Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 27
„Ég mundi aldrei
skipta á neinu í heim-
inum og syni mínum
og þeim kærleika sem
ég ber til hans og
hann til mín."
sé einhver sem hlustar þegar beðið er
um hjálp hvort sem það er h'tið eða
stórt."
Enginn töffari
Mannshugurinn er ofarlega á blaði
hjá Ásgeiri og honum finnst virkilega
gaman að pæla í fólki, hvers vegna fólk
gerir hitt og þetta. Hann segist ein-
beita sér frekar að jákvæðum hlutum
en neikvæðum, ef það kemur upp
vandamál finnst honum gaman að
finna lausnir og vinna út frá jákvæðum
úrlausnum.
„Það er virkilega gaman að velta
fyrir sér af hveiju þessum gangi svona
vel og af hverju þessi sé alkóhólisti,
þetta em allt hlutir sem snúa að
mannshuganum."
Ásgeir. hefur mikinn áhuga á
sálfræði og hefur kynnt sér ýmsa hluti
sem snúa að mannshuganum eins og
t.d. NLP sem em líkön af því hvemig
samskipti hafa áhrif á fólk sem verður
fyrir huglægri reynslu.
„Það er námskeið sem ég virkilega
naut þess að vera á, lærði mjög mikið
um sjálfan mig og fólkið í kringum
mig,“ segir Ásgeir sem h'tur ekki út fyr-
ir að vera þessi svah töffari sem margir
halda eflaust að hann sé.
Ásgeir varð dagskrárstjóri FM 957
og Popptíví um mitt þetta ár. Þar með
gat hann látið margra ára reynslu
njóta sín og var þetta verkefni eitthvað
sem hann vildi takast á við.
Erfið ástarsorg
Ástin hefur bankað upp á hjá hon-
um eins og mörgum öðrum, hann hef-
ur ekki farið varhluta af því að lenda í
ástarsorg.
„Nei, ég er ekki að hitta neina sér-
staka og á erfitt með að verða ástfang-
inn, en ég hrífst mjög af konum og átti
mjög auðvelt með sambönd hér áður
fyiT og var sífellt að byrja í nýju og nýju
sambandi," segir Ásgeir en hann hefur
þroskast mikið síðustu ár. „Nú horfi ég
meira á heildarpakkann áður en ég tek
næsta skref."
Ef hann verður ástfanginn mun sú
kona eiga hjarta hans algjörlega, hann
mun koma til með að sýna henni al-
gjöran áhuga, athygli og ást.
„Af því ég veit hvað ást er og hvað
það þýðir að vera í ástarsorg veit ég
hverju ég er að leita að þegar kemur að
ástarmálum."
Að upplifa ástarsorg er eitt það erf-
iðasta sem Ásgeir hefur upplifað.
„Það að gefa sig algjörlega á vald
ástarinnar og fá ekki það sama til baka
er gríðarlega erfitt, sérstaklega þegar
maður hefur lagt allt í að láta hlutina
ganga upp,“ segir Ásgeir en það var
einmitt sú ást sem var þannig að hann
vissi hvað það var að vera raunverulega
ástfanginn.
f dag tekur Ásgeir lífinu með ró og er
ekki að ana út í neitt, honum finnst fólk
í kringum hann ekki vera að upplifa
raunverulega ást, sé meira hrifið og
finnst viðkomandi ekki vera að njóta
sín til fulls, fólk sé meira vinir heldur en
elskhugar og ýmislegt sem fólk gerir í
sambandi sem hann hefur ekki áhuga á
að gera ef hann er í sambandi.
,Að upplifa fullkomnun í ófuii-
komnuninni," segir Ásgeir glaðlega og
kyssir blaðamann bless á kinnina.
Hann ætlar að bíða eftir hinni einu
réttu sem hann veit að er til. Og allt hef-
ur hann að bera til að finna sér fallega
og vel gefna konu, hann er klár, smart
og sætur.
Tími sem aldrei kemur aftur
Guðmundur Már Ástþórsson á
tvö böm, Gísla ellefu ára og Ásdísi
sextán ára. Guðmundur á einnig 27
ára uppkominn son sem sjálfur er
pabbi. Guðmtmdur segir margt hafa
breyst frá því krakkamir vom litlir.
Hið hefðbtmdna helgarpabbahlut-
verk sé ekki hið sama. „Þau em orðin
svo stór og mikið að gera hjá þeim
báðum. Bæði Gísli og Ásdís em á
fullu í íþróttum svo maður hefur ekki
alltaf aÚar helgamar saman. í staðinn
reynum við að finna okkur lausa
tíma, hringjast á og hjálpast að. Hin
skipulega dagskrá er ekki í fyrirrúmi
heldur góðar samverustundir."
Fjölmargir kannast við hinn
týpíska helgarpabba hlaupandi með
bömin milii bíóhúsa og pítsustaða.
Slíkt segir Guðmimdur Már ekki vera
sinnstll.
„Nei, þegar krakkamir vom yngri
passaði ég mig á að gera helgamar
okkar ekki að stanslausum skemmti-
helgum. Krakkamir þurfa að fá þá til-
finningu að þetta sé bara venjuleg
helgi. Mér finnst mikilvægt að þeir
feður sem lenda í skilnaði átti sig á
þessu. Það á að njóta þessa tíma með
krökkunum í rólegheitum, kynnast
þeim og leyfa þeim að vera þau sjálf.
Þessi tími kemur ekki aftur því þegar
krakkamir eldast verður lausi tíminn
alltaf minni. Feðumir þurfa að for-
gangsraða rétt. Setja bömin í fýrir-
rúm. Þau em mikilvægari en vinnan
eða aðrir hlutir."
Og sú er raunin hjá Guðmundi
sem reynir þó eftir bestu getu að
fylgjast með íþróttaiðkun sonarins
og skólagöngu dóttur sinnar. „Ég tala
við þau nokkrum sinnum í viku í
síma og svo er dóttir mín mikið á
MSN. Ég sótti nú stelpuna í skólann á
þriðjudaginn og fór með hana á ráð-
stefnu. Um helgina verð ég svo með
strákinn og bamabamið. Hann er
reyndar æstur fyrir að fara í dýra-
garðinn og ætli maður leyfi það ekki
svona einu sinni."
Auglýsingasíml SSO 5000
Loksins býðst þér áskriftarpakki sem gerir lífið litríkara!
uv ’áyfiw
íííi*"1*}
rvfílOM*
ffiRTVW
mt. ^
Askrifendur fá
ekki bara DV
heldur líka
Hér&Nú og Sirkus
á aðeins 2400 kr. á mánuði
Stútfullur sportpakki á mánudögum, viðtöl, lífstíll, viðskipti, sakamál, skoðanaskipti, léttar fréttir,
ögrandi fréttir. Á fimmtudögum fylgir Hér og nú DV með glóðvolgar fréttir af fræga fólkinu. Sirkus
kemur sterkur inn á föstudögum með allt um menningar- og skemmtanalífið. Helgarblaðið endist þér
svo langt fram á sunnudagskvöld!
Með einu símtali í 550 5000 færðu allt þetta - og miklu meira á aðeins 2400 kr. á mánuði!
maria@dv.is