Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2006, Qupperneq 27
jyV Fréttir
T
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR2006 27
Lesendur
Salman Rushdie dæmdurtil dauða ííran
Þennan dag árið 1989 dæmdi
íranski einræðisherrann Ayatollah
Khomeini breska rithöfundinn Salm-
an Rushdie og útgefendur hans til
dauða. Ástæðan var bók Rushdies,
Söngvar Satans, sem múslimar víða
um heim töldu guðlast gegn Allah,
spámanninum Múhameð og Kóran-
inum. Rushdie mótmælti þeirri túlk-
un og sagði að það væri ekki sannleik-
anum samkvæmt að hún væri guðlast
gegn íslam.
Miklar öryggisráðstafanir voru
gerðar á vegum bresku lögreglunnar
til að vemda Rushdie. Það hefur tekist
Rushdie og eig■
inkonan Padma
Lakshmi Rushdie
gifti sig á slðasta
| ári, en á alltaf
dauðadóm yfir
höfði sér.
DV-mynd AP Photo
í dag
eru 18 ár síðan bjarndýr
var fellt í Fljótum í Skaga-
firði. Það reyndist vera
ungur húnn.
hingað til, en fáir vita með vissu hvar
Rushdie býr núna. Meira að segja
hjartahlýi söngvarinn, áður þekktur
sem Cat Stevens, studdi dauðadóm
Khomeinis.
Nýr forseti írans opinberaði
snemma á síðasta ári að dauðadómur
Rushdies væri enn í gildi. Irönsk
stjómvöld og samtök innan landsins
hafa heitið andvirði tæplega 200
milljóna króna til handa þeim sem
deyða myndi höfundinn.
Úr bloggheimum
Úrprinsessu idrottningu
„Ég mætti næstum alltof
seint á eigin árshá-
tið...Næstum, nota
bene,þeir sem mig
þekkja (ath karlkyns
lesendur) vita að það
tekur þessa prinsessu ekki
langan tíma að verða að
drottningu... ég hljóp heim I kjólinn, valdi 80
den sokkabuxur svoað kollegar minir þurftu
ekki að óttast„karlmennsku“ mina, skellti
augnskugganum á með visifingri, maskari á
efri augnahár og vaseline á varirnar.. voila...
beautiful!“
Sigríður Dögg Arnardóttir -
sigga_dogg.blogspot.com
Eggertsson-bakhlutinn
„Afhverju heldur faðir
minn aðþað sé hrós
að segja fólki að það
sé með stóran rass?
„Mikið ertu heppin að
hafa erft Eggertsson-
bakhlutann Stefania."Takk
frábært, þetta á eftir að gera kraftaverk fyrir
sjálfstraustið. Þetta var reyndar alveg eins og
atriðið úr Simpson þegar Hómer segir við
Lísu, (eftir að hún kvartaryfírþví að hún sé
með stóran rass),„Don't worry Usa.you only
gotthe Simpson-butt, I make mine look
smaller by tying a sweater around my waist. “
Lísa fær slðan anorexiu í kjölfarið. Semsagt ef
þið fínnið mig upp á spítaia með næringu I
æð þá er það afþvi faðir minn sagði mér að
ég heföi erft Eggertsson-bakhlutann."
Stefanía Eggertsdóttir -
blog.central.is/valfania
Hefndin verðursæt
l „Systkini mín hafa nötað
ýmsaraðferðirtilþessað
vekja mig. hér er eitt
dæmi-.Ég var 11 ára og
fóralltafaðsofa um tíu
leytið. Ég var búin aðsofai
um það bil klukkutima þegar
þau vöktu mig og sögðu að ég væri ofsein I
skólann, (maður mætti sko aldrei ofseint í
Engidalsskóla), Ég hoppaði fram úr rúminu
og beint i föt á meðan þau lágu i gólfinu og
hlógu að mér, ég tók ekkert eftir því afþvi að
ég var ofsein I skólann, siðan kom bróðir
minn til mln og sagði að kl. væri ellefu og
þetta væri allt i lagi, þá fékk ég sjokk og fór
að gráta og bað hann um að búa til nesti
handa mér. Siðan stóð ég í svona um það bil
minútu og sá að mamma væri að horfa á
sjónvarpið og fann loksins út að kl væri 23:00
en ekki 11:00 og að ég væri búin að sofa í
klukkutíma. Úffá enn eftir að hefnaminá
þeim..."
Þórunn Þórarinsdóttir -
blog.central.is/stelpanmedharid
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Orð frá konu
Esther Svanborg skrífar.
Siv Friðleifsdóttir virðist vera
eina manneskjan á Alþingi sem þor-
ir að berjast gegnum fíknum og
ómenningu. í DV 13. jan. kom fram
hjá lesenda að Siv vill beita sér fyrir
því að lögreglan geti með einföldum
hætti kannað hvort einhver hafi ný-
lega neytt fíkiefna.
Hér dugar ekki að láta þetta
ganga aðeins yfir ökumenn, heldur
Lesendur
ætti að stofna sérsveit sem gæti
stöðvað og mælt fólk sem sýnist vera
f annarlegu ástandi. Fyrir bragðið
mundu dópistar halda sér fjarri fjöl-
menni, sennilegast uppi í sveit. Þessi
þjóð hefur ekkert siðferði og það
vissu Danir. Frjálslyndi á ekki heima
á Norðurslóðum og Siv er ekki
smeyk við að beita vendinum og
menn á borð við Sigurð Kára ættu að
vara sig, enda hafa þeir komist í kast
við lögin, en Siv fýlgist með þeim.
Vei ykkur sem reynið að hindra Siv.
Siv Friðleifs
Esther er ánægð með
að Siv sé ekki smeyk
viðaðbeita vendinum.
Á að biðjast afsökunar
Þórir hringdi:
Ég átti ekki til orð eftir að hafa
lesið um Hannes Smárason í DV.
Mér þykir það ákaflega sorglegt ef
einn af valdamestu viðskiptajöfr-
um landsins getur ekki farið að lög-
um og reglum. Lýsir þetta kannski
á einhvern hátt því siðferði sem
Hannes sjálfur viðhefur í viðskipt-
um sínum? Finnst honum kannski
bara allt í lagi að sveigja reglur þeg-
ar það hentar hans hagsmunum
hverju sinni? Ég vil hvetja Hannes
til að stíga fram og biðjast afsökun-
ar á þessu framferði sínu. Hreyfi-
hamlaðir íslendingar eiga meira
skilið en þennan dónaskap.
Helgi Reynisson
er nýr pistlahöfundur DV.
Verslunarmaðurinn segir
Ég vinn í verslun. Það eru ýmis
fríðindi sem fylgja því að vinna í
verslun. Ég get til dæmis stolið úr
nammibarnum eins og mér sýnist
og ég get líka stungið inn á mig
nammi án þess að nokkur taki eft-
ir því. En ykkur er hollast að reyna
ekki að leika þetta eftir! Hluti af
ánægjunni við að vinna í verslun
felst nefnilega í því að góma þá
sem reyna þennan annars
skemmtilega leik.
Um daginn gripum við einmitt
tvo unga herramenn glóðvolga
með sinn hvorn nammipokann
undir úlpunni. Það endaði með því
að við hringdum í mömmuna og
lögguna og settum svo punktinn
yfir i-ið með því að kalla verslunar-
stjórann tii. Drengirnir luku því
giæstum glæpaferli sínum áður en
hann hófst og munu eyða ævinni í
saltnámunum.
Þetta fékk mig til að hugsa um
minn glæpaferil. Semsagt ekki
þann sem ég stunda núna, heidur
þann sem lauk þegar ég var tólf
ára. Ég fékk snemma hár á pung-
inn og var því ekki að hnupla ein-
hverju haliærislegu eins og
kúlusúkki eða yddurum. Onei...
töffarinn ég hékk inni í bókabúð
tímunum saman uns ég var alger-
lega viss um að öllu væri óhætt. Þá
teygði ég mig upp í efstu hilluna og
stakk inn á mig því allra grófasta
klámblaði sem ég fann. Svo hljóp
ég út og þorði ekki að stoppa til að
draga andann fyrr en ég var kom-
inn heim að hurð, af ótta við að
kellingarnar í Pennanum hefðu
beinlínis hlaupið mig uppi. Það
höfðu þær ekki gert. Daginn eftir
ætlaði ég svo að deila góssinu með
félögum mínum.
Mér varð þó aldrei kápan úr því
klæðinu, því ég var varla kominn
inn úr dyrunum er mamma sá að
það var eitthvað gruggugt í gangi og
hún var ekki lengi að koma upp um
mig. Mamma veit nefnilega allt.
Maður dagsins
Jón Brynjar Birgis-
son Hvetur alla til að
kynna sér sjálfboða-
liðsstarfRKl.
Verulegur skortur á umburðarlyndi
Samfélag okkar íslendinga er
þeim annmörkum háð að ekki
njóta allir réttlætis. Þeim sem haU-
oka hafa farið í samfélaginu kemur
Rauði krossinn til aðstoðar, bæði
með einstaklingsheimsóknum og
með því að reka Vinalínuna 1717
þar sem fólk getur hringt inn og létt
á áhyggjum sínum. Sá sem starfar
við að opna augu fólks fyrir þeirri
gleði og lífsfullnægju sem fylgir
sjálfboðastarfi sem þessu er Jón
Brynjar Birgisson.
„Ég byrjaði sem sjálfboðaliði
fyrir um 14 árum síðan í ung-
mennahreyfmgu RKÍ," segir Jón
Brynjar sem heldur námskeið í dag
í höfuðstöðvum RKÍ að Efstaleiti 9.
„Ég fór þá til Gambíu í Vestur-Afr-
íku og öðlaðist lífreynslu sem gjör-
breytti lífi mínu. Þetta var mjög
spennandi tími og sem betur fer er
Gambía ekki mjög stríðshrjáð
svæði svo það er tilvalið að senda
sjálfboðaliða þangað. Það kemur
enginn óbreyttur ffá slíkri líf-
reynslu. Þar lærir maður að meta
sjálfan sig og umhverfi upp á nýtt
og ber meiri virðingu fyrir ólíku
fólki og menningarheimum. Maður
verður mannlegri fyrir vikið."
Jón Brynjar segir íslenskt samfé-
lag ekld fullkomið.
„Heimurinn er ekki eins rós-
rauður og margir vilja halda. Þeir
sem kynnast sjálfboðastarfinu líta
samfélagið öðruvísi augum, maður
lærir að hugsa út fyrir kassann og
verður víðsýnni. Sjálfboðahreyfing
RKÍ fer til dæmis í heimsóknir til
fanga, eldra fólks og öryrkja," segir
Jón.
Þessir samfélagshópar hafa
bæði margt að gefa og þiggja að
„Heimurinn er ekki
eins rósrauður og
margir vilja halda
mati Jóns.
„Það vantar töluvert umburðar-
lyndi í þjóðfélagið;" segir Jón. „Við
erum til dæmis ekld nógu dugleg
við að heimsækja ömmurnar og af-
ana. Við leggjum mikla áherslu á að
fólk sem vill leggja okkur lið í þessu
hafi sín mál á hreinu áður en það
fer að hjálpa öðrum. Það þýðir ekki
að vera hokinn af misgóðri reynslu
og ætla sér að fara að hjálpa öðrum
ef maður hefur ekki hjálpað sér
sjálfum fyrst."
Jón er borinn og barnfæddur í Reykjavík, sonur þeirra Birgis Árnasonar og
Laufeyjar Jónsdóttur. Hann lærði mjólkurfræði í Dalum Tekniske Skole í Óð-
insvéum í Danmörku og útskrifaðist þaðan árið 2001. Hann starfaði sem
mjólkurfræðingur hjá Emmess-ís í fjögur ár þar til hann tók við núverandi
starfi sem svæðisfulltrúi RK( á höfuðborgarsvæðinu.
S vo Je
vo c .
IN .C ö
^ Ui ti
■§ c -3
S -o o
“2 Í
Il*§
QQ 3
v. t c
•|á|
« í £
e
3
§ § á