Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2006, Blaðsíða 23
py Lífíö sjálft
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 23
"M'" -m
Dagur B .Eggertsson
19.06.1972
Llfstala er reiknuð út frá fæðingardegi.
Hún tekur til eiginleika sem eiga öðru
fremurað móta lífviðkomandi.
Lífstala Dags er 8.
Eiginleikar sem tengjast þessari tölu
eru: Framkvæmdir, félagsleg staða,
heilindi og efnisleg markmið - hugar
velað náunganum.
Árstalan 2006 er 6.
Árstala er reiknuð út frá fæðingardegi
og þvi ári sem við erum stödd á. Hún á
að gefa vísbendingar um þau tækifæri
og hindranirsem árið færir okkur
Ríkjandi þættir I þessari tölu eru:Ast,
fjölskylda, heimiti og ábyrgð.
Tekst rétt á við
hindranir
Afmælisbarnið: Elva Dögg Melsteð lottókynnir
er 27 ára í dag.
„Þessi kona er kjörkuð, gáfuð og fær um að
takast jákvætt á við erfiðar aðstæður. Hún
tekst á við hindranir á opinn og hreinskilinn
hátt. Hér er á ferðinni góð vinkona og skiln-
ingsrík. Hún áttar sig fljótt og örugglega á að-
stæðum þegar kemur að ákvarðanatöku varð-
andi framhaldið hjá henni því tækifærin
bíða hennar handan við hornið eftir að
hún ákveður hvert hún ætlar sér."
Guðbjört Erlendsdóttir er frá Garðabæ en valdi sér að fara norður í Háskól-
ann á Akureyri. Guðbjört býr á háskólagörðunum ásamt þremur öðrum stelp-
um og mun ljúka námi í vor. Hún bauð Lífsstíl í heimsókn.
andrumsloft a Akureyri
sunnan
„Ég vildi skipta um umhverfi og
því varð Akureyri fyrir valinu," segir
Guðbjört Erlendsdóttir, 24 ára há-
skólamær frá Garðabæ, sem ætlar
að klára samfélags- og hagþróunar-
fræði í Háskólanum á Akureyri í vor.
Guðbjört sér ekki eftir eftir að hafa
skellt norður í háskólann.
Stefnir út í master
„Ég á enga ættingja hér og
þekkti eiginlega engan þegar ég
kom en þetta hefur verið fínt," seg-
ir Guðbjört og bætir við að hún
ætli að flytja aftur suður þegar
skólanum lýkur. „Það er fi'nt að
vera hérna en þar sem fjölskyldan
býr fyrir sunnan býst ég við að
enda þar.“ Fyrst ætlar Guðbjört að
klára masterinn í útlöndum. „Há-
skóli Sameinuðu þjóðanna í Tókýó
kemur til greina og eins nokkrir
skólar í Bandaríkjunum og
Kanada. Ég er svona að kíkja í
kringum mig og það er margt sem
heillar, en Evrópa þó síst."
Aflappaðra fyrir norðan
Guðbjört segir allt öðruvísi að
búa fyrir norðan en á höfuðborgar-
svæðinu. „Andrúmsloftið er allt
öðruvísi. Hér allt miku afslappaðra
og ég verð vör við lætin þegar ég
skrepp suður." Guðbjört er dómari í
listhlaupi á skautum og skreppur
því suður til að dæma og hitta fjöl-
skylduna.
„Það er afar einhæft
að kíkja á skemmti-
staðino svo maður
nennir sjaldnast út,
enda erþetta alltaf
eins."
Sambúðin gengur vel
Guðbjört býr á háskólagörð-
unum ásamt þremur öðrum
stelpum. Þær þekktust lítið áður
en þær fóru að búa saman en
sambúðin hefur gengið vel. Guð-
björt segir þær ósjálfrátt eyða
meiri tíma saman en með öðrum
og í dag séu þær orðnar góðar
vinkonur. „Við höfum búið sam-
an í tvö ár og andinn hjá okkur er
góður og því báðum við að um fá
að vera áfram saman," segir hún
og bætir við að vistarverurnar séu
fínar og að þær hafi ekki yfir
neinu að kvarta.
Einhæft skemmtanalíf
Guðbjört segir félagslífið í há-
skólanum fínt. Þar sé lítill en
samrýmdur hópur sem skemmti
sér reglulega saman. „Það er fullt
að gerast hjá okkur," segir hún en
bætir við að hún sé þó orðin leið
á skemmtanalífinu í bænum.
„Það er afar einhæft að kíkja á
skemmtistaðina svo maður
nennir sjaldnast út, enda er þetta
alltaf eins. Við förum hins vegar
meira á kaffihús og spjöllum."
Hún bætir því við að lokum að
Akureyri sé fínn staður og þá sér-
staklega fyrir námsmenn og fjöl-
skyldufólk. „Háskólinn hér er
góður og umhverfið er afar fjöl-
skylduvænt."
indiana@dv.is
m
Gígja
Þórðardóttir
Víílllöan
Rannsóknirá
sviði forvarna
gegn hjarta-
og æðasjúk-
dómum und-
irstrika slfellt
betur mikil-
vægi hreyf-
ingarfyrir
hjartað. Fram
til þessa hafa þrír stærstu áhættuþættir
hjarta- og æðasjúkdóma verið reykingar,
blóðfitutruflanir og hækkaður bióðþrýst-
ingur. Fleiri þættir koma til og nú er Ijóst að
hreyfingarleysi/kyrrsetuliferviðurkenndur
áhættuþáttur. Hreyfingarleysi almennings
á öllum aldri á Vesturlöndunum er algeng-
ara en hinir áhættuþættirnir og þar með
einn stærsti áhættuþáttur hjarta- og æða-
sjúkdóma.
Hreyfing dregur úr áhrifum annarra
áhættuþátta
Regiubundin hreyfmg hefurjákvæð áhrifá
aðra áhættuþætti hjarta- og æðasjúk-
dóma.
Hrayfing miHhræg
- Hár blóðþrýstingur: Kyrrsetufólk er I
margfalt meiri hættu að greinast með
hækkaðan bióðþrýsting. Reglubundin
hreyfíng hefur lækkandi áhrifá blóðþrýst-
inginn.
- Reykingar: Reykingamenn sem æfa mikiö
og reglulega eru líklegri til að takast að
hætta að reykja en reykingamenn sem
hreyfa sig lítið.
- Blóðfita: Reglubundin hreyfing virðist
hafa áhrifá HDL-kólesteról (sem stundum
er kallað góða kólesterólið).
- Offíta: Regtubundin hreyfmg hjálparl
baráttunni við aukakílóin. Offíta hefur
slæm áhrifá blóðþrýsting, blóðfítu og syk-
urþol.
Hreyfðu þig reglulega - samtals að
minnsta kosti 30 mín á dag.
Miðlungserfíð hreyfíng samtals 30 mln á
dag gerir hjartanu gott. Llkamleg áreynsla
þarfekki að vera mjög erfíð til að skila ár-
angri. Það sem skiptir máli er að fólk til-
einki sér að hreyfa sig I tengslum við at-
hafnir daglegs llfs. Sérstaklega er mikil-
vægt að kyrrsetufólk breyti mynstrinu og
hreyfísig daglega.
Hreyfíng sem hluti afat-
höfnum daglegs llfs:
Heima við...
- Garðvinnan ergóð hreyf-
ing.
- Gakktu eða hjólaöu útí búð.
- Fáðu þér göngutúr fyrir eða eftir
máltlðir.
- Losaðu þig við fjarstýringuna á sjónvarp-
inu.
-Istað þess að iáta færa þér drykk eða
snakk f sjónvarpssófann skaltu standa upp
sjálf/ur og ná Ihollan bita (eða slökkva á
imbanum).
- Taktu til heima hjá þér.
- Stundaðu kynllf.
ívinnunni...
- Vertu hugmyndarik/ur, einkum efþú
vinnur kyrrsetuvinnu.
- Vinna fyrirframan tölvu krefts lítillar
hreyfmgar!
- Þvl ekki að standa upp meðan þú talar I
slma?
- Gakktu niður á næstu hæð I stað þess að
senda tölvupósteða hringja.
- Gakktu stigana frek-
arenað takalyftuna
eða farðu út úr lyft-
unni nokkrum hæðum
fyrrenþú þarftog
gakktu upp.
- Notaðu hádegishléið,
margir vinnustaðir hafa komið
sér upp gönguklúbbum.
f viðskiptaferðum...
- Gerðu blóðrásaraukandi æfingar um
borð I vélinni.
- Gakktu I flugstöðinni I stað rúllubretta og
-stiga (efþú ert ekki klyfjuð/aður affar-
angri.
- Veldu hótel sem býður upp á sund- eða
llkamsræktaraðstöðu.
- Geröu ráð fyrir hreyfíngu þegarþú skipu-
ieggur tímann.
- Hafðu hreyfíngu I skipulaginu rétt eins og
fundi sem þú þarft að sækja.
Glgja Þórðardóttir, Iþróttastjóri Hreyfi-
greiningar & sjúkraþjálfari BSc., skrifar
vikulega pistla I Lffsstll á þriðjudögum.
■ Æ ] 1 't 1
tjörr iU' :,pO
Vatnsberinn (20.jan.-1s. febr.)
■ 1
Hæfileikar þínir á sviði lista ||
eru öflugir en oft á tíðum ónýttir sök-
um óöryggis. En ákafi og rómantík efla
hamingju þína þessa dagana svo sann-
arlega. Leyfðu þér að elska.
F\skm\( (19.febr.-20.mars)
Eitthvað tengist þessi ferð við-
skiptum, námi og eða flutningum þegar
stjarna þín er skoðuð um þessar mundir.
Reyndu fyrir alla muni að vera ekki lang-
rækin(n), það eyðileggur annars fullkom-
iðjafnvægi þittefmarka má fiskinn.
HlÚtUnm (21. mars-19.apríl)
Birtan er mikil hér þegar
stjarna þín er könnuð. At-
hugasemdir þínar eru marktækar fyrir
þig, gleymdu því eigi. En mundu að
undirmeðvitund þín tekur mark á öllu
sem þú segir og hefur sagt.
Nautið (20. apríi-20. mal)
Ekki dæma neinn eða neitt
næstu misseri heldur opnaðu hugann
gagnvart umhverfi þínu með jákvæð-
um hætti.
IvfamtM (21.mal-21.júnl)
Sköpunarmáttur þinn tak-
markast í dag af núverandi aðstæðum
á einhvern hátt sem þú ein(n) skilur án
efa og ættir að takast á við það hið
fyrsta.
j|i|| Krabbinn(22.júw-22jii;o
Ekki leyfa veraldlegum hlut-
um að tefja þig, kæri krabbi.
Hér kemur fram að þú virðist vinna
mikið og mættir þar af leiðandi huga
betur að áhugamálum þínum sem eiga
það til að gleymast í amstri dagsins.
LjÓnÍð (23.júli-2l ágúst)
Fjölhæfni einkennir stjörnu
Ijónsins sem og stálminni sem kemur
að góðum notum. Á þessum árstíma
gætir þú hins vegar fundið fyrir tóm-
leika en það líður hjá innan tíðar og þú
finnur fyrir innri ró og samræmi.
Meyjan (23. ájúsf-22. sepfj
uAVw • 111 "II
Taktu skref til baka í hugan-
um og áttaðu þig á því hvað hefur orð-
ið á vegi þínum og hvernig þú hefur
brugðist við (á við um viðburði helgar-
innar).
Vogin (23.sept-23.okt)
Gleymdu því aldrei hve
lánsöm/lánsamur þú virkilega ert.
Staldraðu við og efldu það góða innra
með þér og gefðu fólkinu sem ann þér
tíma þinn og athygli oftar. Gerðu áætl-
anir um lausnir sem tengjast þér og líð-
an þinni en þar með leggur þú grunn-
inn aðframtíð þinni.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.a6v.)
Hér kemur fram að þú býrð
yfir ágætum gáfum en ættir að venja
þig á að starfa ekki jafn mikið í einrúmi
og þú hefur jafnvel tileinkað þér und-
anfarið.
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.des.)
Þér er ráðlagt að njóta þess
sem þú hefur nú þegar enn betur en
þú hefur gert þér. Næstu daga er þér
einnig ráðlagt að horfa til himins og
| óska þér því óskir bogmanns rætast ef
hann einsetur sér alfarið að hjálpa ná-
unganum.
Steingeitin (22. fe.-?9.jon.j
Fólk fætt undir stjörnu stein-
geitar býr yfir öflugum sköpunarmætti
sem það ætti að tileinka sér enn betur
og nota þegar það lætur sig dreyma og
framkvæmir.
SPÁMAÐUR.IS
wmMtömMmmmmmmMmmmmmm