Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2006, Page 21
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 21
HannahTeter, bandarískur táningur, vann gullverðlaun í
keppni í hálfpípu á snjóbretti á vetrarólympíuleikunum í
Tórínó i gær. Allt útlit var fyrir að þær bandarísku myndu
hirða öll verðlaunin en glæsileg frammistaða hinnar norsku
Kjersti Buaas í lok keppninnar tryggöi henni brons.
Bandarísku
bretlastelpurnar
tóku gull og silfur
X
Gull- og silfurstelpur Gretchen
Bleiler og Hannah Teter frá Banda-
ríkjunum. Nordic Photos/Getty
Bandaríkjamenn geta vel við
unað eftir keppni í hálfpípu hjá
snjóbrettakonunum en þeir áttu
fulltrúa í fyrsta og öðru sæti. Sig-
urvegarinn á leikunum í Salt Lake
City fyrir fjórum árum, hin
bandaríska Kelly Clark, varð hins
vegar að sætta sig við fjórða sætið
eftir að Kjersti Buaas frá Noregi
stal bronsinu með góðri frammi-
stöðu.
Bandarískir keppendur hafa
því unnið tvenn gullverðlaun í
keppni á snjóbrettum undan-
farna daga en í fyrradag stóð
Shaun White uppi sem sigurveg-
ari í keppni karla. Hann er ekki
nema nítján ára og það er reynd-
ar Teter líka.
Keppt er í tveimur umferðum í
úrslitakeppninni í greininni og er
gefin einkunn fyrir frammistöðu
keppenda. Betri einkunnin er svo
látin gilda. Teter gaf aldrei færi á
sér í keppninni en hún hlaut 44,6
stig af 50 mögulegum í fyrri um-
ferðinni og bætti svo við tveimur
stigum í þeirri síðari.
,Ætli ég hafi ekki verið eilítið
annars hugar fyrr í dag,“ sagði Te-
ter en hún varð í ekki nema
fimmta sæti í undankeppninni en
þær tólf bestu komust áfram í úr-
slitin. „En þá ákvað ég bara að
taka þessu með ró og það tókst.
Þetta er ótrúlegt," sagði hún.
Gretchen Bleiler var hæst-
ánægð með silfurverðlaunin en
hún hefur undanfarið mátt glíma
við hin ýmsu meiðsli. „Silfur-
medalían hefur mikla þýðingu
fyrir mig. Ég þurfti að ganga í
gegnum mikið erfiði til að komast
hingað á leikana," sagði hún.
Bronsverðlaunahafinn, hin
norska Buaas, sagði að hún hefði
ákveðið að gefa allt í seinni ferð-
ina sína til að koma í veg fyrir að
bandarísku stúlkurnar sópuðu
öllum verðlaununum til sín. „Ég
þurfti að taka á mínum stóra en
ég vissi að brögðin mín eru ekki
jafn góð og hjá þeim bandarísku,"
sagði hún. „Þær kunna sitt fag en
ég er ánægð með að Evrópa á
sinn fulltrúa á verðlaunapallin-
um.“ eirikurst@dv.is
Æfingar fyrir brun kvenna tóku sinn toll
Þrjár slösuðust í brunæfingum
Þær Lindsey Kildow, Allison For-
syth og ríkjandi ólympíumeistarinn,
Carole Montillet-Carles frá Frakk-
landi, lentu allar í slæmum byltum er
þær tóku þátt í æfingum fyrir
brunkeppni kvenna sem fer fram í
dag. Montillet-Carles, var flutt á
sjúkrahús og mun hafa marið rifbein
og hlotið meiðsli á baki. Ekki var full-
komlega ljóst í gærkvöldi hvort hún
gæti varið titii sinn í dag.
„Það verður erfitt," sagði Gerard
Rougier í franska ólympíuliðinu um
möguleika Montillet-Carles að keppa
í dag. „Hún verður skoðuð vandlega
og munu læknar meta ástandið þegar
nær dregur."
Montillet-Carles missti stjóm á sér
er hún var að lenda eftir hátt stökk í
miðri brekku og lenti í kjölfarið í ör-
yggisnetum brautarinnar.
Meiðsli hinnar bandarísku Kildow
em ekki eins alvarleg og óttast var í
fyrstu en hún gisti engu að síður á
sjúkrahúsi í nótt. Hlaut hún áverka á
höfði og á baki. Forsyth, hins vegar,
sleit krossbönd í hné og verður frá í
marga mánuði af þeim sökum.
Dagný Linda Kristjánsdóttir náði
48. besta tímanum í gær og verður
með rásnúmer 57 í dag en 68 kepp-
endur em skráðir til leiks. Sindri Már
Pálsson keppir í alpatvíkeppni í dag
og náði hann einnig 48. besta tfma
brunæfingarinnar í gær.
eirikurst@dv.is
Hart barist í krullu
Keppt var bæði í karla- og
kvennaflokki í krullu á ólympíu-
leikunum í gær. Hér á myndinni
sjáum við liðsmenn Svía sem
unnu góðan sigur á Ný-Sjálend-
ingum í gær. Það var hins vegar
ólíkt hlutskipti ólympíumeistar-
anna en hjá körlunum urðu Norð-
menn að játa sig sigraða gegn
Bandaríkjamönnum en í flokki
kvenna hóf lið Breta titilvörn sína
með 3-2 sigri á Dönum.
í vetur
Ný tæki - Betra verð!
SSdT 17.900.-
12.900.-
SLENDEKTONE*
aLLLíydr..kr.opp.iriD
HREYSTI
vinnur gegn fílapenslum og bolum.
Bindur bakteríur og húðflögur og dregur þær til sín
Þannig getur þú haldið húð
þinni mjúkri og hreinni og
komið í veg fyrir bólur.
Fæst i apótekum
Augnháralítur
og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
Augnháralitur og augnbrúnalitur sem
fagaðilar nota. Auðveldur í notkun.
Allt sem þarf í einum kassa - þægilegra
getur það ekki verið.
SÖLUSTAÐIR:
APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
FOSFOSER
MEMORY