Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2005, Page 23
DV Heilsan
MÁNUDAGUR 30. MAÍ2005 23
Vilja taka oddinn af eldhúshnífunum
Breskir lækna vilja að langir og odd-
hvassir eldhúshnífar verði bannaðir
og er ástæðan sú að árlega látast
fjölmargirafvöldum þeirra. Ofbeld-
isglæpum fer fjölgandi og má rekja
helming dauðsfalla afvöldum
stungusára til eldhúshnífa.
Læknarnir bera rök fyrir því að vegna
þess hve aðgengi að slfkum hnífum er
auðvelt sé líklegra að fólk grípi til þeirra.
Rætt var við tíu matreiðslumenn um
notagildi slikra hnífa í eldhúsum og varð
niðurstaöan sú að þeir væru síður en
svo nauðsynlegir þar sem styttri hnífar
gerðu sama gagn en orsökuðu mun
minni skaða ef notaðir væru við of-
I beldisverk.
Hvað gerir þú þér til heilsubótar?
■
H
íiiU
Ég eignaðist dóttur fyrir 15 mánuð-
um, það má segja að ég fái
heilmikla hreyfingu við það
f að elta hana. Mataræði mitt
er ekkert sérstakt, bara allur
almennur matur," segir
Bryndís Bolla textílhönnuð-
ur. „Þar sem ég bý í Teigun-
um fer ég oft í göngu í Laugardalnum
og stundum í sund. Við Herdís dóttir
mín förum oft í göngutúra í dalnum
og njótum útivistarinnar og náttúr-
unnar. Það er mjög heppilegt að hafa
útivistarsvæði nálægt heimili sínu.
Mín heilsubót felst í göngu og sundi."
I London maí 2004
I Londin kynntist Edda
kenningum Davids Heber
um hvernig setja á saman
fæðuna.
Kílóin Ijúka
Edda Sigurjóns-
dóttir er fædd 1956.
Hún er menntaður
ljósmyndari og
starfaði við það i 18
ár. í dag vinnur
hún við útkeyrslu
og ber út blöð í
afleysingum. Hún
er einnig dreifing-
araðili fyrir Her-
balife og hefur gert
það síðastliðin 7 ár.
„Ég fór að borða meira prótein
og breyta mataræðinu eftir að ég fór
á fyrirlestur í London vorið 2004“
segir Edda, en þar kynntist hún
bókinni LA shape diet eftir dr. Dav-
id Heber, sem er einn fremsti megr-
unarlæknirinn í Bandaríkjunum.
„Mér leist vel á hugmyndir höfund-
arins um það hvernig setja á saman
fæðuna“ segir hún en Edda var á
árum áður í lyfjatækninámi og hef-
ur tekið endurmenntunarnámskeið
í sambandi við lyf og fæðubótarefni
og hefur alltaf haft mikinn áhuga á
heilsu. Eda segir það líklegast stafa
af því að foreldrar hennar voru bæði
miklir sjúklingar og hún vill ekki
lenda í því sama.
Fljótlegt að skella í sig próteini
Fyrir London-ferðina hafði Edda
ekki hugsað neitt sérstaklega mikið
um mataræðið en eftir að heim var
komið fór hún að auka prótein-
neysluna og passaði sig á að borða
ekki minna en 100 grömm af
próteinum á dag. „Mér flnnst bara
mjög þægilegt og fljótlegt að geta
skellt í mig próteinsjeik eða prótein-
stykki því ég er mikið á ferðinni".
Edda borðar tvo shapeworks-hrist-
inga á dag frá Herbalife og í þá bæt-
ir hún við frosnum berjum og öðr-
um ávöxtum. Auk þess borðar hún
eina próteinríka máltíð með miklu
grænmeti úr öllum litaflokkum og
þá helst fisk eða kjúkling og þá oft-
ast í hádeginu. Milli mála borðar
hún próteinstykki. Aðspurð segist
Edda ekki narta mikið á kvöldin en
hún drekki mikið grænt te og vatn.
Brúnkukremin slá í gegn
Brúnn án áhættu
Flest brúnkukrem innihalda efnið
dihydroxyacetone (DHA) og virkni
þeirra felst í því að þau ganga í efna-
samband við ákveðnar aminósýrur
sem er að finna íríkum mæli íefstu
lögum húðarinnar. Við efnahvarfjð
myndast brún litarefni sem kölluð hafa
verið melanoidin en þau mynda ekki
vörn gegn sólargeislum eins og nátt-
úrulegur brúnn litur. Liturinn dofnar
síðan og hverfur á 5-7 dögum. Einnig
er áberandi að brúni liturinn sem
myndast af brúnkukremum er venju-
lega dekkri þar sem húðin er þykk, til
dæmis á lófum, iljum, hnjám og oln-
bogum. Þess vegna er oftast mælt með
því að þessi svæði, auk hársins, séu var-
in þegar brúnkukrem er notað.
Aðferðir í boði
Ýmsar aðferðir eru notað-
ar til þess að koma efninu
á húðina, til dæmis hanskar,
klútar og sprey. Margir telja
að besta ráðið til að varna því
að húðin verði flekkótt sé að bera
á sig kornkrem í sturtu eða baði til að
losa húðina við dauðar húðfrumur.
Menn greinir á hvort betra sé að bera á
sig rakakrem áður eða eftir að brúnku-
efnið er borið á og fólk verður bara að
þreifa sig áfram. Margar snyrtistofur
bjóða upp á þjónustu þarsem efnin
eru borin á húðina afsnyrtifræðingi
eða þeim er úðað á húðinoj svokölluð-
um brúnkuklefa eftiraö ákveðin svæði
hafa verið hulin.
mikilvægur val-
kostur
Lyfjaeftirlitið í
Bandaríkjun-
umhefurgef-
iðútalmenn-
arráðlegging-
artilþessað
draga úr líkum
á því að DHA
komistinnílík-
amann. Ráðlagt erað
halda niðri í sér andanum
og hðfa augun lokuð á meðan úðunin
fer fram. Einnig ættu ófrískar konur og
einstaklingar með astma eða ofnæmi
að sneiða hjá slíkri úðun.
Lítið hefur verið gert afrannsóknum til
að meta öryggi DHA. Enn sem komið er
virðist þó ekkert benda til þess að efnið
sé skaðlegt og er það því mikilvægur
valkosturfyrirþá sem vilja hafa brúnan
húðlit.
Tröllatrú á próteinum
Edda hefur hreyft sig mikið
síðastliðin 10 ár en það var ekki fyrr
en hún fór að auka próteinneysluna
að kílóin fóru að fjúka. „Ég hef
tröllatrú á próteinum sem sést best
á því að öll fjölkyldan er á
próteinum og 21 árs gamall sonur
minn hefur þyngt sig um sjö kíló á
einum mánuði en hann var alltof
grannur fyrir.“ Eirný Halla, 8 ára
dóttir Eddu, drekkur líka Herbalife-
hristinga vegna þess að það hjálpar
henni að halda exemi í skefjum.
Edda segist einnig taka vítamín og
treíjar frá Herbalife, andoxunarefni,
kalk og omega 3. „Þegar konur eru
komnar á breytingaraldurinn verða
þær að hugsa vel um heilsuna og
ekki síst mataræðið", segir Edda en
hún lítur alls ekki út fyrir að vera 49
ára.
lOrang-
hugmyndir
í. Það er hættulegt að synda
eftir að hafa borðað.
Nei, það versta sem getur gerst er
stingur ísíðuna og þá fer maður
bara upp úr vatninu.
2. Gulrætur gera nætursjón betri.
Það er ekki rétt, en þær erugóðar
fyrir sjónina yfír
höfuö
3. Þú getur
fengið sýfilis
afklósetset-
um
Nei,það versta
sem getur
gersteraðþú
færði í maga-
nn, en þú
þarft að hafa
fyrir því.
4. Mannslíkaminn er 98% vatn.
Nei, það er nær 70%
5. Sjálfsfróun orsakar blindu og
getuleysi.
Ertu að grínast?
6. Konur hafa hærri sársauka-
þröskuld en menn.
Það virðist einungis eiga við um síð-
ustu þrjá mánuði meðgöngu.
7. Þú færð gyllinæð afþvi að sitja
ásteypu
Ekki satt.
8. Baðherbergið erskítugasta
herbergið
Nei, eld-
húsið á
þann
heiður,
sérstak-
lega
vaskur-
9. Við notúm bara 10% heilans.
Bull og vitleysa. Þessi trú kom í
kjölfar rannsóknar á fólki með
sjaldfgæfan heilaskjúkdóm
10. Lífrænt ræktaðar afurðir
valda ekki ofnæmi.
Það er ekki rétt, flest fæðuofnæmi,
eða um 90%, orsakast afslíkri fæðu.
'í%'
NUunttmji'
''21 Rós
Kr. 1.991’