvort bræður berjist heldur em menn
innan flokksins helst á því að mistök
hafi verið gerð þegar Siv Friðleifsdóttir
var sett út úr ríkisstjóminni því hún,
eftir á að hyggja, sé helst til þess fallin
að breikka ásýnd flokksins...