Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Page 35
UKUG/\RPAGUft, 1Z NQVZim 2005 Kristín Samúelsdóttir er rúmlega fimmtug. Undanfarin þrjú ár hefur hún verið frá vinnu vegna þung- lyndis. Hún leitaði margoft til geðdeildar í byrjun veikindanna en fór bónleið til búðar þar sem enginn vildi sinna henni þar. Hún hringdi örvæntingarfull í hjálparlínur sem reyndu eftir megni að liðsinna henni en raunverulega aðstoð var hvergi að hafa. Þegar hún var loks lögð inn á geðdeild var hún þar svo vikum skipti án þess að tekið væri á vandamálunum. Hún segist hafa fengið lyf af öllum tegundum og gerðum en samtalsmeðferð eða raunverulegar lausnir voru þar ekki í boði. Þegar hún útskrifaðist úr sinni fyrstu meðferð á geðdeild eftir tvo mánuði var hún örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr. Ég skammaðist mín fyrir aðstæður mín- ar, hafði sífellda sektarkennd út af krökkunum sem ég gat ekki sinnt al- mennilega og fannst ég ömurleg í alla staði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.