Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2005, Side 32
32 LAUGARDAGUR 21.MAÍ2005
Helgarblað DV
WmM
'
■ ■;
Fædd: Reykjavík 13.júní 1974.
Hæð: 166 sm. .
Foreldrar: Björn Friðbjörnsson og Aldís Elíasdóttir
Systkini: Hrafnhildur söngkona, Guðfinna dansari
og Birna dansari.
Maki: Rúnar Freyr Gíslason, leikari.
Börn:Gísli Björn 2 og 1/2 árs.
Tekjur samkvæmt síðasta tekjublaði Frjalsrar
verslunar: 172.000 krónur á mánuði.
Bifreið: Splunkunýr Ford Escape-jepplingur.
Áhugamál: Söngur, dans, leiklist,
kvikmyndir, leikhúsferðir, ferðalög
og góður matur.
Uppáhaldssöngvari:
George Michael. Bt É
Eftirlætisleikari: 4 m'
Rúnar Freyr og Gary Oldman. Æj \\ ” |
Uppáhalds hljómsveit: _ V
Abba og U2. ■HH
Besti rithöfundurinn:
William Shakespeare.
Eftirlætisstaður: Heima í gaRag
faðmi fjölskyldunnar.
Uppáhaldsmatur:Humar.
Happatala
mmbb
í
• \
Selma Björnsdóttir hefur verið ein
skærasta stjarna íslands síðustu árin.
Hún vakti snemma athygli fyrir vask-
lega framgöngu á sviði dans-, söng- og
leiklistarinnar og eftir að hún tók
þátt í Eurovision árið 1999 varð þjóð-
in yfir sig ástfangin af henni. Hún
hefur lengi verið með leikaranum
Rúnari Frey Gíslasyni og saman eign-
uðust þau soninn Gísla Björn árið
2002. í kjölfarið dró Selma sig aðeins
út úr sviðsljósinu en síðustu misserin
hefur hún verið meira áberandi. Hún
tók þátt í forkeppni Eurovision á
fimmtudaginn og þótt ekki hafi geng-
ið sem skyldi á Selma framtíðina fyr-
ir sér. Nú getur hún horft fram á veg-
inn og hvílt sig eftir hamaganginn í
kringum Eurovision og gert meira af
því sem henni finnst skemmtilegast,
að eyða tíma í faðmi fjölskyldunnar.
■-«/'■■■ i
„Eg var mjög litið stressuð og
leið bara rosavel þegar ég
var að fara inn í salinn.
Reyndar kom örlítill fiðringur
þegar maður gekk upp tröpp-
urnar á sviðinu. En um leið og
ég kom inn í salinn voru mót-
tökurnar mjög hlýjar. Fólk
gargaði og klappaði: „Selma,
Selma!" Þetta voru ekki Is-
lendingar. Þá hvarf allt stress
rétt áður en lagið byrjaði.
Það var alveg frábært."