Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2005, Side 33
Ljósm: Stefán Karlsson
DV Menning
MÁNUDAGUR 30. MAÍ2005 33
Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri á Akureyri Langt ersiöan rekstur Leikfélagsins
á Akureyri hefurgengið svona vel.
Magnús Geir skilar góðum vetri hjá
Leikhúsinu á Akureyri. Ef allt er talið
hafa aldrei fleiri gestir farið um salar-
kynni Leikfélagsins í Brekkunni
Halii réttur fyrir noröan
Nú líður að lokum þessa leikárs
hjá Leikfélagi Akureyrar og hefur
aðsókn verið ein sú mesta í sögu
leikhússins. Sýningar hafa al-
mennt gengið vel og fengið já-
kvæða gagnrýni. Leikhúsið skilar
nokkrúm rekstrarafgangi, sem
nýttur er til að greiöa niður skuldir
fýrri ára.
Aðsókn
Áhorfendur að leiksýningum á
Akureyri leikárið 2004 til 2005 eru
16.737. Til viðbótar bætast um
1.390 gestir á aðra viðburði í leik-
húsinu og 6.482 áhorfendur að
þremur leiksýningum sem voru
einnig sýndar í Reykjavík í sam-
starfi við aðra. Samtals eru gestir
að viðburðum á vegum LA á leikár-
inu því 24.609.
Samstarfssýningar verða taldar
með í áhorfendatölum samstarfs-
aðila LA og er því vafasamt að telja
tekjur og áhorfendur þeirra með í
niðurstöðu vetrarins en áðsókn er
vel yfir meðaltali síðustu ára.
Söngleikir trekkja en kosta
Stjóm leikfélagsins leitaði sam-
starfs við Sinfóníu Norðurlands
um söngleikinn Óliver sem flestir
gestir sóttu: 7000 gestir sáu sýning-
una og komust færri að en vildu.
Þá var setti nýtt og áður óþekkt
trukk í árskortasölu og með vönd-
uðum kynningum og fjölbreytí-
legri dagskrá varð metsala á
áskriftarkortum en þau voru seld
til 960 leikhúsgesta.
Þriðja besta ár í aðsókn
Ef aðeins er litið til hefðbund-
inna áhorfenda á Akureyri er að-
sóknin sú þriðja mesta frá upphafi
starfsemi LA, þvíleikárið 1983-1984
vom gestir 19.378 en þá var My Fair
Lady á íjölum samkomuhússins, og
leikárið 1987-1988’vomálrorfendur
18.166. Ef bætt er við aðsókn á sam-
starfsverk í Reykjavík er ljóst að
aldrei hafa fieiri gestir sótt viðburði
leikhússins.
Sýningarnar
Sýningar LA í vetur hafa al-
mennt hlotið jákvæða umsögn
gagnrýnenda, en eftirtalin verk
vom frumsýnd: Svik, Ausa og Stól-
arnir, Óliver og Pakkið á móti.
Pakkið verður á fjölunum á ný
næsta haust, enda þurftu margir
frá að hverfa í vor. Til viðbótar
bættust þrjár gestasýningar; Brim,
Hárið og Græna landið. Þrjár sýn-
ingar vom sýndar í Reykjavík í
samstarfi við aðra: Eldað með Elvis
(í samstarfi við Eilíf), Svik (í sam-
starfi við Sögn, LAogÁ senunni) og
Ausa og Stólarnir (í samstarfi við
LR).
Rekstur
Sú stefnubreyting sem Magnús
Geir innleiddi í rekstri hússins þar
sem horfið var frá árssamningum
en þess í stað ráðið í verkefni hefur
því tekist vel. Þótt leikárinu ljúki
ekki fyrr en 1. ágúst, er ljóst að það
verður rekið með nokkrum rekstr-
arafgangi, sem nýtmr er til að
greiða niður skuldir fyrri ára. Nið-
urgreiðsla þeirra hófst í upphafi
síðasta árs og gengur vel. Um
helmingur skuldarinnar hefur ver-
ið greiddur niður og stefnt er að
því að leikhúsið verði orðið skuld-
laust í lok ársins 2006. Hlutfall
sjálfsaflafjár hefur ekki verið hærra
á síðastliðnum árum.
Svavar fór á 9000 danskar
Á vefnum Lauritz.com em oft ís-
lensk verk í boði eins og DV hefúr
marginnis greint ffá. Þann 27. maí
lauk tilboðsfresti í tvö íslensk verk
sem þar höfðu verið til sölu um
nokkurt skeið: Eldra verkið var mál-
verk frá 1980 eftir Svavar Guðna-
son, en eins og kunnugt er var mik-
ið af verkum hans til álita í stóra
málverkafölsunarmálinu sem svo
var kallað. Þá var einnig á vefnum
til sölu olíumálverk eftir Helga Þor-
gils Friðjónsson. Báðar myndirnar
seldust.
Málverk Helga fór á 7 þúsund
danskar en var metin á metin á 10
þúsund. Svavar var metinn á 8 þús-
und danskar en var sleginn á 9 þús-
und.
Lauritz.com er stærsti upp-
boðsvefur á Norðurlöndum með
listmuni og safriaravörur. Hann er
flokkaður í margar deildir og afar
vel uppbyggður. Uppboðsvörur em
■i' ;■ írfíiíH
hjá aðilum víða um Norðurlönd en
á kaupverð leggst ailtaf 18% upp-
boðsgjald. Stundum er lagt á 1%
gjald í höfundarréttarsjóð. Kaup-
andi greiðir fyrir flutning og loks
verður að greiða virðisaukaskatt af
vömnni komi hún til landsins.
Um þessar mundir eru uppákomur leikrænar svo margar
aö það er hætta á því aö stórgóðar sýningar fari fram hjá
leikhúsáhugafólki.
Finnskar stdlkur kryíja til
mergjar hlutverk stdlkuunar
Ég elska þig, ég elska þig ekki.
Með Baldursbrá úr bréfi er þessi
romsa síendurtekin á rússnesku og
allir skilja.
Á fimmtudag og föstudag var á
fjölum Nýja sviðs Borgarleikhússins
sýning sem vel hefði verið þess virði
að senda alla leiklistarnema og unga
leiklistarneytendur á. Reyndar var
hún ekkert bundin við ungt fólk, þótt
leikaranir væm ungir, en það var
nýlunda að sjá svo vel tæknilega út-
færð atriði bæði í dans og leik. Nokkr-
ar norrænar leikkonur hafa tekið sig
saman og stofriað stórgóðan leikhóp
og sýninguna sem hér var á ferðinni
nefna þær The Subfrau Acts.
Kveðjuhóf fyrir frú
Það er kannski verið að kveðja
frúna? Alla vega var eitt mjög gott
innlegg þar sem nokkrar staðlaðar
kvenpersónur fengu tækifæri tfl að
kveðja frúna.
Þó talað sé bæði á ensku og
sænsku er þetta fyrst og fremst
sungið dansverk, þar sem flnnski
danshöfundurinn Arja TiUi á heiður-
inn af- fyrri hlutanum og rússneski
danshöfundurinn Sasha Pepeyaev
þeim síðari.
Óbeislað hugmyndaflug
Fjórar stúlkur kryfla tíl mergjar
hlutverk stúlkunnar, konunnar og
ímynd kvenpersónunar í leikbók-
menntum og lífinu í heild sinni. TU
þess nota þær dans, söng og óbeisl-
að hugmyndaflug.
Gestaleikur í Borgarleikhúsinu á
The Subfrau Acts var sannarlega
heUdstæð skemmtun fyrir bæði
augu og eyru. Ungar norrænar
leikkonur Joanna Wingren, Ida
Löken, Sonja Ahlfors og Lotten Roos
hafa undir leiðsögn frábærra dans-
höfunda sett saman eins konar kab-
arett þar sem leikhústáknin fá að
geysast um og skipta um hlutverk
eins og í spreUflörugum leik bama.
Björgun með einni góðri kerl-
ingu
Fyrri hlutinn gerist í anda plötu-
snúðs. Við kynnumst plötusnúð og
veruleika hans og persónur em
kynntar til leiks gegnum tóna og orð
sem flæða fram úr undravélum
plötusnúðsins.
Það þekkja það nú aUir hvað það
getur verið fyndið að sjá karla leika
konur. Hversu oft hefur Randver
ekki bjargað þreyttum Spaugstofu-
húmor með einni góðri kerlingu?
Hitt er svo annað mál að það er og
verður aUtaf minna fyndið og erfið-
ara fyrir konur að leika karla þannig
að skemmtUegt sé. Nú loksins tókst
það.
Hér í þessum vUlta leik undir
tryUingslegum hljómum úr mörgum
tegundum tónlistar þar sem ýmist
var verið að skírskota tU textans eða
taktsins þutu um sviðið ungir menn
leiknir af konum og það var unun á
að horfa. Einkum var það ein þeirra
Joanna Wingren sem svo lítU og mjó
tók sér bólfestu í öUum þeim asna-
legu drengjum og vandræðalegu
ungum mönnum sem við þekkjum
úr okkar eigin U'fi.
Ráðist á rússnesku hefðina
Leikurinn var tvískiptur. Fyrir hlé
fengum við að fylgjast með aUs kyns
dansatriðum tengdum vonsviknum
ungum stúlkum og kUsjukenndum
mönnum. Dansinn var þar aUsráð-
andi og eins frábær undirleikur
þeirra sjálfra á ýmis hljóðfæri.
í seinni hlutanum var svo ráðist á
hefðina í rússneska leikhúsinu. Bitr-
The Subfrau Acts
Danshöfundar: Arja Tiiliog
Sasha Pepelyaev. Búningar:
Marja Uusitalo, Charlotta Lund-
gren og Sonja Ericsson. Hljóð:
Pietu Pietianen. Framleiðsla:
Belinda Tirkonen. Leikarar:Lott-
en Roos, Sonja Ahlfors, Ida
Löken, Joanna Wingren.
Leiklist
ar og markeraðar yfirstéttarstúlkur
sem bíða eftir vonbiðlum æla úr sér
voninni í eiginlegri merkingu og
dansa um í ffaukukjólum hreinna
meyja í langþráðri bið eftir að kom-
ast í hjónaband.
Umbreytingarrdans
Hér er það einn frægasti dans-
höfundur rússa um þessar mundir,
Sasha Pepelyaev sem sjálfur hefur
komið nálægt flestum greinum leik-
hússins, sem semur þann umbreyt-
ingardans sem límir saman stutt
leikatriði í einskonar paródíu á
Þremur systrum.
Þær vinna með umbúðapappír
þannig að brúðarkjóll breytist í
hænsnabúning og blómin sem
brúðurin er skreytt með eru búin til
á staðnum. Eins er það eftirminni-
legt hvernig þær léku sér með skæri
sem. breyttust í vopn, hljóðfæri í
gleraugu og ýmis önnur tól úr okkar
daglega k'fi.
Ambögur á ensku
Subfrau er hópur sem stofnaður
var í Helsinki árið 2001. Leikhópur-
inn samanstendur af stúlkum sem
aliar hafa hlotið menntun sína við
Ríkisleiklistarskólann í Helsinki.
Hér voru þær aðeins flórar, en oft
eru þær fleiri og meðal þeirra er
María Pálsdóttir sem nú var aðeins
áhorfandi og líklega gestgjafi.
Þetta var sannarlega vel til fúndið
að koma hingað með norrænar
flinkar leikkonur í einkar skemmti-
legu showi. Einu ambögur sýningar-
innar má segja að hafi verið að það
var greinilegt að löngum talatriðum
hafði verið snarað á ensku, líklega til
þess að áhorfendur hér skildu inni-
haldið, en það var greinilegt að
leikkonurnar sjálfar skildu varla þau
orð sem þær voru að fara með.
Hefði verið betra að tala bara
sænsku eins og í öðrtim styttri atrið-
um. Það er vonandi að kröfurnar
hafi ekki komið héðan, því það er jú
alveg nauðsynlegt fyrir okkur að
heyra norræn mál og það var ekkert
í þessu sem hefði verið of flókið fyrir
sæmilega upplýst eyru að skilja.
Stútfullt af smáatriðum
Fyrri hlutann sömdu stúlkurnar
sjálfar en höfúndur seinni hlutans er
Danil Kharms. Sýningin var stútfull
af smáatriðum sem vöktu kenndir,
tilfinningar og hláturgusur vegna
þess að áhorfendur þekktu svo
dæmalaust vel bæði týpurnar og
það sem verið var að flalla um.
Leiðinlega konan sem var að
doktorera í einhvers konar handa-
hófsheimspeki fékk lengri umræðu-
tíma hjá sjónvarpskonunni heldur
en raðhússfrúin sem var að lifna við
eða unga suður-ameríkanska konan
sem var svo ljómandi ánægð með
lífið sitt.
Hér var á ferðinni mjög skemmti-
legur leikhópur sem svo sannarlega
kann að þeyta hefðbundum táknum
og viðteknum venjum upp í loftið án
þess að klisjurnar falli um sjálfar sig
beint á gólfið. Skemmtilegt leikhús
þar sem stundin flýgur ieifturhratt
hjá eins og mörg frábær smáatriði.
Förðun stúlknanna var sérdeilis
skemmtileg ekki síst í seinni hlutan-
um þar sem baugar innilokaðra
hreinna meyja með berkla á byrjun-
arstigi urðu að enn einu tákninu
sem teiknað var svo skýrt.
Elísabet Brekkan