Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2005, Síða 64
jr—* S t t I t
JT* J !j í !j Cl ^ 0 ÍÍ Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
|jrtafnleyndar er gætt. *-* j-* q *-• q fj q
SKAFTAHÚÐ24,105REYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMISSOSÓOO 5 "690710M 11124
Hófí 20
árum síðar
Á mánudaginn eru 20 liðin frá
því að Hólmfríður Karlsdóttir var
kjörin ungfrú heimur. Eftir það var
hún aldrei kölluð annað en Hófí og
varð sameign þjóðarinnar. Fáar
'"Konur hafa tekið heimsfrægð af
jafn miklu
æðruleysi og
Hófí. Eins og
það snerti
hana ekki.
Eins og
gerst hafí í
gær?
„Nei, ekki
alveg. Það
hefur svo
margt gerst
síðan sem
ómögulega
gat gerst á
nokkrum
dögum. Ég á
•-^‘þrjú börn."
Sterkasta
minningin?
„Það var
upplifunin í
heild sinni.
öll þessi ferðalög, en
það sem gaf mér mest var að fá
tækifæri til að vinna fyrir bágstödd
börn víða um heim."
Svo fórstu að vinna íieikskóla?
„Já, og hef gert í tuttugu ár með
smá hléum."
Þú slepptir heimsfrægðinni?
„Ég hef aldrei séð eftir því."
J "*• Ekki einu sinni í villtustu
draumum þínum ein á koddanum
heima?
„Aldrei."
Fegurðin fölnað?
„Ég vona bara að ég hafi þrosk-
ast eitthvað. Það gera allir og ég
vonandi líka. Mér finnst gott að
eldast. Sérstaklega þegar maður
hefur átt gott líf og það þakka ég
öllum í kringum mig. Ég hef verið
heppin í öllu sem að mér snýr."
Ekkert sukk?
„Ég hef lifað þokkalega heil-
brigðu lífi, er heilsuhraust og er
'"^þakklát fyrir það."
Haida upp á daginn?
„Þessi dagur verður bara venju-
legur eins og aðrir dagar."
Man fólk eftir þér?
„Ég get alveg gengið um Smára-
lindina án þess að fylgst sé með
mér."
Passar upp á útlitið?
• „Bara eins og gerist og gengur.
Ég skokka aðeins og reyni að gera
eitthvað fyrir sjálfa mig.“
Áttuhund?
„Nei," segir Hófí sem varð al-
heimsfegurðardrottning fyrir 20
árum. Á mánudaginn.
• Það verður mikið
um dýrðir við Lækjar-
götuna í Reykjavík á
þriðjudaginn. Þá verð-
ur ævisaga Jóns Ólafs-
sonar athafnamanns
kynnt á blaðamanna-
fundi fyrir hádegi. Um
kvöldið verður svo efnt
til veislu í amerískum stíl
þar sem allra sem getið er
í bókinni er boðið; hátt í
þúsund manns. Hátíðin
verður haldin í veislu-
salnum í iðu við Lækjar-
götu og þar mun bókar-
kápan tróna, stækkuð
hundraðfalt alveg eins og
í bíómyndum...
• í ævisögu Jóns segir
frá því þegar Ingi-
mundur Sigfússon í
Heklu, síðar sendi-
herra, var stjórnar-
formaður Stöðvar 2.
Byrjaði Ingimundur
alla fundi með því að
kyssa alla stjórnarmenn
á kinnina nema Jón
Ólafsson. „Ég stóð alltaf
upp og fór og kyssti Ingi-
mund," segir Jón Ólafs-
son um þetta. „Ég ætlaði
ekki að láta skilja mig
útundan."
WRINKLE DE-CREASE
Nærandi og vinnur á móti hrukkumyndun
Rakagefandi næring
Fyrstu hrukkurnar? Spyrntu á mótl
öldrunarferlinu, gerðu eitthvað!
Hrukkuvarnarkrem, rakagefandi húðnæring með Boswelox™.
Strax eftir einn tíma dregur úr hrukkunum.
Á 4 vikum dregur verulega úr þeim.
•*——►
WRINKLeS
Langvarandi rakagjöf,
fitulaust innihald, klístrast ekki.
Berið á eftir rakstur, hefur róandi áhrif á húðina.
www.lorealmen.com
HinÓgurlegaFagraíslenska!
/
L'ORÉAL
PARiS „
men expert