Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Blaðsíða 14
74 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005
Fréttir DV
Kynþáttahat-
ureykst
Árásir vegna kynþáttafor-
dóma hafa aukist um 29% í
Englandi og Wales, sam-
kvæmt upplýsingum ríkis-
saksóknara sem birtar voru í
gær. Múslimar segja aukn-
inguna áfali. Stór hluti aukn-
ingarinnar er rakinn til
hryðjuverkaárásanna 7. júh' í
London, en einnig þess að
árásir eru frekar tiikynntar
vegna betri samskipta milli
ríkissaksóknara og fórnar-
lamba glæpanna. „Það á
ekki að líða glæpi vegna
kynþáttar eða trúar," segir
Sir Iqbal Sacranie, formaður
ráðs múslima í Bretlandi.
Paul spilar út
í geim
f dag ætlar gamli Bítill-
inn Paul McCartney að
senda tónleika sína í Ana-
heim í Kaliforníu beint út í
geim. „Ég var svo ánægður
þegar ég komst að því að
eitt laga minna var spilað
fyrir áhöfn Discovery í
sumar,“ segir Paul og von-
ast til að launa greiðann á
þennan hátt. Hann hyggst
spila lögin Good Day Sun-
shine og eitt nýtt lag, Eng-
lish Tea, fyrir þá geimfara
sem eru í alþjóðlegu geim-
stöðinni á sporbaug um
400 kflómetra yfir jörðu.
Sjoi
einangrun
Hagsmunir rannsóknar-
innar vega þyngra en ungur
aldur þeirra sjö
sem handteknir
hafa verið í
Danmörku fyrir
ráðagerð um
hryðjuverk.
Þetta var mat
dómara við
réttinn í
Brondby sem framlengdi
varðhald þeirra í einangrun
á fimmtudag. „Það eru fleiri
grunaðir sem enn hafa ekki
verið handteknir," segir
Finn Ravnborg, yfirlög-
reglustjóri í Glostrup. Mál
sjömenninganna vakti
mikla athygli þar sem þeir
eru flestir norrænir rflcis-
borgarar.
Tysonfyrir
rétt 1
Enn og aftur
hefur Mike Tyson
sýnt hvaða mann
hann hefur að
geyma. Eftir ró-
legan dag með
fótboltastjömunni
fyrrverandi Diego Maradona
við sjónvarpsupptökur fór
hann út á lífið í Sao Paulo.
Blaðamaður einn gerðist svo
djarfur að taka myndir af
honum með þeim afleiðing-
um að jámhnefinn kom til
hans og tuskaði hann tii.
Tyson var handtekinn af
brasifísku lögreglunni í kjöl-
farið og neitaði að hafa
komið við ljósmyndarann.
Málið verður tekið fyrir í
rétti í dag.
Eitt það hræðilegasta sem foreldrar upplifa er missir barns. Það reyndu for-
eldrar Súsönnu Gonzales fyrir um tveimur árum síðan. Hún var einungis 19
ára og lífið virtist brosa við henni. Einn dag í vor breyttist líf þeirra til muna.
Tölvupóstur frá Súsönnu beið þeirra og færði þeim verstu tíðindi sem foreldr-
ar geta fengið.
„Elsku mamma, pabbi og Jennifer. Ég hef þetta eins stutt og
ég get, vitandi að þetta verður erfitt fyrir ykkur. Ef þið hafið
ekki þegar heyrt það, þá er ég látin.“ Þetta voru inngangsorð
bréfs Súsönnu til foreldra sinna, þeirra Mike og Mary
Gonzales. Einsömul á hótelherbergi stutt frá skólanum sín-
um tók Súsanna sitt eigið líf.
Saga Súsönnu Gonzales er ekk-
ert einsdæmi. Um fjögur þúsund
ungmenni á aldrinum 15 til 24
fremja sjálfsmorð á hverju ári í
Bandaríkjunum. Margir þeirra hafa
leitað upplýsinga á netinu um
hvemig það eigi að taka líf sitt,
hvaða aðferðir og hvaða efni hægt
sé að nota. Foreldrar Súsönnu
komust að því að hún hafði skrifað
meira en eitt hundrað pósta á síð-
unni alt.suicide.holiday þar sem
hundmð manna deila upplýsing-
um um sjálfsmorð og bjóða jafnvel
upp á mismunandi leiðir til þess.
Aðstoð úr netheimum
Súsanna komst inn á þessa síðu
m'u vikum áður en hún lést. Þar
skrifaði hún: „Ég hef valið ... Ég er
hætt að borða svo mallinn minn
verði súr og góður."
Það var eins og að núa salti í
opið sár foreldranna. „Þekking
þeirra og uppörvun var það sem
leiddi hana til dauða," segir Mike
Gonzales.
Eldri meðlimur síðunnar gekk
xmdir nafninu River. Hann segist
hafa yfirfarið ýmsa þætti með
Súsönnu fyrir „ferðalag hennar,
bara til að vera örugg," en neitar að
hafa verið valdur að dauða hennar.
„Enginn í ASH (netsíðan) hvetur til
sjálfsmorðs. ASH er fyrir frjálst val,"
segir River.
„Þetta hvetur ekki tfl vals. Þetta
er heilaþvottur," mótmælir Gonza-
les-fjölskyldan.
Þunglyndi leiðirtil sjálfs-
morðs
Um 80% allra sem fremja
sjálfsmorð hafa átt við þunglyndi
að etja. Hin 20% hafa átt við ein-
hverja geðröskun að stríða, eins
og erfiðleika í kjölfar skilnaðar
eða dauða ástvina eða náinna
vina.
Ekki var þó neitt sjáanlegt í
fari Súsönnu að mati foreldr-
anna. Hún opnaði einungis
hjarta sitt og hug fyrir ókunnug-
um netverjum.
Heimsfaraldur
Netið hefur haft sitt að segja
þegar kemur að sjálfsvígi ung-
menna. Margir þeirra sækja upp-
lýsingar um aðferðir og lyf sem
hægt er að nota til að framkvæma
verknaðinn. Ofangreind síða er
ein af hundruðum sem eru á net-
inu. Því miður virðist sem ung-
lingar sæki einhliða hjálp á þess-
ar síður, en segja engum frá,
hvorki foreldrum, kennurum né
vinum.
Margir hafa gert með sér
samninga um að binda enda á líf
sitt með einhverjum öðrum sem
þeir hafa hitt á þessum síðum.
Lát Súsönnu er það fjórtánda
sem rakið er til síðu sem þessarar
Heimasíðan Hér
deila hundruð ein-
staklinga upplýs-
ingum um sjálfs-
morð.
í Bandaríkjunum.
Eins bundu níu
manns enda á líf
sitt saman í Japan á
síðasta ári. Víða er slakri geðheil-
brigðisþjónustu kennt um.
Fá sjálfsvíg hérlendis
Samkvæmt heimildum Land-
læknisembættisins hafa sjálfsvíg
ungs fólks sem betur fer farið
minnkandi undanfarin ár. Þar sé
mest um að þakka að fólki finnist
auðveldara að ræða vandamál
sín við fjölskyldu, vini og sálfræð-
inga. Eins hafi átakið Þjóð gegn
þunglyndi hvatt mikið til að fólk
haldi ekki að sér upplýsingum
um erfið vandamál ungmenna,
heldur upplýsi þá sem umgang-
ast viðkomandi mikið um vanda-
málin.
haraidur@dv.is
Susanna Gonzales
Framdi sjálfsmorð
eftir leiðbeiningum
heimaslðu.
Ellen Johnson-Sirleaf vann George Weah í kosningum
Verður fyrsti kvenforseti í Afríku
Hagfræðingurinn Ellen Johnson-
Sirleaf vann kosningar sem fram fóru
í Líberíu með um 59% taldra atkvæða.
Mótframbjóðandi hennar, fyrr-
verandi fótboltahetjan George Weah,
fékk 41% atkvæða en telur kosning-
una meingallaða og svik í gangi.
Hin 67 ára Johnson-Sirleaf hafði
áður boðið sig fram árið 1997, en þá
beðið lægri hlut. Hún nam hagfræði
við Harvard-háskóla og tók sæti fjár-
málaráðherra Líberíu árið 1972. Hún
gegndi því embætti þá einungis í eitt
ár. 1980 tók hún aftur við embætti
fjármálaráðherra og stýrði á sama
tíma yfirstjóm Cifybank I Afríku.
„Við ætlum að gera þetta rétt frá
fyrsta degi," segir Ellen Johnson-Sir-
leaf. „Við ætlum að hafa rfldsstjóm
sem sameinar og leitar út til fólksins."
Hún tekur ekki ásakanir Weah um
kosningasvik alvarlega. Hún er jafnvel
reiðubúin til að bjóða honum sæti í
George Weah
Fótboltahetjan
fékk einungis
40% atkvæða.
rfldsstjóm sinni, jafnvel sem heil-
brigðisráðherra. Weah hefur helst
verið legið á hálsi fyrir að vera ekki
reyndur stjómmálamaður en það er
talið meðal kosta hans I Líberíu sem
lengi hefur þjáðst fyrir spillingu
stjómmálamanna og hermangara.
Hann hefur öðlast aðdáun margra
fyrir afrek sín á fótboltavellinum áður
íýrr og skotist upp á stjömuhimininn
úr sárri fátækt bamæskunnar.
J Ellen Johnson-
j Sirleaf. Fékktæp
'■ J 60% atkvæða I
i I forsetakosningum.
Secjir Guð hata
Svia
Margir misjafiiir menn halda
úti heimasíðum. í gær bámst
fregnir af heimasíðunni god-
hatessweden.com þar sem
bandaríski presturinn Fred
Phelps
ranghvolfir
augunum
yfir sænsku
kóngafjöl-
skyldunni
og öllum
þeirra þegn-
um. Það
helsta sem
Svíar hafa
gert á hlut prestsins er að ganga
erinda samkynhneigðra. Hann
segir ríkiserfingjana graða og
Karl Gústaf konung sjálfan fávita
sem sé á leið til helvítis. Hann
heldur reyndar einnig úti síðum
á móti Kanada og Bandaríkjun-
um í svipuðum dúr.