Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 Fréttir DV Eitt skírteini í öll bókasöfn Mikil ánægja er sögð vera með samstarf almenn- ingsbókasafna í Kópavogi, Garðabæ, Álfta- nesi og Hafnar- firði. Forstöðu- maður bóka- safnsins á Álfta- nesi upplýsti á skólanefndar- fundi þar í sveitarfélaginu að samstarflð hafi hlotið góðan hljómgrunn meðal notenda safnsins. Eitt bókasafnsskirteini mun gilda fyrir öll söfnin í bæj- arfélögunum fjómm. Heimilislausir í Norðurmýri Til stendur að færa gisti- heimili fyrir heimilislaust fólk sem Reykjavíkurborg hefur rekið í Þingholtsstræti yfir í Skeggjagötu. Fram til þessa hefur verið rekið al- mennt gisti- heimili í húsinu á Skeggjagötu. Skipulagsfulltrúi hefúr nú svarað spurningum Fé- lagsþjónust- unnar varðandi flutninginn og sagt að fyrst þurfi að sækja um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðra breyt- inga og síðan þurfi að gefa nágrönnum í Norðurmýri kost á að gera athugasemdir um breytta notkun hússins. Skólakrakkar í hrakningum 35 gmnnskólabörn á Höfn í Hornafirði fóm í óvenjulegt, ellefu klukku- stunda ferðaiag á föstu- dagskvöld. Að sögn hornafjord- ur.is var förinni heitið með rútu á Nes- kaupstað á árlegt Fjarðaball og var lagt af stað klukkan 18. Bflstjór- inn sneri við vegna slyddu í Oddsskarði en festi þá rút- una. Vegagerðin bjargaði krökkunum og selflutti nið- ur á Eskifjörð. Þegar rútan var loksins laus var orðið svo framorðið að snúið var aftur til Hafnar. Þangað var komið klukkan fimm um nóttina. / 'V Kaffisetrið Lokaö i mónuð til að starfs- fólkið geti farið í frí. SUrftfóHino tigendur Veitingastaðurinn Kaffisetrið á Laugavegi þarf að grípa til þess ráðs að hafa lokað í mánuð meðan starfsfólkið fer í frí. Erfiðlega gengur að fá sér- hæft starfsfólk. Kaffisetrið bíður svars frá Vinnumálastofnun vegna umsóknar um atvinnuleyfi fyrir asískan kokk. / i /_ ; /a—t^t i ■mrr" ***,,» •onumst til að sjá vkkur f aHur 14. nóvember. °pnu‘" I fyrradag sögðum við frá veitingastaðnum Mekong sem fær ekki útgefið atvinnuleyfi fyrir asískan kokk. Því er álag á starfsfólki með meira móti þessa dagana og engin lausn í sjónmáli því ís- lenskir kokkar henta ekki í starfið. Annar veitingastaður, Kaffí- setrið á Laugavegi, hefur verið undirmannaður um alllangt skeið og sér nú engan annan kost í stöðunni en að hafa lokað tíma- bundið meðan starfsfólkið fer í frí. Veitingastaðurinn hefur átt erfítt með að halda í íslenskt vinnuafl og bíður svars frá Vinnu- málastofnun við umsókn fyrir asískan kokk. „Svo veistu að við verðum með lokað í heilan mánuð frá og með fimmtánda þessa mánaðar." Með þessum orðum kveður Óskar Har- aldsson veitingamaður á Kaffisetrinu gesti sína en þessum vinsæla veit- ingastað mun á næstu dögum verða lokað í mánuð svo starfsfólkið geti farið í frí. Þótt baráttan um kúnnana sé hörð sér Óskar engan annan kost í stöð- unni en að loka tímabundið og von- ast til að sjá kúnnana svanga og þyrsta að loknu sumarfríi starfsfólks. Lokanir sem þessar em ekki algengar í íslenskum veitinga- og verslunar- rekstri en voru tíðari á ámm áður. Undirmönnun „Stelpumar eiga rétt á sínu sum- arfríi og ég er búinn að draga allt of lengi að veita þeim það. Við emm búin að berjast við undirmönnun í tvö ár og höfum þess vegna ekki get- að tekið ftí. Nú sjáum við engan kost í stöðunni annan en að loka meðan fólkið okkar tekur frí því við hjónin getum ekki staðið hérna tvö á átján tíma vöktum,“ segir Óskar en hann og eiginkona hans Patcharee Raknar- ong reka staðinn auk þess að standa í eldamennsku og þjónustu. Auk þeirra hjóna vinna tvær stúlkur í eld- húsinu. Bíða svars frá Vinnumálastofnun „Við emm búin að sækja um at- vinnuleyfi fyrir sérhæfðan, asískan kokk sem við viljum ráða í vinnu. Við bíðum eftir svari frá Vinnumálastofn- un við umsókninni og vonum það besta því við þurfum nauðsynlega á fleira starfsfólki að halda til að þetta geti gengið,“ segir Óskar sem hefur verið með íslendinga og Pólverja í vinnu með slæmum árangri. „Það þarf fólk með sérhæfða kunnáttu í austurlenskri matargerð til að starfa í svona eldhúsi og þess vegna vona ég að svar Vinnumálastofnunar verði já- kvaett," segir Óskar. Treystir á kúnnana Spurður um fjárhagslega áhættu með því að loka í heilan mánuð segir Óskar: „Ég tapa engu nema leigunni og svo treysti ég á mína kúnna til að koma aftur þegar ég opna á nýjan leik. Ég ætla bara að nota tímann til að mála og dytta að héma inni og svo kannski skreppur maður í smáferða- lag.“ svavar@dv.is „Nú sjáum við engan kost i stöðunni annan en að loka meðan fólkið okkar tekur frí því við hjónin getum ekki staðið hérna tvö á átján tíma vöktum Úlfar Eysteinsson segir að asísk veitingahús verði að fá sérhæft starfsfólk Útlendingalög gegn matarmenningu „ÞaO eru nú engin stórtföindi héðan af Hetiu," segir Guð- mundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri á Hellu.„Allt í þokkalegu jafnvægi fyrir utan aö það er bara talsvert vetrar- veður. Snjóar grimmt, komnir skaflar og allt orðið hvítt. I bæjar- Landsíminn um erum við að undirbúa ýmis- legt. Byggja skóla og bæta úr húsnæðismálum leikskóla. Hjá mér persónulega er það aðal- lega vinnan sem kemst að. Ég hefverið lengi í sveitarstjórn- armálum, var áður hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufé- laga og hefverið sveitarstjóri sfðustu ár. Það er gott og gef- andistarf." „Ég lít innflutning á asísku mat- reiðslufólki mjög jákvæðum augum því ef það á að bjóða upp á asískan mat hér á landi verður að vera til staðar matreiðslufólk sem er sérhæft í asískri matargerð. Slfkt fólk finnur þú bara í Asíu," segir hinn lands- þekkti matreiðslumaður Úlfar Ey- steinsson á Þremur frökkum. DV leitaði álits hans á þeim vandræðum sem mörg asísk veitingahús standa frammi fyrir því þau fá ekki atvinnu- leyfi fyrir starfsfólk sem er sérhæft í asískri matargerð. Eins og fram kom í DV á mánu- dag er veitingahúsið Mekong í vand- ræðum vegna þess að Vinnumála- stofnun synjaði staðnum um at- vinnuleyfi fyrir asískan matreiðslu- mann sem Mekong hugðist fá til starfa frá Asíu. Veitingastaðurinn Kaffisetrið grípur til þess ráðs að loka í mánuð til þess að gefa starfsfólki frí. Vinnumálastofn- un segir að Evrópureglur kveði á um að asísk veitingahús verði að veita evrópsku vinnuafli for- gang. „Hver staður hefur sitt ein- kenni og hann verður að fá að halda því alla leið. Það þýðir ekk- ert að vera með eitthvert plat því það kemur niður á matargerð- inni og gæðum veitingahússins. Með því að flytja inn asískt mat- argerðarfólk erum við að flytja inn þekkingu og fag- mennsku sem við íslend- ingar höfum gott af og það mun bæta íslenska matar- menningu. Þegar maður fer út að borða á maður rétt á þvf að fá það besta," segir Úlfar. Úlfar Eysteins- son Vill flytja inn þekkingu og fag- mennsku í austur- lenskri matargerð. Núðluskál Úlfarsegir að það þýði ekkert fyrir veitingastaði að reyna að plata viðskiptavini. svavar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.