Freyr - 01.06.1954, Qupperneq 19
FRE YR
187
24 kg., sjá töflu 2. Ennfremur urðu hlut-
fallslega fleiri tvævetlur lamblausar af
þeim, sem misstu veturgamlar en af báðum
hinum flokkunum. Annars er ekki hægt að
draga ákveðnar ályktanir út frá þessu
dæmi, því að í mörgum tilfellum er það
sjúkdómsfyrirbrigði, að kindin missir lamb-
ið, einkum ef hún lætur fóstri, eins og
margar þessar gimbrar gerðu. Ennfremur
geta verið í hópi lambsgotnanna einstakl-
ingar, sem ganga með erfðagalla, sem valda
vanþroska eða ófullburða fóstri. Helzt má
álykta út frá þessu, að aldrei eru það með-
mæli með á til ásetnings, að hún hafi
misst lamb.
V. Lömb undan skyldum og óskyldum
foreldrum.
Haustið 1953 var gerður samanburöur á
dilkum undan skyldum og óskyldum for-
eldrum á Hesti. Samanburðinum var hagað
þannig, að þeim ám frá bæjum á Vestfjörð-
um, sem HestsbúiÖ átti einnig hrút frá, var
íkipt í tvo flokka, sem jafnasta, áður en
fengitími hófst. Ærnar í öðrum flokknum
frá hverjum bæ fengu hrút frá sama bæ,
sem í hverju tilfelli mun hafa verið meira
og minna skyldur ánum, ef til vill hálfbróðir
margra þeirra. Ærnar i hinum flokknum
fengu við óskyldum hrútum, þó fengu
hyrndar ær við hyrndum hrútum og koll-
óttar ær við kollóttum hrútum.
Tafla 3. Meðalþungi einlembingsdilka undan skyldum og óskyldum
foreldrum, kg:
Mæður: Lömb undan skyldum foreldrum
Hrútlömb Gimbrarlömb
Lömb undan óskyldum foreldrum
Hrútlömb Gimbrarlömb
03
SJ p
— V ’So
Ct 'O c
C3 '5b o
Tvævetlur frá o & £í. 7 19
Arngerðareyri Roði 5 47.0 41.1 19.3
Laugabóli Steinn 4 42.5 41.5 I7.fi
Skjaldfönn Skjöldur 2 39.3 42.0 16.5
Kinnarstöðum Prúður 8 41.9 40.2 16.8
Vatnsfirði Hnykill 3 42.3 42.9 18.2
Eyri í Sevðisf. Nökkvi 3 41.2 40.5 16.7
Samt. og vegin meðaltöl 25 42.8 41.1 17.6
a 'C3 '5b C3 'bO a V Q ’5b n w '03 ’5b
19 3 a c3 72 19 19
H A i— A H A
4 36.5 Skjöldur 5 43.6 39.4 17.2 8 40.3
3 35.7 Grettir o.fl. , 2 46.0 42.4 19.5 5 35.3
3 35.2 Nökkvi 3 41.7 39.2 16.3 2 39.3
6 35.8 Roði 8 44.4 41.1 18.2 8 40.1
5 34.5 Malkus 5 46.5 41.8 19.4 4 39.3
Skjöldur 5 44.1 40.4 17.8 2 40.5
!1 35.5 28 44.4 40.7 18.1 29 39.2
Tafla 3 sýnir, að hrútlömbin undan
skyldum foreldrum vega 1.6 kg. minna að
meðaltali en undan óskyldum foreldrum, og
meðalfallþungi þeirra fyrrnefndu er 0.5
kg. lægri en þeirra síðarnefndu Þess skal
getið, að tveir skyldleikaræktuðu og fjórir
óskyldleikaræktuðu lambhrútarnir voru
settir á vetur. Fallþungi þeirra hvers fyrir
sig er reiknaður miðað við meðalkjötpró-
sentu hrútlamba undan sama hrút í sama
flokki. Einnig sýnir tafla 3, að gimbrar-
lömbin undan skyldu foreldrunum vógu 3.7
kg. minna að meðaltali en undan óskyldu
foreldrunum. Sá munur mundi hafa svarað
til a. m. k. 1.6 kg. á meðalfallþunga hefði
gimbrunum verið slátrað. Að vænleikamun-
ur skyldleikaræktuðu og óskyldleikarækt-
uðu lambanna skuli vera meiri á gibrunum
en hrútunum orsakast fyrst og fremst af
því undarlega fyrirbrigði, að hrútlömbin
undan ám frá Arngerðareyri og hrútnum
þaðan, Roða, eru mun vænni en hrútlömb-
in undan hinum Arngerðareyraránum og
óskyldum hrút. Roði er sá eini af þessum
hrútum, sem að þessu sinni gefur jafn
væn lömb að meðaltali með skyldum ám og
óskyldum. Hinn mikli munur á vænleika
hrúta og gimbra undan Roða og ánum frá