Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2005, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2005, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 21. MAÍ2005 Fréttir DV Edda er hvers manns hugljúfi. Hún þykir mjög skemmtileg, greind, hjartahlý og samviskusöm. Þó segja sumir að þessi góðmennska komi niður d henni sjálfri. Hún vill ekki segja nei. „Hún Edda mágkonaí Hún er nú nánast galla- laus, konan. Hún er af- skaplega samviskusöm. Hún er lika einstaklega natin í öllu sem hún gerir, góður og traustur vinur, hjartahlý og slðast en ekki síst er hún alveg stórskemmtileg. Hvað gallana varðar þá dettur mér Ihugað samviskusemin geti stundum verið henni þung I taumi. Ég þori nú reyndar ekki að fullyrða umþetta." Ingveldur G. Ólafsdóttlr, söng- og dag- skrárgerðarkona. „Edda erhvers manns hugljúfi. Hún er umfram allt bráðgreind og skemmtileg, mjög góð vinkona og alveg yndis- leg manneskja. Hennar helsti galli er sá að hún getur átt mjög erfitt með að segja nei." Hrafnhildur Theodórsdóttir, fram- kvæmdastjóri Félags (slenkra leikara. „Helstu kostir hennar Eddu systur minnar eru hvað hún er ofboðslega skemmtileg. Hún er góð- ur vinur, ótrúlega sterk en samt svo mjúk. Hún á það þó til að vera helst til tillits- söm og það getur bitnaö á henni sjálfri." Helga Þórarinsdóttir víóluleikarl. íslendingurinn Páll Ásgeir Davíðsson er í broddi fylkingar í baráttunni gegn hryðjuverkumönnum í heiminum. Hann starfar fyrir Sameinuðu þjóðirnar við að kortleggja starfsemi al-Kaída og talíbana. Páll Ásgeir Davíðsson Ásamt móður sinni, Dóru Pálsdóttur, í fundarsal Sam- einuðu þjóðanna. Páll kort- leggur al-Kaída og tallbana fyrir Sameinuðu þjóðirnar. -- Edda Þórarinsdóttir er fædd driö 1945. Hún er leik- og söngkona og hefur unniö ýmis nefndarstörf. Hún gerÖi einnig garöinn frægan d sínum tíma með Þremur d palli. Edda er I sambúð. Leynilöggu- leikurvið Kleifarvatn „Já, þetta er kannski eins og að leita að Lflci í hrauninu. Nema að það er aðeins skemmtilegri fundur sem menn mega eiga von á,“ segir Rakel Pálsdóttir hjá Eddu útgáfu. Forlagið hefur gefið út metsölubók Arnaldar Indriðasonar, Kleifarvatn, í kilju en bókin seldist í um 22 þúsundum eintaka um síðustu jól. Eddan ætlar í tilefni þess að fela 50 eintök af bókinni einmitt við Kleifarvatn. „Þetta er svona smá leynilögguleikur. Menn mega koma uppúr klukkan tólf á sunnudaginn og leita bókarinnar," segir Rakel. Og sá á fund sem finnur. íslenski lögfræðingurinn Páll Ásgeir Davíðsson í New York er einn af átta manna teymi Sameinuðu þjóðanna sem starfar við að kortleggja starfsemi talíbana og al-Kaída. Páll Ásgeir var venjulegur Vestur- bæingur en er nú hluti af teymi sem S.Þ. settu saman til að kortleggja starfsemi Osamas bin Laden og fé- laga hans. „Þetta er hópur átta sérfræðinga, sem vinnur fyrir öryggisráðið," segir Páll Ásgeir og útskýrir verkefiú hóps- ins: „Við fáum upplýsingar frá stjóm- völdum og öryggisþjónustum • alls staðar að úr heiminum og reynum að meta hættuna sem stafar af al-Kaída og talíbönum hverju sinni. Upplýs- ingarnar notum við svo til að vinna skýrslur sem við skilum til öryggis- ráðsins. Við reynum að svara spumingum eins og hvemig þessir hópar flytja vopn, mannafla og fjármagn. Reyn- um að skilja hvemig hægt er að beita þvingunaraðgerðum til að berjast gegn hryðjuverkamönnunum. Við erum ekki í því að eltast við hryðju- verkamenn úti um allan heim. Reynum fr ekar að sldlja hvemig sam- tökin virka," segir hann. Mannslíkaminn og lögin Leið Páls Ásgeirs inn í baráttuna gegn hryðjuverkum var ekki bein. Hann er lögfræðimenntaður á ís- landi. Þannig fór að hann starfaði um skeið á lögmannsstofu í Reykjavík. Síðan þá hefur hann mestmegnis unnið erlendis við ýmis verkefrú. Meðal annars hjá Evrópuráðinu í Strassborg, hjá ÖSE í Kosovo og á veg- um Sameinuðu þjóðanna í Kongó. Hann segist alltaf hafa langað til að starfa á erlendum vettvangi en ekki búist við að lögff æðin gæfi tæki- færi á því. „Góður vinur minn á há- skólaárunum lærði læknisfræði. Ég átti alltaf von á að hann færi að starfa erlendis en að ég ætti eftir að vera heima á íslandi. Mannslíkaminn er sá sami alls staðar en lögin ekki," seg- ir Páll Ásgeir, sem hefur nú helgað sig baráttunni gegn algerri lögleysu hinnar myrðandi stéttar: hryðju- verkamönnum. Starfið skilar árangri Og Páll segir ríkisstjómir ná ár- angri í baráttiuini þó að enn sé vissu- lega langt í land. „í fyrsta lagi hafa hundmð milljóna dollara sem nota átti til að fjármagna hryðjuverk verið fryst. í öðru lagi hefur meðvitund aukist um möguleika og getu hryðju- verkahópa. Og í þriðja lagi em ríkis- stjómir í auknum mæli famar að vinna gegn hryðjuverkahættunni á heimsgrundvelÚ en ekki staðbundið eins og svo algengt er. Nútímahryðjuverkastarfsemi er vandamál sem á sér ekki landamæri og þjóðir heimsins verða að skilja það þegar barist er gegn henni. Við getum ekki alltaf verið hver í okkar homi að kljást við þessar hættur. Hugmyndir hryðjuverkamanna verða til dæmis oft til á einu svæði en verða síðan að veruleika einhvers staðar allt annars staðar." Rekur sýningarrými í New York Þrátt fyrir tímaffeka baráttu gegn hryðjuverkum gefur Páll Ásgeir, 35 ára, sér tíma til að sinna áhugamál- um sínum. Páll og sambýliskona hans, Oddný Eir Ævarsdóttir rithöf- undur, em miklir listunnendur. Þau halda til dæmis úti sýningarrými í ris- íbúð sinni þar sem listamenn alls staðar að geta sýnt verk sín. Páll og Oddný una lífinu vel í New York en Páll segir þó hugann stefna heim þegar ævintýrum þeirra í hinum stóra heimi ljúki. ,Ætli ég endi ekki heima í Vestur- bænum." andri@dv.is Vestmannaeyingar fylktust á fund Norðmaður Árna Johnsen kynnti ódýr göng á norsku Vestmannaeyingar fylktust á stóran fund með verkefrússtjóran- um Sven Erik Kristiansen frá norska verktakafyrirtækinu NCC sem kynnti eyjaskeggjum ódýr göng til lands á miðvikudagskvöld. Fæstir fundarmanna skildu vel hvað fór fram, enda hélt Sven Erik erindi sitt á norsku. Sven Erik Kristiansen kom eins og þruma úr heiðskím lofti inn í um- ræðu um jarðgöng til Vestmanna- eyja í vetur þegar Árni Johnsen, fyrr- verandi þingmaður, tilkynnti að mun ódýrara væri að bora göng til lands en hingað til hefði verið talið. Sagðist Árni hafa undir höndum kostnaðaráætlun frá NCC upp á 14 til 16 milljarða króna. Síðar kom í ljós að Ámi hafði hitt Sven Erik stutt- lega á Kastmpflugvelli og forsvars- menn NCC harðneituðu að hafa gert neina kostnaðaráætlun fyrir Vest- mannaeyjagöng. En á fundinum var sjálfur Sven Erik mættur til Eyja og kom Eyja- mönnum spánskt fýrir sjónir, stráks- legur, íklæddur stuttermabol og mælandi á norsku. Sven boðaði að á næstu tíu árum myndi tækniþróun gera mögulegt að bora helmingi lengri jarðgöng en nú. Hann talaði almennt um þróun jarðgangagerðar í Evrópu og tók sér- stakt mið af íslenskum aðstæðum. „Við héldum fundinn til að kynna málin, taka allar efasemdir út og fræða fólk," segir Árni Johnsen, sem einnig hélt erindi á fundinum. Árni segist vongóður um að jarðgöng til Eyja fái brautargengi. „Það er tekið vel í þetta hjá yfirvöldum. Það sem er sérstakt við þetta er að pening- arnir eru nánast til, vegna þess að það er gert ráð fyrir ferjunni Herjólfi áfram í vegaáætíun, en hún kostar 500 milljónir á ári." Gert er ráð fyrir að seinni hluta sumars komi ffarn niðurstöður úr bergmálsmælingum á jarðganga- svæðinu. Sven Erik Kristiansen Holdgervingurvonar Vestmannaeyinga um jarðgöng til lands ræddi um göngin við heimamenn í fýrrakvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.