Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Blaðsíða 26
26. WmmmJZNÓVEMBMlOQS
tiajgsÉM pv
Ásgeir Kolbeinsson, dagskrárstjóri FM 957 og Popptíví, er einn heitasti piparsveinn bæjarins. Hann er
samt ekkert að flýta sér og bíður rólegur eftir hinni einu réttu. Enda veit hann hvað raunveruleg
ástarsorg er. Ásgeir hefur upplifað margt og allir virðast hafa skoðun á honum. Fáir vita þó hversu
náinn Ásgeir er syni sínum, ívan Degi, og hversu einlægur hann er. Hann er ekki maður sem fer í felur
með tilfinningar sínar. Hann er hinn mjúki maður. Metró.
„Ég hef algjörlega tvö andlit, sýni
það andlit sem fólk sér á mér á síðum
blaðanna og er svo allt annað andlit í
vinnunni eða heima hjá mér,“ segir
Ásgeir Kolbeinsson dagskrárstjóri.
Ásgeir segir það vera kost að kunna
að lesa fólk og er á því að hann fari í
ákveðið hlutverk sem eigi við í hvert
sinn. „Það gerir það að verkum á mótí
að fólk sér mig eingöngu á djamminu
eða á síðum blaðanna og hefur mest
gaman af því að lesa um þegar maður
misstfgur sig," segir hann og hlær.
Ásgeir á virkilega góða vini sem
hafa staðið með honum í gegnum
þykkt og þunnt, og hann er mjög
þakklátur fyrir það fólk sem hann á í
kringum sig. „Það er ekki sjálfsagt mál
að eiga góða að," segir hann og bætír
við að það sé einmitt fólkið sem þekki
hann hvað best.
Ásgeir hefur engan áhuga á því að
allir viti hvemig hann er. Hann segist
vera viðkvæmur og taka hlutína mikið
inn á sig. „En það er líka alveg ógerlegt
að þóknast öllum," segirhann.
Hann upplifir það oft að fólk sé
búið að dæma hann fyrirfram og að
hann komi fólki á óvart þegar það
kynnist honum. „Vá hvað þú ert allt
öðmvísi en ég hélt," segir hann að séu
ekki óalgeng viðbrögð frá fólki þegar
það kynnist honum. Ásgeir fær sér
sopa af kaffinu og brosir út í annað
áður en hann bætir við að hann líti á
sig sem úrræðagóðan vin.
„Ég held að ég sé vinur vina minna.
Já, og traustur, skipulagður og vinnu-
samur ijölskyldumaður. Sumir sýna
„Afþví ég veit hvað
ást er og hvað það
þýðir að vera í ást-
arsorg veit ég hverju
ég er að leita að
þegar kemur að ást-
armálum."
aðeins vissar hliðar á sjálfum sér og
þeir einir sem þekkja mann vita
hvemig maður í raun og vem er. Ég er
mjög viðkvæmur þótt ég beri það ekki
með mér og það skiptir mig máli hvað
öðrum finnst um mig. Ég á það til að
reyna að hafa áhrif á fólk og hegðun
mín mótast í samræmi við væntíngar
fólks til mín," segir hann og lítur
hreinskilnislega upp.
Þolir ekki slúður
„Ég þoli ekki slúðurblöð og finnst
ekkert ömurlegra en að opna þau og
sjá enn eitt ruglið sem verið er að
skrifa um mig," segirÁsgeir íbygginn á
svip. Lmynd hans er þess vegna í
margra augum sú að hann sé djamm-
fflcill sem vefji stúlkum um fingur sér,
helst til að fara illa með þær. „En það
er ekki annað hægt en að hlæja að
þessu," segirÁsgeir.
Ásgeir viðurkennir einnig að hann
getí orðið væminn en það sé nokkuð
sem þóttí ekki mjög karlmannlegt hér
í eina tíð. „Karlmenn gefa jafnan þá
mynd af sér að þeir séu töff en þegar á
reynir eru þeir viðkvæmir innst inni og
gera allt sem þeir geta til að koma í veg
íyrir að aðrir sjái þá hlið þeirra. Ég er
ekkert öðmvísi en aðrir, mjúkur að
innan."
Ásgeir segist vera meðvitaður um
sjálfan sig þegar hann er innan um
fólk og spá heilmikið í það hvémig
hann eigi að hegða sér í það og það
skiptið.
Pabbinn Ásgeir Kolbeins
FöðurhLutverkið er Ásgeiri afar
mikilvægt og það skín af honum þegar
minnst er á sólargeislann í lífi hans,
ívan Dag.
„Ég mundi aldrei skipta á neinu í
heiminum og syni mínum og þeim
kærleika sem ég ber til hans og hann
tíl mín. Þetta er hreinasta ást sem
hægt er að upplifa, það er einhvem
veginn ekki hægt að skýra það út fýrir
þeim sem eiga ekki bam."
í byrjun hræddi það hann að verða
faðir, enda fýlgir því mikil ábyrgð að
ala upp bam. „Sonur minn verður
þriggja ára í janúar og ég nýt þess í
botn að eiga stundir með honum. Það
er svo mikil ást á milli okkar og ég segi
honum það öllum stundum hvað ég
elska hann mikið," segir hann og ljóm-
aríframan.
Á kvöldin hefur hann vanið sig á
það að fara með faðirvorið með syni
sínum áður en hann fer að sofa. Þegar
foreldmm líður vel líður bömunum
vel lflca, og Ásgeir segir að það sé ótrú-
lega gott samband á mUli hans og
móður drengsins.
„Ég er mjög þakklátur fyrir það
hvað hún heáir reynst mér vel og ver-
ið góður vinur, enda finn ég það vel á
ívan Degi hvað honum h'ður vel þegar
sambandi okkar er þannig háttað,"
segir Ásgeir óhræddur við að tjá til-
finningar sínar til sonar síns ívans
Dags sem gefur honum svo mikið.
Er metró og hugsar um útlitið
Orðið metró er orð sem hefur fýlgt
Ásgeiri í þó nokkum tíma, bæði sem
jákvætt og neikvætt.
„Já, ég er metró í þeirri merkingu
sem það er í dag. Fyrir einhverju síðan
þóttí metró vera hallærislegt og menn
vom nánast taldir samkynheigðir. Ég
hugsa um útlitíð, ég spái í föt og vil líta
vel út,“ segir hann og fær sér meira
kaffi. Heldur síðan áffam:
„Ég pæli lflca mildð í lykt og ég held
ég hafi ofurlyktarskyn og lyktarminni,
ef ég finn vonda lykt man ég hana í
langan tíma, en að finna góða lykt af
konu er eitt af því kynþokkafyllsta sem
ég veit og ég legg mikið upp úr því að
lykta vel sjálfur og vera hreinlegur."
Hann er með viðkvæma og þurra
húð og álcvað að lcynna sér lcrem fýrir
herra og segist ekkert skammast sín
fyrir það að nota krem. „Krem em al-
veg eins fýrir karlmenn eins og konur:
Karlmenn þurfa að hugsa um húðina
eins og konur."
Ásgeir notar bestu sjampóin sem
hægt er að kaupa hverju sinni og bestu
raksápu sem hægt er að fá.
„Fyrir mér er að vera metró að líða
vel með sjálfum sér og pæla f útlitinu,"
segir Ásgeir sem heldur að metró-
maðurinn sé að verða jákvæð ímynd
fýrir karlmenn sem hugsa um útlitíð,
húðina og sjálfa sig rétt eins og konur.
Upplifði mátt bænarinnar
Trúin hefur verið feimnismál hjá
þjóðinni, hún er eitthvað sem fólk er
ekki tilbúið að tjá sig um opinberlega
og varla í góðra vina hópi.
„Já, ég er trúaður, sumt er ég mjög
trúaður á og annað minna trúaður á.
Ég trúi á líf eftir dauðann og trúi á
æðra vald, trúi því að allir hafi sinn til-
gang í h'finu, og er mjög andlega sinn-
aður. Mín reynsla er sú að ef þú send-
ir jákvæðar hugsannir út þá upp-
skerðu jákvæðni. Það þarf að koma
rétt fram til að geta þroskað sálina þó
að það misjafnt hjá fólki hvað það tel-
ur vera rétt," segir Ásgeir og útskýrir að
Guð sé ekki einhver persóna sem
hann trúir. á, heldur æðra vald og það
góða í manninum.
Ásgeir segist leggja áherslu á að fólk
komi heiðarlega fr am og komi vel fr am
við náungann og ræktí andann í sjálfu
sér á jákvæðan máta. Honum finnst
oft að fólk þurfi að lenda í erfiðri
reynslu tíl að breyta viðhorfum sínum
til sjálfs sín og náungans.
„Ég fer með bænir og sendi út já-
kvæðar hugsanir og bið um það sem
ég vil að gerist," útskýrir Ásgeir.
„Ég hef upplifað það sjálfur að hafa
beðið og trúað og fengið það sem ég
bið um. Hver sem það er þama úti,
Guð eða æðra vald, þá trúi ég að það