Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005
Helgarblað DV
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum manni að Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er á
landinu til að fylgja eftir fyrstu skáldsögu sinni, í fylgd með fullorðnum. Sagan hefur fengið af-
spymugóða dóma, en Steinunn, sem er ekki allsendis óvön sviðsljósinu, veit varla hvaðan á hana
stendur veðrið og finnst orðið nóg um fjölmiðlafárið. Hún er þó að vonum ánægð með móttökurnar.
Steinunn hóf að skrifa bókina fyrir
þremur árum en lauk við hana í Los
Angeles þar sem hún er búsett með
unnusta sínum, Stefáni Karli Stefáns-
syni leikara, og tveimur dætrum þeirra.
Við Steinunn Olína ákveðum að tíunda
ekki sérstaklega efni bókarinnar, en
henni þykir vænt um að heyra að mér
fannst bókin skemmtileg og í henni
mikil hlýja og jafnvel galdur.
„Já, takk fyrir það,“ segir hún. „Ég er
auðvitað ánægð ef bókin gleður lesand-
ann, en mér líður svolítið eins og ég sé í
frjálsu falli með þetta allt saman. Þetta
er glæný reynsla, en mjög skemmtileg."
Steinunn hefur búið í Los Angeles í
tæpt ár og komið sér fyrir í litlu, sætu
húsi með bakgarði, rósarunnum og
hvítri girðingu í kring. Húsið minnir á
breskt „cottage" og samhliða því að
fjölskyldan var að aðlagast nýjum að-
stæðum var Steinunn á ferð með tölv-
una innan girðingarinnar og skrifaði
ýmist í garðinum, bílskúrnum eða inni í
húsinu sjálfu. „Það fer allt eftir veðrinu,
það er nefnilega oft kalt á kvöldin," út-
skýrir hún.
Með stjörnum í LA
Steinunn segist ekki alltaf vera að
rekast á frægt fólk í LA, en hefur samt
anað beint í fangið á Jamie Lee Curtis
og séð marga fræga á ferli. „Ég viður-
kenni að það var svolítið magnað „mó-
ment'1 að rekast á Jamie. Ég var samt
aðallega hissa á því hvað hún var stór.
Hún er örugglega einn og níutíu á hæð.
Svo hef ég líka beðið á rauðu ljósi við
hliðina á Jack Nicholson," segir Stein-
unn sem vill samt ekkert vera að gera of
mikið úr þessu.
Eru einhverjir frægir íþínu hverfí?
„Ja, innan hverfisins eru náttúrlega
svona „lókal“-pöbbar og veitingastaðir
og það kemur fyrir að frægt fólk stingur
þar inn nefi. Þá hugsar maður auðvitað
með sér, ó, ætli hann búi í þessu hverfi?
Meira veit ég svo sem ekki um það.“
Steinunni líkar vel í Los Angeles en
segist ekki hafa kynnst fólki mjög per-
sónulega, ekki enn að minnsta kosti. „Ég
hef samt oft lent í mjög skemmtilegum
samræðum við fólk. Vitneskja þess um
ísland er ekki mikil og margir sem hafa
aldrei hitt íslendinga fyrr og vita ekkert
hvar landið er í heiminum. Mér finnst
það ofureðlilegt. Fólkið sem á búðina
þar sem við verslum spurði okkur til að
byrja með í hvert skipti sem við komum
hvaðan við værum. Nú eru þau hætt að
spyrja um það en spyrja í staðinn hvern-
ig veðrið sé á írlandi. Mér finnst það allt
í lagi og er ekkert að leiðrétta það.“
Kanadamenn sýna Regnboga-
börnum áhuga
Sambýlismaður Steinunnar, Stefán
Karl, sem nota bene bað hennar í
beinni útsendingu hjá Sirrý í vikunni,
er með ýmis verkefni í bígerð. Steinunn
segist taka þátt í þeim góðu verkefnum
af lífi og sál.
„Kanadamenn hafa sýnt mikinn
áhuga á verkefni eins og Regnboga-
börnunum á íslandi og beðið Stefán
liðsinnis í að koma þessu módeli á í
Kanada. Það finnnst okkur mjög
spennandi og stór fyrirtæki í Kanada
hafa lýst sig reiðubúin að styrkja þetta.
Stefán er líka að leita fýrir sér með hlut-
verk og er með frábæran umboðsmann
sem vinnur vel fyrir hann. Hann mætir
af og til í áheyrnarpróf og aldrei að vita
nema það skili einhverju. Umboðs-
maðurinn hans er hörkukona á miðj-
um aldri sem þekkir þennan heim út og
inn.“
Einhverjir þekktir sem hún hefur
komiö á framfæri?
„Það er leyndarmál."
En var ekki svolítiö amerískt að fá
bónorö íbeinni?
„Jú, ægilega amerískt, en kannski
ekki eins rómantískt og maður gæti
haldið þar sem við verðum að gifta
okkur til að fá græna kortið."
Aðgát skal höfð...
Dætur Steinunnar, Elín ijögurra ára
og Bríet níu ára, taka þátt í ævintýrinu
með foreldrum sínum og stunda skóla
og leikskóla í LA.
„Þær hafa aðlagast vel þó að Bríet
sakni auðvitað vina sinna á íslandi,"
segir Steinunn. „ILA eru krakkar ekkert
á ferðinni einir og sér og þarf að skipu-
leggja með nokkurra daga fyrirvara að
fá leikfélaga í heimsókn. Það eru vissu-
lega viðbrigði fyrir hana. Elín er á leik-
skóla nokkra tíma á dag en við erum
með kúbverska heimilishjálp sem talar
spænsku þannig að hún er að verða
þrítyngd."
I bókinni sinni fjallar Steinunn
Ólína einmitt um bernskuna en hún
telur að lengi búi að fyrstu gerð og að
fullorðnir vanmeti oft hversu næm
börnin eru.
„Þau sjá lengra en nef þeirra nær.
Það er með börnin eins og dýrin. Kettir
og hundar koma og hugga eigendur
sína þegar þeim líður illa. Eins er með
börnin, þau hafa hárfína tilfinningu
fyrir því sem er í gangi og sjá auðveld-
lega undir yfirborðið. Þess vegna er svo
nauðsynlegt að sýna aðgát í nærveru
sálar." edda@dv.is
Húsið og bílskúrinn Fjöl-
skyldan festikaup á forláta
Kadilakk árgerð '84 sem er
klæddur bláu flaueli að innan.
Bríet og Elín Upplifa
eevintýrið með mömmu c
pabba. Hér í Disneylandi.
Varúð Að sjálfsögðu
varð að vara við fljúg-
andi nornum við húsið.
OANGER
V L°W FLYING >
\ WITCMES A
Ritstörf í bíiskúrnum Bil-
skúrinn hefur verið innrétt-
aðursem vinnuaðstaða og
lerofsalega kósí.
Bakgarðurinn Steinunn ersér-
staklega ánægð með bakgarðinn
og rósarunnana.
Hrekkjavaka Fjölskyldan er að aðlagast Ifinul
Bandarikjunum og hélt að sjálfsögðu hrekkjavok-
una hátiðlega. Mæðgurnar bjuggu sig sem vamp■
irur að ósk stelpnanna.