Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005
—
Fréttir fiB
Hreindýr dó
í árekstri
Lögreglan á Egilsstöðum
fékk tilkynningu seinnipart
fimmtudags um að fólks-
bifreið hefði verið ekið á
hreindýr við Skriðuklaustur
í Fljótsdal. Hreindýrið, sem
hljóp út á veginn, drapst
við áreksturinn. Bifreiðin
skemmdist mikið en ekki
liggur fýrir hvort ökumaður
hafl slasast.
Keyrði út
í Héraðsvötn
Lögreglan á Sauðárkróki
fékk tilkynningu um um-
ferðaróhapp um áttaleytið í
gærmorgun. Þá hafði ungur
ökumaður misst stjórn á
bifreið sinni með þeim af-
leiðingum að hún fór utan-
vegar og endaði í Héraðs-
vötnum. Ökumaðurinn var
einn síns liðs og komst af
sjálfsdáðum út. Hann slapp
án teljandi meiðsla en
gekkst undir skoðun á
heilsugæslu. Lögreglan seg-
ir hálku ekki hafa verið á
þessum slóðum.
Munurinn á
skít
Umhverfisnefnd Vatns-
leysustrandarhrepps ræddi
á síðasta fundi sínum „um
muninn á hænsnaskít og
svínaskít." Betra sé að nota
svínaskítinn nær byggð:
„Hann hefur verið brotinn
niður og þurrkaður þannig
að smit eru ekki fyrir hendi
ásamt því að lykt er minni.
Þann skít er mun æskilegra
að nota nær byggð en
blautan, nýjan hænsna-
skít,“ segir umhverfis-
nefndin sem segir að
geyma þurfi skítinn áður en
honum sé dreift. Þá minnki
magn baktería „eins og
kamfílóbakter og salmon-
ellu" og smithætta sé „ekki
stórkostleg."
Sýslumannsembættið í Reykjavík hafnaði i gær kröfu um lögbann á heimildamynd-
ina Skuggabörn. Það var móðir Braga Halldórssonar, fórnarlambs í hnífsstungu-
máli við Hverfisgötu, sem lagði fram kröfuna en myndbrot af Braga sem tekið er
skömmu fyrir lát hans er að finna í Skuggabörnum. ReynirTraustason, aðalleikari
myndarinnar, segir að lögbann hefði haft skelfilegar og víðtækar afleiðingar.
ov 4. nóvember
Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði í gær kröfu um lögbann við
sýningu heimildamyndarinnar Skuggabörn sem þeir Þórhallur
Gunnarsson og Lýður Árnason framleiða. Kröfuna setti fram
Birna Björgvinsdóttir, móðir Braga Halldórssonar heitins.
Var sá vafasami leið-
angur kvikmyndaður
en nokkrum dögum
síðar var Bragi allur.
Fundað hjá Sýslu-
manni Þórhallur,
með tvö eintök af
myndinni f vasanum,
ræðirþarna við Láru
V. Júiíusdóttur, lög-
mann kæranda, og
fulltrúa Sýslumanns.
Bragi var stunginn til bana af fé-
laga sínum Sigurði Frey í húsi við
Hverfisgötu í sumar. Báðir komu við
sögu þegar Skuggaböm vom tekin
upp og er í myndinni myndskeið af
þeim þar sem Sigurður er að sprauta
sig með fíkniefnum. Skuggabörn er
tekin í tengslum við vinnslu Reynis
Traustasonar á samnefndri bók en
þar fer hann um ýmsa afkima undir-
heima þeirra sem tengjast eiturlyfja-
sölu og neyslu efnanna. Reynir hefúr
sagt fr á því í DV þegar hann fór með
þeim Sigurði og Braga heitnum í
leiðangur þar sem þeir hugðust inn-
heimta skuld sem efnt hafði verið til
vegna fíkniefnakaupa. Var sá vafa-
sami leiðangur kvikmyndaður en
nokkmm dögum síðar var Bragi all-
ur.
Formgalli á gerningnum
Birna hefur ekkert viljað láta hafa
eftir sér um málið en í gær voru þeir
Reynir, Þórhallur og Lýður boðaðir á
fund embættis Sýslumannsins í
Reykjavík vegna kröfunnar. Fulltrú-
ar Sýslumanns tóku skýrslu af hlut-
aðeigandi. Reynir sagði þá formgalla
á gerningnum öllum því hann væri
ekki aðili að málinu nema með
óbeinum hætti. Hann kæmi fram í
myndinni en væri ekki framleiðandi.
Reynir tók fram við það tækifæri að
hann hygðist ekki leggja fram lög-
bannskröfu á myndina. Hann hvarf
við svo búið af vettvangi en fulltrúar
embættisins og hlutaðeigandi aðilar
horfðu á myndina. í kjölfarið var svo
kröfunni hafnað.
Tjáningarfrelsið undir
Kærandi var reiðubúinn að leggja
fram tveggja milljóna króna trygg-
| Ur Skugga-
J börnum tmynd-
■ M 'mni má sjá Sigurð
Erey sprauta sig
AMU með fikniefnum.
Félagar í kröppum
dansi Lýðurog Reynir
hjá Sýslumanni. Lög-
bann hefði haft vlðtæk-
ar afleiðingar f för með
sér að söqn Revnis.
ingu ef til skaðabótakröfu ffamleið-
anda kæmi vegna taps á tekjum
vegna sýningar myndarinnar í sjón-
varpi. Til þess kom þó ekki og er Rík-
issjónvarpið með myndina á dag-
skrá næstkomandi þriðjudagskvöld.
Myndin var forsýnd fýrir ákveðinn
hóp í gærkvöldi í Regnboganum.
Reynir sagðist í samtali við blaðið
himinlifandi með niðurstöðuna.
Hann segir jafnframt að hefði lög-
bann verið lagt á myndina hefði það
haft skelfilegar og víðtækar afleið-
ingar. „Já, eins og það snýr að tján-
ingarfrelsinu almennt. Ef hægt að
setja lögbann á að einhver atburður
sé reifaður í máli og myndum vegna
þess að hann snertir fólk sem er í
sárum þá snertir það fréttaflutning í
víðu samhengi."
Hús í ferðalagi frá Reykjavík til Stykkishólms fer sér hægt
Fimm kílómetrará klukkustund
„Við vorum þrjá og hálfan tíma að
komast frá Lindargötunni og út úr
Mosfellsbæ," segir Rúnar Sigurpáls-
son hjá umferðardeild Lögreglunnar í
Reykjavík, en í fyrrakvöld aðstoðaði
deildin við að flytja einbýlishús út úr
bænum. Ökumenn rak í rogastans
þegar þeir sáu herlegheitin. Einbýlis-
hús á miðri Sæbraut.
„Þetta er alltaf gert af og til," segir
Rúnar um flutningana. „Sérstaklega
ef húsin em jafn heilleg og þessi."
Húsaflumingar valda umferðarónæði
og af þeim sökum er þetta gert að
næturlagi. „Þegar við emm innan-
bæjar keyrum við ekki mikið hraðar
en á svona fimm kílómetra hraða á
klukkustund," segir Rúnar og viður-
kennir að þetta sé þó nokkur þolin-
mæðisvinna. En mottóið í ferðum
sem þessum er gott og við hæfi; hægt
en ömgglega.
Nokkur vandræði fylgja einnig
svona flutningum, meðal annars
vegna rafmagnslína. „Stundum þarf
„Mérligguráað komast til Akureyrar," segir Jóhannes Haukur Jóhannesson !eikari.„Ég
er búinn að vera í Danmörku en er núna í Reykjavík. Ég þarf að keyra þaðanísex klukku-
stundir til að sýna Fullkomið brúðkaup. Ég ætla meira að segja að reyna að vera kominn
þangað klukkan fjögur tilað sjá Edith Piafsem verðursýndþá.“
að slá út háspennulínum og hjálpa var þó lagt í að' flytja það alla leið í
þeim yfir húsið," segir Rúnar. Húsið einu. „Nei, þetta er tekið í áföngum,"
sem um ræðir stóð, allt þar til í gær, segir Rúnar. Klukkan sex í gærmorg-
við Lindargötu 42 í Reykjavík. Nýtt un, eftir sex og hálfs tíma ferðalag, var
heimili þess er í Stykkishólmi. Ekki húsinu lagt á plani við Akranesveg.
I Einbýlishús á Sæbraut
Marga ökumenn rak I rogastans
þegarþeirsáu húsið á fimm
kilómetra ferð á Sæbraut.
\ '11 ~|f|ij.