Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Side 18
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005
Sport DV
Grantarinn
ekki hættur
Arnar Grant, ríkjandi ís-
landsmeistari í fitness, er
ekki hættur í íþróttinni
þrátt fyrir að hann sé ekki
meðai keppanda í Ice-Fit-
ness keppninni í kvöld. „Ég
ætía aðeins að færa mig til
hliðar og sjá hvort það ræt-
ist ekki úr þessu sporti. Mér
finnst hafa orðið fulllitíar
breytingar á keppninni
undanfarin ár,“ sagði Amar
sem er síður en svo hættur.
„Mig langaði mikið til að
fara upp á svið í saman-
burðinum á fimmtudaginn
því ég er í miklu betra formi
núna en nokkurn tímann
áður. Ég hefði rúllað þess-
um samanburði upp."
I'll be back
Hinn upprunalegi kóng-
ur í fitness á fslandi, Krist-
ján Ársælsson, er í ótrúlegu
formi þrátt fyrir að vera
orðinn fertugur
fimm barna faðir.
Enn hefur enginn
fitness-keppandi
komist með tærnar
þar sem Kristján
hafði hælana þegar
hann var upp á sitt
besta. Hann hefur lofað að-
dáendum íþróttarinnar að
hann muni snúa aftur. „I’ll
be back, það er alveg á
hreinu. Þeir sem eru nú að
æfa verða að æfa á fullu
ætli þeir sér að eiga mögu-
leika í mig.“
LAUGARDAGUR
14.25 Austfjarðatröllið á
iiJUVí.l.l-IL' RÚV.
16.15 Fram-Þór í DHL-
tiJiaúuRL deild karla, beint á Rúv.
17.00 Afturelding-Vík-
>• ingur/Fjölnir í DHL-
deild karla.
5ÖT1 16.35 England-Argent-
ína á Sýn.
18.35 Noregur-Tékk-
land í undankeppni
HM 2006 á Sýn.
20.20 Ice-Fitness 2005 á
Sýn. Bein útsending frá
Laugardalshöll.
SUNNUDAGUR
17.00 Haukar-Torggler
Group Meran f Meist-
S&Ti aradeild Evrópu í hand-
bolta. f beinni útsend-
ingu á Sýn.
S?=m 19.00 Leikur í NFL-
deildinni beint á Sýn.
19.15 Heil umferð í
li Iceland Express deild
w karla: Hötmr-Grinda-
vík, Hamar/Sel-
foss-Skallagrímur,
Þór-KR, Kefla-
vík-Haukar, ÍR-Njarð-
vík, Snæfell-Fjölnir.
Ice-Fitness kepnin fer fram í Laugardals-
höll í kvöld. Ljóst er að keppnin verður
afar hörð og spennandi. Tíu keppendur
eru í karlaflokki en átta í kvennaflokki.
Smári Valgarðsson er af mörgum talinn
efnilegasti fitness-keppandi okkar íslend-
inga. Hann setur stefnuna á sigur í
kvöld og ekkert annað.
Ice-Fitness keppnin fer fram í
kvöld í Laugardalshöll. Keppnin
verður afar opin í bæði karla- og
kvennaflokki og nánast ómögulegt
að spá fyrir um sigurvegara. Kepp-
endur eru færri en oft áður en að
sögn Andrésar Guðmundssonar
keppnishaldara tekur enginn þátt í
Ice-Fitness nema hann sé í topp-
formi og því verður elítan saman
komin í Laugardalnum í kvöld. DV
settist niður með þeim Smára Val-
garðssyni og Lindu Björk Þórðar-
dóttur sem bæði þykja sigurstrang-
leg.
Myndi rústa Arnari Grant
Smári Valgarðsson hefur aldrei
verið í betra formi en í dag. Hann
byrjaði að kepppa þegar hann var 16
ára gamall en er nú 21 árs. Hjá hon-
um kemur ekkert annað en sigur til
greina. „Ég ætía að vinna þetta mót.
Ég er vel undirbúinn og hef æft eins
og skeppna, sex sinnum í viku og oft
tvisvar á dag," sagði Smári sem er
hrikalega flottur þessa dagana. Að
sögn sérfræðinga í fitness verður
baráttan á milli Smára, gömlu
kempunnar Kjartans Guðbrands-
sonar og Jóhanns Péturs Hilmars-
sonar frá Akranesi.
Athygli vekur að Arnar Grant sem
hefur verið nokkurs konar andlit
keppninnar undanfarin ár er ekki á
meðal keppenda. Smári segir það
ekki skipta máli því hann ætti ekki
séns í hann. „Auðvitað væri gaman
að hafa hann þarna en það myndi
ekki breyta einu eða neinu því ég
myndi rústa honum í því formi sem
ég er í dag.“
Strangt mataræði
Linda Björk Þórðardóttir er ein af
þeim sigurstranglegri í kvenna-
flokki. En afhverju keppir hún í fit-
ness? „Ég keppi í fitness af því að
það er svo gaman. Ég hef áður
stundað fótbolta og djassballet.
Einnig var ég mikið í sveit sem
barn," sagði Linda Björk sem hefur
unnið sem lögreglumaður frá árinu
2002.
„Markmið mitt fyrir keppnina er
fyrst og fremst að skemmta mér
ógeðslega vel. Aðvitað stefni ég á að
lenda ofarlega en það er ekkert
hægt að spá einu eða neinu. Það er
allt opið en ég á fyrst og fremst von
á skemmtilegri keppni. Það verður
lifandi tónlist í þrautinni (í svörtum
fötum spilar) og tvær saman í þraut.
Undirbúningur fyrir svona
keppni er alls ekki auðveldur, mikl-
ar æfingar og strangt mataræði. Ég
hef borðað haframjöl á morgnana
og próteinduft á daginn á tveggja
tíma fresti. Þá hef ég minnkað kol-
vetnaskammtinn."
í svörtum fötum spilar
Það verður eflaust mikið fjör í
Laugardalnum í kvöld. Dönsku fit-
ness-meistararnir í karla og kvenna-
flokki mæta, í svörtum fötum spila á
meðan keppendur eru f hraða-
þrautinni og Þorsteinn Gunnarsson
lýsir keppninni fyrir áhorfendum í
Laugardalshöll af sinni alkunnu
snilld. Þeir sem komast ekki á sjálfa
keppnina geta fylgst með á Sýn þar
sem þeir Gaupi og ívar Guðmunds-
son fara yfir stöðu mála.
hjorvar@dv.is
Á ekki af Allan Borgvardt að ganga
Verðurekki íViking
Knattspyrnumaðurinn Allan
Borgvardt verður ekki áfram hjá Vik-
ing í Noregi þar sem hann hefur leik-
ið frá því að hann fór frá FH í ágúst
síðastíiðnum. Hann lék ekki margar
mínútur með liðinu en þótti engu að
síður standa sig vel. Einn viðmæl-
andi blaðsins sagði að hann hafi átt
frábæra innkomu í lokaleik liðsins
gegn Aalesund þar sem hann
lagði upp síðasta mark liðs-
ins í 3-0 sigri. Forráða-
menn liðsins eru
greinilega ekki á sama
máli og var tilkynnt á
heimasíðu félagsins í
fýrrakvöld að aðilar
hefðu komist að sam-
komulagi um að fram-
lengja ekki samning-
inn.
Sjálfur var Allan ekki
vongóður um áfram-
gengni
manna á
haldandi veru í Noregi þegar DV
Sport náði tali af honum í síðustu
viku, þótt hann sjálfur væri áhuga-
samur. Hann vissi þó af áhuga liða í
Danmörku og mun hann halda
þangað í lok mánaðarins. En sam-
kvæmt heimildum
blaðsins mun ekki
vera líklegt að hann
komist að hjá úr-
valsdeildarliði þar í
landi. Miðað við vel-
íslenskra leik-
Norðurlöndun-
um er ótrúlegt að leikmaður
| sem tvívegis er kjörinn leik-
’ maður ársins hér á landi á
þremur árum geri ekki slíkt
hið sama. Borgvardt sagði að
ólíklegt væri að hann kæmi til
íslands næsta sumar en það
ætti samt aldrei að segja aldrei.
eirikurst@dv.is
Gunnar Gíslason um deiluna í Stoke
Ræðum málin
eftir helgi
Gunnar Gíslason, stjómarfor-
maður Stoke City, sagði í samtali við
DV Sport í gær að hann vonaðist til
að deila knattspyrnustjórans Johans
Boskamp og þeirra Jan de Koning og
John Rudge myndi leysast eftir helgi.
„Við munum sitjast niður með
mönnunum og sjá hvort ekki sé leið
til að sættast," sagði Gunnar. Hann
sagði deiluna stafa af því að Bos-
kamp fannst að þeir Rudge, sem er
yfirmaður knattspyrnumála, og de
Koning, sem er þjálfari hjá liðinu,
hefðu komið inn á verksvið sitt. í
kjölfar hennar voru mennirnir send-
ir heim í vikufrí og þar við situr enn í
dag.
„Þetta er aðeins stormur í vatns-
glasi og vonandi leysist þetta sem
fyrst," sagði Gunnar. Tony Pulis, for-
veri Boskamps i
starfi, furðar sig
á ástandinu í
viðtali við Ev-
ening Herald íj
Plymouth þarj
sem hann j
starfar nú. I
„Mér finnst j
reyndar staðaj
yfirmanns
knattspyrnu-
mála óþarfi. En’
ef það er eitt-'
hvað sem John gerði til
að létta álagið á mér var
það að ræða við stjórnarmenn-
ina á íslandi í síma nokkrum sinnum
í viku. Hann tók þá ábyrgð algjörlega
af mínum herðum," sagði Pulis.