Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2005, Blaðsíða 14
74 MÁNUDAGUR 30. MAl2005
Fréttir DV
Fyrsta heim-
sókn páfans
Hinn nýkjörni páfi Bene-
dikt 16. fór í sína fyrstu op-
inberu heimsókn nú á dög-
unum. Hann fylgdi í fótspor
Jóhannesar Páls 2. og fór til
Bari á Ítalíu en heimsóknin
stóð aðeins í þrjár klukku-
stundir. Um 200 þúsund
manns mættu í messuhans
í borginni. Næsta heimsókn
páfans, og jafnframt sú
fyrsta utanlands, er til
Þýskalands, heimlands
páfans en heimsóknin mun
fara fram í ágúst.
Gríðarleg
kjörsókn
Gríðarleg kjörsókn er
búin að vera í Frakklandi
en þar er verið að kjósa um
nýja stjómarskrá Evrópu-
sambandsins. Niðurstaðan
í kosningtmum í Frakklandi
er talin vera afar mikilvæg
vegna þess að önnur Evr-
ópulönd munu fara að
þeirra for-
dæmi. Um
66% Frakka
hafa þegar
kosið en það
ermesta
kjörsókn síð-
an kosið var
tun Maast-
richt-sátt-
málann árið
1992, þá
kusu 70%
þjóðarinnar
en Frakkar
em rúmlega 42 milljónir.
Fayaz skotinn
til bana
Mawlavi Abdullah Fayaz
sem hefur lengi verið taliim
einn áhrifamesti klerkur
Afganistan var skotinn til
bana nýlega.
Hann var að
ganga út af
skrifstofu sinni
þegar menn á
mótorhjólum
keyrðu upp að
honum og
skutu hann ít-
rekað. Mawlavi
var nýbúinn að halda ræðu
gegn talíbönum og vakti það
gríðarlega reiði meðal
þeirra, en hann sagði að
talíbanar myrtu saklaust
fólk. Mawlavi lést á Ieiðinni
á sjúkrahús.
Þorsti endaði
umsátur
Um 56 klukkustunda
umsátri lauk þegar Carl
Roland, sem grunaður var
um morð, þáði vatnssopa
hjá lögreglunni sem not-
færði sér þá tækifær-
ið og stuðaði hann
með rafbyssu.
Þannig var mál með
vexti að Roland klifr-
aði uppí 18 hæða
krana og hótaði að drepa
sig. Seinna kom í ljós að
hann var eftirlýstur í Flór-
ída-fylki fýrir morðið á fyrr-
verandi kæmstu sinni.
Upphófst umsátrið sem
stóð í 56 klukkustundir eða
næstum tvo og hálfan sól-
arhring.
m
Rakel Pálsdóttir er bundin viö hjólastól en á sér þann draum að komast til Dan-
merkur til að fagna 25 ára afmæli sínu. En það er dýrt og Rakel er nú að safna til
fararinnar. Siggi Stormur sá bréf frá henni þar sem hún segir frá aðstæðum sín-
um, hann brást skjótt við og kom bréfinu á DV - sem þótti vitanlega vera á ferð
hið merkilegasta mál.
Siggi Stormur og
Rakel Siggi á sjálfur son
sem þjáist af samskonar
sjúkdómi og Rakei. Hann
leggur henni nú lið við aö
safna sér fyrir drauma-
ferðinni til Danmerkur en
Rakel elskar Danmörku
og allt sem henni tengist
- nema Jóakim prins.
■
Z i
Siggi stormup hjalpar
iatlaðri stúlkn til Oanmerkur
„Mér finnst bara eins og það sé eitthvað að í þessu þjóðfélagi
þegar stúlka í þessari stöðu þarf að leita sér ásjár með þessum
hætti," segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingurinn sem er
betur þekktur sem Siggi Stormur. Hann vísar til þess að nánast
með tíu mínútna millibili hefji sig til lofts breiðþota með heilu
farmana af fslendingum sem eru að fara til útlanda.
„En i dag þoli ég ekkiJóakim vegna þess að mér
fínnst hann hafa komið illa fram við Alexöndru
og ég hefmisst álitið mitt á honum, til dæmis ias
ég um daginnað hann hefði verið á ofsahraða
með litlu strákana sína tvo í aftursætinu."
Sigga barst nýverið eftir króka-
leiðum tölvupóstur frá stúlku sem
heitir Rakel Pálsdóttir þar sem segir
að hún sé fötluð af heilalömun;
cerebral palsy (C.P.) sem lýsir sér
þannig að ákveðnar stöðvar í heilan-
um virka ekki eins og þær eiga að
gera og því er Rakel hreyfihömluð og
bundin við hjólastól.
í bréfinu segir jafnframt: „Þrátt
fyrir mína föúun þá langar mig að
lifa lífinu eins og annað ungt fólk. Ég
verð 25 ára í sumar og því dreymir
mig um að gera eitthvað af því til-
efni. Það er einlæg ósk mín að kom-
ast í utanlandsferð, sérstaklega lang-
ar mig að fara til Danmerkur."
Rakel segist ekki vita hvernig bréf-
ið barst Sigga en hún sendi það á
Stöð 2. Siggi kom því svo á framfæri
við DV- enda er það blaðið sem læt-
ur sig þá varða sem eiga við erfiðar
aðstæður að etja. Máhð er Sigga skylt.
„Ég á son sem þjáist af sama sjúk-
dómi en hann er vægari en hjá
Rakel. Sonur minn er 16 ára og heit-
ir Þórir Snær Sigurðarson," segir
Siggi og þekkir því vel til vandans.
Mikill kostnaður við að ferð-
ast
Rakel er stúlka sem sannarlega
lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna
og lætur fötlun sína ekki koma í veg
fýrir það að lifa lífinu lifandi. Hún
hefur farið þrisvar til Danmerkur
áður. „Ég hef farið oftar til útlanda
með fjölskyldunni minni en þá
þurfti ég ekki að leggja neitt sérstak-
lega út. En núna þarf ég að leggja út
fýrir tryggingu fyrir starfsfólk, sem
ég veit ekki hvað er há, leigja auka
hótelherbergi fyrir starfsfólkið til
þess að sofa í og mat fyrir starfsfólk-
ið og venjulega þyrfti ég líka að
leggja út fýrir flugmiðum. Svona er
þetta ekki í Danmörku. Ég held að
danska kerfið komi eitthvað á móti
föduðum einstaklingum sem vilja
ferðast."
Kvíðir fyrir að skrifa ferða-
söguna
Rakel segist hafa verið svo lúmsk
að senda bréfið á Flugleiðir og
Iceland Express sem bauðst til þess
að gefa henni flugmiða fyrir þrjá.
„Eina sem þeir fara fram á í staðinn
er að ég þarf að skrifa ferðasögu sem
ég kvíði alveg rosalega fyrir. Ég er
ekki góð í að koma einhverju frá mér
á skriflegu formi. Einnig á ég í smá
vandræðum með röddina þegar ég
er að tala við ókunnuga í síma. Þetta
eru bara hlutir sem tengjast fötlun
minni."
Rakel elskar að ferðast, þó ekki á
íslandi. Hana langar til Ástrah'u,
Kýpur og Möltu í framtíðinni en
Danmörk er draumaparadísin og
þctr vildi Rakel búa. Flún viU helst
ferðast með mömmu sinni. „En í
ffamtíðinni vil ég halda áfram að
ferðast ein vegna þess að ég vil vera
sjálfstæð. Ég elska mömmu en hún
er búin að gera sitt fyrir mig og að-
stoða mig við það sem ég get ekki
(t.d. ýmsar daglegar þarfir) í 21 ár.
Þegar ég var 21 árs flutti ég hingað í
sjálfstæða búsetu til þess að öðlast
sjálfstæði þó að mamma hjálpi mér
aðeins við skattaskýrsluna og fleira."
Danir góðir og skilningsríkir
Rakel er búin að finna sig í Dan-
mörku og liggur við að hún tali eins
og Dani. „Svo vel að Danir eru oft
hissa þegar þeir komast að því að ég
er útlendingur. Það fatta þeir bara
þegar að ég finn ekki orð á dönsku
og þarf að leita til enskunnar, en það
gerist sjaldan. Ég vil þess vegna fara
tíl Danmerkur vegna þess að ég hef
áhuga á að ná ennþá betra valdi á
málinu og vegna þess að fólkið er
svo hlýtt þama. Til dæmis þegar ég
fór út til Danmerkur í fyrra var ég
nýbúin að missa afa minn og þeir
Danir sem ég hittí voru mjög góðir
og skilningsríkir og föðmuðu mig að
sér ef að ég brotnaði saman."
Þolir ekki Jóakim
Danirnir eru augljóslega Rakel að
skapi og hún hefur mikinn áhuga á
dönsku konungsfjölskyldunni. „Þeg-
ar Jóakim og Alexandra giftust byrj-
aði ég að vera „fan“ Danmerkur með
öllu því tilheyrandi, það var 1995 að
mig minnir. En í dag þoli ég ekki
Jóakim vegna þess að mér finnst
hann hafa komið illa fram við Al-
exöndru og ég hef misst áhtið mitt á
honum, til dæmis las ég um daginn
að hann hefði verið á ofsahraða með
htíu strákana sína tvo í aftursætinu,
en ekki misst prófið vegna þess að
hann er með friðhelgi sem prins. En
ég dýrka eldri bróður hans og Mary
prinsessu. Þau eru svo sæt saman og
þegar þau kynntust vissi hún ekki
þjóðfélagsstöðu hans, ekki fyrr en
eftir um hálftíma þegar því var hvísl-
að að henni að hún væri að tala við
prins og ekki bara prins heldur krón-
prins, verðandi kóng.“
Engin hjálp frá Félagsmála-
stofnun
í bréfinu sem Rakel hefur sent
þar sem hún leitar eftír hjálp segir að
enga hjálp sé að fá frá Félagsmála-
stofnun og að söfiiunin gangi hægt.
Hún veit ekki hvert hún á að snúa
sér. „Því langar mig að leita til ykkar
og kanna hvort þið getíð séð ykkur
fært að veita mér fjárhagsaðstoð svo
draumur minn getí ræst,“ segir
Rakel í bréfinu. Reikningur Rakelar
er nr. 1153-05-300046 og kennitala
er 1106805629 ef einhver vill leggja
inn á reikninginn.