Freyr

Årgang

Freyr - 01.06.1954, Side 5

Freyr - 01.06.1954, Side 5
FREYR 173 ARNÓR SIGURJÓNSSON: Helgi á Hrafnkelsstöðum og Björgvin í Garði Helgi Haraldsson bóndi á HrafnkelsstöS- um hefir í 1.—2. og 4.—5. tbl. Freys lagt mörg góð orð í belg um sauðfjárrækt. Hann fer mjög góðum orðum um fjárrækt Þingey- inga, enda finnst honum hann vera þeirra lærisveinn. En hann fer heldur illum orð- um um þrjá Þingeyinga, er hann hefir til umræðu jafnframt sauðunum, okkur Björg- vin i Garði og Jón i Felli. Ég læt ræðu Helga um Jón í Felli af- skiptalausa. Hvort tveggja er, að Jón hefir gefið nokkurt tilefni til þeirrar ræðu, og svo mun hann, ef ég þekki hann rétt, vilja svara fyrir sig sjálfur. Ég hefði líka látið því ó- svarað, er Helgi vikur að mér, ef eigi hefði annað komið til. Hann líkir mér við Leitis- Gróu fyrir það, að ég vitna í gagnrýni Björg- vins Árnasonar í Garði á fjárrækt Þingey- inga og kalla hann einn af beztu fjármönn- um þeirra. Ég tek þar upp prentuð orð og vísa til þess, hvar þau hafi birzt. Þetta finnst Helga hið sama og þegar Leitis-Gróa vísaði til sinna heimilda: „Ólyginn sagði mér.“ Mér finnst ör hans hafi geigað svo frá markinu, að hún muni mér tæplega ban- væn. En þvi, sem Helgi víkur að Björgvin í Garði, finnst mér ég þurfa að svara. Björg- vin er inn í þessar umræður kominn, af því að ég hefi kallað hann fram. Fyrir það vill Helgi ræna hann öllum fjármannsheiðri og segir, að sér „gæti frekar dottið í hug, að hann væri meira en lítið geggjaður." Nú skyldu menn ætla, að Helgi væri aö ræða um sér ókunnugan mann, og yrði hon- um hér á slysni óvart. Svo er ekki. Björgvin hefir frá fæðingu verið næsti nágranni hinna gömlu lærifeðra Helga í fjárræktinni, Grænvetninga í Mývatnssveit. Hann er svo einkennilegur maður, að hann gleymist eng- um, er séð hafa hann einu sinni og við hann rætt, hvað þá oftar, eins og hlýtur að hafa verið um Helga. Heyrt- hefi ég það, að fyrir hafi komið, að borin hafi verið saman fjárrækt Björgvins og Grænvetninga, enda hafa hvorir þar sína leið farið. En þá þekki ég Grænvetninga illa, ef þeir hafa nokkru sinni látið sér til hugar koma þvílíkar um- sagnir um Björgvin sem Helgi lætur falla. Ég minnist þess, er ég fyrir mörgum ár- um varð samferða Björgvin síðasta áfang- ann, er hann rak fé sitt til sláturhúss að Einarsstöðum í Reykjadal. Ég held þetta hafi verið haustið 1922, en það getur hafa verið 1—3 árum síðar. Hjörðin var ekki með venjulegu þingeysku fjárbragði, en minn- isstæðast er mér, að þarna var margt tví- lembinga, er sumir gengu hlið við hlið, enda var það til, að mæður þeirra voru samferða þeim á aftökustaðinn. Þarna voru og nokkr- ir einlembingar forkunnar vænir, en ekki að sama skapi fagrir fyrir mitt þingeyska auga. Næsta dag frétti ég, að meðalfallþungi dilk- anna hefði verið 18.5 kg, en einlembing- arnir hefðu skilað 20—23.5 kg föllum. Þetta þótti umtalsverð sláturvigt, og urðu ýmsir til að telja þetta þá sláturvigt, er bezt væri í sláturhúsinu það haustið raunverulega, en aðrir vildu miða við tölurnar einar. Með- al annars var um þetta rætt, þar sem Bene- dikt Guðnason bóndi á Grænavatni var nærri staddur. Féllu þá orð um það, að meiri hefði verið sláturvigt þeirra Græn- vetninga. „Hvað er að marka það?“ sagði Benedikt. „Við vorum búnir að selja úr- kastið úr okkar lömbum, en Björgvin fór með öll sín, líka minnstu tvílembingana." Benedikt hafði allan drengskap til að við- urkenna það skilyrðislaust, er Björgvin tókst vel. Björgvin hefir farið sínar leiðir í fjár- ræktinni, ekki þær, er fjölfarnastar hafa

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.