Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Qupperneq 10
10 LAUGARDAQUR 12. NÓVEMBER2005
... .............. 1 ■' .... ..
Fréttir
Gunnar er ákveöinn og
metnaöarfullur maður.
Gunnar heldur með
Manchester United og helst
illa d kvenfólki.
„Hann er hvers manns hugljúfi,
gífurlega metnaðar-
fullur og samvisku-
samur. Dugnaðarfork-
ur sem hefur stefnt að
þvl að slá í gegn I at-
vinnumennsku frá þvl
hann var á leikskóla. Hann er
vinur vina sinna og snyrtipinni
fram í fingurgóma. En það er al-
veg feriegt hvað honum helst
illa á kvenfólki."
Þorsteinn Gunnarsson iþróttafrétta-
maður.
„Ég þekki Gunnar afjákvæðu
einu, bæði skemmtilegur og ein-
lægur drengur. Eitt það mest að-
laðandi við hann sem
iþróttamann er hvað
hann hefur mikið sjálfs-
traust. Það líturþannig
út að þetta sé allt mjög
auðvelt hjá honum. Hann hefur
komið mjög mikið á óvart og
menn bjuggust ekki við þvl að
hann yrði svona góður. Utanað-
komandi aðstæður hafa lltil
áhrifá hann og hann bognar
ekki afvirðingu fyrir frægari og
reyndari leikmönnum. En þvl
miður hefég bara enga galla
fundið á honum, nema kannski
að hann hafði ekki likamsburði
til að bera I atvinnumennsku
fyrst um sinn, en hann hefur
unnið vel á þeim veikieika."
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari.
„Gunnar er nettur. Góður vinur
og ómissandi karakter. Við vor-
um náttúrulega bestu
vinir upp alla flokka,
enda ólumst upp saman
I Eyjum. Það var alltaf
dálltill rlgur á milli Týs
og Þórs á sínum tlma og við ÍTý
vorum auövitað betri, en hann
hefur tekið sig vel upp slðan þá.
Hann er markaskorari afGuðs
náð og tekst á við verkefnin af
fullum krafti. Hann stendur sig
með sóma og fer létt með það
enda kenndi ég honum allt sem
hann kann. En hann er Þórsari,
heldur með Manchester United
og þykist vera lélegur I golfi. “
Atli Jóhannsson, fótboltamaöur og vln-
ur.
Gunnar Heiöar er fæddur 1. aprll 1982 og
því 24 ára. Hann leikur meÖ Halmstad I Svl-
þjóö og hefur veriö valinn einn afstjörnum
framtlöar hins virta fótboltatlmarits World
Soccer. Hann ersagöur ákaflega marka-
gráöugur, enda hefur hann náö titli marka-
kóngs I deildinnl.
Var Bond
Snæfellingur?
Fyrirmynd rithöfundar-
ins Ians Fleming að sögu-
hetjunni James Bond var
Snæfellingurinn Sir William
Stephenson.
Þetta kom fram
í fyrirlestri Inga
Hans Jónssonar
að því er segir á
grundarfjord-
ur.is. Ingi Hans
segir foreldra
Williams hafa
verið Snæfell-
inga sem fluttu til Kanada:
„William var fæddur í
Kanada og átti ævintýralegt
líf, hann var stríðshetja og
auðjöfur, einn af aðalskipu-
leggjendum leyniþjónust-
unnar CIA og skrifaði
ásamt Ian Fleming stofn-
skrá CIA.“
Hótanir manna sem taldir eru tengjast mannráninu í Bónus í byrjun september
gegn starfsfólki verslunarinnar halda áfram. Á fimmtudagskvöldið var blysum
skotið að verslunarstjóranum í Bónus á Seltjarnarnesi, Jóni Ingvari Þorsteinssyni
Honum hefur áður verið hótað að hann hljóti verra af, beri hann vitni í málinu
gegn mannræningjunum.
„Það er grafalvarlegt að mönnum sem sinna borgaralegri skyldu
sinni og bera vitni í sakamálum sé hótað eða beittir ofbeldi,"
segir Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn en starfsfólki Bón-
uss hefur verið hótað því að það hljóti verra af beri það vitni í
málinu gegn Axel Karli Gíslasyni.
Á fimmtudagskvöldið héldu hót-
anirnar gegn starfsfólki Bónus á Sel-
tjarnamesi áfram. Áður höfðu borist
símtöl frá mönnum sem taldir em
tengjast mannráninu í versluninni í
september en í þetta skiptið létu þeir
sér það ekki nægja og mættu á svæð-
ið.
Fórnarlambið nýfarið heim
Klukkan var hálfníu. Nokkrir
starfsmenn verslunarinnar stóðu fyr-
ir utan. Þeir höfðu verið að taka inn
vömbretti eins og vanalega er gert á
kvöldin. Drengurinn sem Axel Karl
Gíslason og félagar hans rændu þann
2. september hafði verið að vinna en
var nýfarinn heim.
Verslunarstjórinn Jón Ingvar Þor-
steinsson lýsir því sem næst gerðist í
bloggfærslu á heimasíðu sinni:
„...þegar við vorum búnirmeð brett-
in áðan þá fór ég út og þar var grun-
samlegur búl út á plani og ég gekk í
átt að honum. Þá var skotið blysi að
mér sem sprakk fyrir ofan mig með
miklum hvell og búlinn brunaði í
burtu og voru þá mættir þama gutt-
arnir úr mannráninu að taka á móti
mér. “
Beinist eingöngu að vitnun-
um
Lögregla var kölluð á svæðið og
„Þá var skotið blysi að
mér sem sprakk fyrir
ofan mig með miklum
hvell."
yfirheyrði vitnin. Mennimir sem
skotið höfðu á Jón Ingvar vom á hvít-
um Mitsubislri Lancer en lögreglan
hafði ekki tekið skýrslu af þeim þegar
DV hafði samband við varðstjóra í
gær. Móðir drengsins sem rænt var
segir að engar hótanir hafi borist syni
sínum enn og því virðist sem hótanir
þessara manna beinist eingöngu að
hugsanlegum vimum í marmráns-
málinu en réttað verður í því innan
skamms.
Starfsfólkið ekki hrætt
Verslunarstjórinn Jón Ingvar
sagði í samtali við DV skömmu eftir
árásina að þótt þessir menn héldu að
starfsfólkið í Bónus væri óttaslegið
yfir þessum hótunum væri það al-
rangt.
Þrátt fyrir að starfsfólkið í Bónus
láti engan bilbug á sér finna og óttist
mannræningjana og kumpána þeirra
ekki, var þungt í Herði Jóhannessyni
yfirlögregluþjóni þegar DV ræddi við
hann um málið í gær. Hann segir að
vitni njóti sérstakrar verndar í lög-
um sem nýverið voru sett og það sé
alvarlegt í lýðræðis- og réttarríki að
fólki, sem sinnir borgaralegri skyldu
sinni, sé hótað eða beitt ofbeldi.
Allir lausir nema einn
Allir þeir sem tóku þátt í mann-
ráninu í september ganga lausir, fyr-
ir utan einn. Höfuðpaurinn Axel
Karl Gíslason situr á Litla-Hrauni.
Einhveijir af félögum hans munu þó
líklega sameinast honum í vistinni á
Hrauninu innan skamms eða eftir
að dómur felfur í mannránsmálinu.
andri<s>dv.is
Sex handteknir í Lindahverfi
Fíkniefnadeild Lögreglunnar í
Kópavogi réðst til húsleitar í Linda-
hverfi rétt fyrir miðnætti á fimmtu-
dagskvöld vegna gruns um frkni-
efnamisferli. Grunurinn reyndist á
rökum reistur og voru sex manns á
milli tvítugs og þrítugs handteknir
eftir leitina en í henni fundust ríf-
lega 200 grömm af fíkniefnum. Var
þar aðallega um að ræða hass, en
einnig amfetamín og sterar.
Fjórum var sleppt fljótlega
eftir leitina en tveir mann
anna játuðu að eiga efnin.
Þeim var síðar sleppt að
loknum yfirheyrslum.
Fyrir rúmum mán-
uði síðan voru fjórir
handteknir eftir að
lögreglan gerði hús-
leit í vesturhluta
Kópavogs vegna
gruns um sömu brot.
Fíkniefnaleitar-
hundur Aðstoðaði
fikniefnadeild Lög-
reglunnar í Kópa-
vogi við leitina.
þeirri leit kom í ljós að húsráð-
endur höfðu undir höndum
rúmlega 60 e-töflur,
100 steratöflur og of-
skynjunarsveppi.
Einnig var lagt hald á
kannabisefni og am-
Hass Töluvert magn af
c , . hassiogöðrumfíkniefn-
fetamin en um fannst i Kópavogi
magn þess
talið skipta tugum
gramma. Fíkniefnahundur Toll-
gæslunnar aðstoðaði við báðar leit-
irnar.
gudmundur@dv.is
Stefán frekar en
Steinunni
Reykvíkingar treysta Stefáni
Jóni Hafstein mun betur en
Steinunni Valdísi Óskarsdóttur til
að verða næsti borgarstjóri sam-
kvæmt könnun sem Frjáls versl-
un gerði fyrir vefsvæðið heim-
ur.is. Af þeim sem tóku afstöðu
treystu 67 prósent Stefáni Jóni
betur en um 33 prósent Stein-
unni. Lítill munur er á afstöðu
kynjanna. Þó hafði Stefán Jón
litlu meira fylgi meðal kvenna.
Stuðningur við Stefán Jón var
mun meiri en við Steinunni hjá
stuðningsmönnum allra flokka
nema Framsóknarflokks.