Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005
Fréttimfy
Andropov kjörinn aðalritari Kommúnistaflokksins
I dag
Á þessum degi árið 1982 tók Yuri
Andropov við völdum í Sovétríkjun-
um þegar hann var kjörinn aðalritari
Kommúnistaflokksins. Þetta gerðist
tveimur dögum eftir að Leonid
Brezhnev, fyrrverandi leiðtogi flokks-
ins, lést.
Andropov var fæddur í Rússlandi
árið 1914. Strax þegar hann var sextán
ára var hann orðinn virkur í Komm-
únistaflokknum. í síðari heimsstyij-
öldinni leiddi hann hóp sérsveitar-
manna sem starfaði innan svæðis
nasista. Framganga hans í stríðinu
vakti athygli og varð til þess að hann
fékk ýmsar stöður þegar stríðinu lauk.
Meðal annars var hann skipaður
sendiherra í Ungverjalandi árið 1953.
Árið 1956 sannaði hann hollustu sína
gagnvart flokknum þegar Ungverjar
gerðu uppreisn. Andropov blekkti for-
sætisráðherrann sem varð til þess að
sovéskir skriðdrekar komust nánast
óáreittir inn í landið. Affek Andropovs
í Ungverjalandi kom honum aftur til
Moskvu þar sem hann hélt áfram að
klífa metorðastiga Kommúnista-
flokksins.Árið 1967varhannskipaður
yfirmaður sovésku leyniþjónustunnar
KGB og gegndi því starfi allt til 1982.
Valdatíð Andropovs var ekki löng,
en þó viðburðarík. Hann gerði tilraun
áriö 1967 fluttu síðustu
tíu íbúarnir úr Flatey á
Skjálfanda. Nokkrum
árum áöur bjuggu þar
um hundrað manns.
til að rífa efnahag landsins upp, tók á
spillingu innan flokksins og réðst gegn
útbreiddum alkóhólisma meðal íbúa.
í utanrQdsmálum átti hann í hörðum
deilum við Bandaríkjamenn, en þar
var Ronald Reagan við völd. Frá 1983
átti Andropov við mikil veikindi að
stríða og hann lést þann m'unda febr-
úar 1984. Arftaki hans var Konstantin
Chemenko.
Úr bloggheimum
Bölvaðir apar!
„Mikið væri ég tii í að
vera 8 ára og byggja
snjóhús. Þegar maður
var lltill hlakkaði maður
til sumarsins þegar það
var snjór og maður hlakk-
aði til vetrarins þegar það var
sól. Það var ekkert skemmtilegra en
þegar fyrsti snjórinn kom. Meö árunum
varð maður samt stressaður fyrsta snjó-
daginn yfir þvl að strákarnir myndu kaf-
færa manni þegar maður kæmi I skól-
ann. Þessir bölvuðu apar.“
Alma Joensen
- citizencru.blogspot.com
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum andi stundar.
Stækkum flugvöllinn
- og þurrkum tjörnina upp
Flugvallarunnandi skrifar:
Nóg finnst mér komið af umræð-
um um flutning flugvallarins, smækk-
un hans eða eyðileggingu. Ég segi að
nú sé tími til að venda kvæði í kross
Lesendur
og snúa til sóknar. Það er tjörn þama
niðri í bæ sem hefur þann tilgang ein-
an að vera gróðrarstía skíts og drullu
sem kemur af fuglum þeim sem hana
sækja. Þetta er ógeðslegt mýrarvatn
sem var leitt þangað í hallæri þar sem
ekki vom til ráð við að fá allt þetta
vatn út í sjó. En nú höfum við tæknina
svo ég legg til að tjörnin verði þurrkuð
upp.
Þannig gætu borgaryfirvöld náð
enn meira landi undir byggingar. Ég
sæi Háskólann vera vel settan með
góðu athafnarými á þeim stað sem
tjömin flæðir yfir nú.
BESHBU9H
Einnig væri hægt að leggja Hring-
brautina í stokk, lengja norður-suður
flugbrautina yfir hana og þannig gera
Reykjavíkurflugvöll að góðum milli-
landaflugvelli sem gæti enn frekar ýtt
undir hagsæld Reykjavíkurbúa. Allir
vita að sveitarfélögin á Suðumesjum
lifa góðu lífl á þeim flugvelli sem þar
er og mér finnst tími til kominn að við
Reykvfldngar fáum eitthvað af þeirri
köku.
Landsins mesta ún/al af amerískum ísskápum með eða
án klakavélar. Hvítir, svartir eða stál
Verð frá kr. 128.900.- tneö klakavél------------------
f •
ir - ' , í:
*
Ú) Mt ! 51 J ,
i
£4;..
’’
K®
'
’M
30" ELFUNK-LCD skjár
AGTV3008
32" ELFUNK-LCD skjár AGTV3208
Magnari - Utvarp - DVD spilari
700 W.CD/DVD, VÍdeol (Rear AV),
Video2(rear AV), FM/AM (JPEG & MP3)
Sound Effect XTS, XTS Pro, DTS, Dolby
Digital, Dolby Prologic, Dolby Prologic II
DSP Souncf mode, 2Ch Stereo o.m.fl.
49.900-
Upplausn: WXGA 1366x768
Skerpa: 600:1
27' ELFUNK-LCD skjár AGTV2708
mr
*
6904~*
Kreditkort: kr. 51,397,-
Afborgunarverð: kr. 53.393.-
138.900.-
Upplausn: WXGA1366x768
Skerpa: 600:1
78.900.-
Uppiausn: WXGA 1280x720
Skerpa: 600:1
LG
RflFTeJÍIUERZLUNÍSLflNDSff
'ood
-ANNO 1929-
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • ri@ri.is
*kr.150.- greiðlsugjald bætist við .
hverja greiðslu.
Opið laugard. 11:00 -16:00
Ballerínan segir
Ungir, heimskir
Bretar
Ég bý í
London.
Flutti
þangað fyr-
ir rúmu ári
til að
mennta
mig í dansi
og leikhús-
listum og
leita frama
á sviði. Ég
hélt að
Englend-
ingar væru
svipaðir
okkur en
það er öðru nær. Meðalmaður-
inn veit ekki einu sinni hvar ís-
land er. Ég fæ viðbrögð við
þjóðerninu líkt og ég væri frá
Narníu. Fyrstu vikuna sýndu
skólafélagarnir mér símana sína
og tölvurnar og sögðu hægt: „G-
S-M-SÍMF' og „FAARTÖLVAA".
Ég er frá fslandi, ekki 1940. Ég
get aðeins réttlætt heimsku
þeirra með aldri. Meðalaldurinn
í skólanum er aðeins 19 ár (og
það verður að segjast, að Bretar
eru mjög seinir). Þeim finnst 25
ára ég ótrúlega gömul.
Eitt sinn komu tvær stelpur
upp að mér í tíma: „Svava,
segðu Lucy hvað þú ert gömul."
„25 ára," svaraði ég.
„Sko, ég sagði þér það," sagði
hún og sló létt í Lucy.
„Vá, þú hefur virkilega haldið
kúlinu þínu!" sagði Lucy þá.
Eftir þetta varð ég einhvers
konar goðsögn í skólanum. Fór
á endanum til eins skólastjórans
(hef 3). Enginn veit hvað hún er
gömul því: 1. Hún hefur verið
dansari alla ævi og 2. Maðurinn
hennar er lýtalæknir. Spurði
hvort ég gæti ekki verið yngri á
orði. „Elskan mín, í þessum
geira ljúga allir. Vertu bara 21
árs. Ég er búin að vera það svo
lengi að ég á börn sem eru eldri
en ég,“ sagði hún. Þannig var
aldursmálið leyst. Nú verð ég
21, allavega þar til dóttir mín
nær þeim aldri. Svo sé ég til.