Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2006, Side 33
Menning 0V
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 33
Þjóðleikhús í flestum löndum Evrópu voru hluti af þjóðernisvakningu nítjándu
aldar. Sum tóku við af hirðleikhúsunum. í Bretlandi var þjóðleikhús stofnað 1963
og þegar það flutti inn í nýtt hús á áttunda áratugnum hafði leikarinn Briaii
Blessed á orði í viðtali í íslenskum flölmiðlum að loks væru Bretar að ná íslend-
ingum í leikhúsmenningu. í lok þessa mánaðar tekur Skoska þjóðleikhúsið til
starfa og mun ekki eiga neinn fastan samastað heldur verða leikflokkar þess á far-
aldsfæti líkt og sænska og norska ríkisleikhússins.
Skoska þjóðleikhúsið
tekur til starfa
Vígslusýning Skoska þjóðleik-
hússins verður ekki venjuleg þann
25. febrúar. Hundrað fiðlarar lokka
áhorfendur inn í stóra ferju í Leir-
vík á Shetlandseyjum.
í Glasgow verður leikið í átján
hæða stórhýsi. Þrjár lyftur utan
hússins verða með kviianyndalið
sem myndar leikarana inni í hús-
inu. Myndunum verður varpað á
veggi á nálægu bílastæði.
Börn og fullorðnir
Á Stornoway er búið að byggja
stórt dúkkuhús inni í búð. I Edin-
borg hafa tíu ára krakkar sett sam-
an leikrit undir stjórn leikskáldsins
og leikstjórans Anthony Nelson.
Það verður flutt af fullorðnum leik-
urum í Queens Hall.
Á tíu stöðum vítt og breitt um
Skotland verður þjóðleikhúsið
þeirra vígt og vígsluverkefnið fjallar
einmitt um „Heimamálið" - hvar á
þjóðleikhús heima? Það verður
engin fín veisla með ræðum og síð-
um kjólum og kampavíni. Skoska
þjóðleikhúsið á sér engan fastan
samastað, það á að tilheyra allri
þjóðinni og öllum stéttum samfé-
lagsins.
Ensk kona stjórnar
Það er kona sem leiðir verkefn-
ið. Fyrir fimmtán árum var farið að
ýta þjóðleikhúsi Skota úr vör. Núna
situr Vicky Featherstone í stól leik-
hússtjórans. Hún er með árlega
fjárveitingu upp á fjórar miljónir
punda eða nærri 450 miljónir ís-
lenskra króna. Það eru tíu sýningar
í undirbúningi fyrir opnunardag-
inn og fyrsta leikárið að auki. Svo er
hún að vinna við sviðsetningu á
bók Neil Gaiman, The Wolves in
the Wafl.
Hamlandi hús
Ekki er fyr-
irhugað að
þjóðleik-
húsið eigi
sér fastan
stað og
verður
eini fasti
sama-
staður
þess lítíl
skrifstofa í
Glasgow.
öll verkefhi
Ewan McGregor er einn
þekktasti leikari Skota í
dag. Nýr leikhússtjóri skoska
þjóðleikhússins segir sllkar
stjörnur velkomnar efþær
á eigin forsendum en
ekki frægðarinar.
verða unnin í samstarfi við frjálsa
leikhópa sem fyrir eru í landinu,
smáa og stóra.
Featherstone segir það hafa
ráðið úrslitum um áhuga sinn að
leikhúsið hefði engan fastan sama-
stað. Byggingar séu hamlandi og
dragi til sín of mikið fjármagn.
Óraunsætt plan
Leikhússtjóri í Traversee, einu
virtasta og elsta leikhúsi Edinborg-
ar, Philip Howard að nafni, hefur
verulegar efasemdir um það og
segir ekki nema fá ár líða þartil
þjóðleikhúsið skoska eignist heim-
ili.
En vítin eru mörg að varast. í
Skotlandi hugsa menn með hryll-
ingi til þess hvað kostnaður jókst
við þinghúsið þar. Líka er minnt á
kostnaðinn sem tvöfaldaðist við að
reisa enska þjóðleikhúsið í
London.
Abbey-leikhúsið írska flutti í
nýtt hús og starfsemin þar lamað-
ist. Menn gerðu einfaldlega ekki
ráð fýrir rekstrarkostnaði.
Nýja þjóðleikhúsið í Katalóníu
er svo dýrt í þrifum að frumsýna
mætti nokkur ný verk fyrir kostnað
við gluggaþvotta. (Ætli menn hafi
reiknað út þrifin á gluggunum í
nýja tónlistarhúsinu?)
Bland í poka
Featherstone er hvergi bangin
og fyrsta leikárið er til marks um
það. Sígildir skoskir höfundar -
þeir eru til þótt verk þeirra hafi ekki
sést á íslandi - verða ekki á dag-
skrá. Hvorki Bridie, né Barrie. Sam-
tímaskáldin verða þar nokkur.
María Stuart eftir Shiller er á dag-
skrá.
Það er svo til marks um stefn-
una að sett verður upp stórsýning á
Edinborgarflugvelli. Samin sér-
staklega fyrir völlinn.
John Byme, eiginmaður Tildu
Swinton, ætlar að semja sviðsverk
upp úr sjónvarpsseríu sinni Tuttí
Fruttí sem gerir sér mat úr kántrí-
og westemáhuga Skota.
Vitaskuld líta menn með
spenningi til þess að Skotar á al-
þjóðavettvangi leiklistar, Sean
Connery, Tilda Swinton, Ewan
McGregor og fleiri komi heim og
leiki á sviði.
Víða leitað samstarfs
Þá líta menn vonaraug-
um til sjónvarpsstöðva um
samstarf, einnig til sam-
vinnu við leikhús í nálæg-
um löndum. Jafnvel menn
eins og Cameron Mclntosh,
söngleikjaframleiðandinn
vicky Featherstone þjóðleik
hússtjóri Skota
sem á að baki stórsýningar á al-
þjóðavettvangi eins og Mamma
mia, líta til þessa nýja þjóðleikhúss
nágranna okkar með vonarglampa
í augum.
Margt í hugmyndafræði að baki
rekstrinum er athyglisvert og ættí
íslenskt leikhúsfólk að líta til þessa
dæmis um síðborið stórleikhús í
næsta nágrenni okkar - allavega að
senda Skotum heillaskeytí þann
25. febrúar.
pbb@dv.is
-----------------------Á
Sean Connery Leikarinn
skoski lékásviðiá sinum tlma
ILondon og hefuralla tlð verið
mikill áhugamaður um fram-
gang sviðslista íSkotlandi
‘í Fred og Ginger Eittfrægasta parkvik-
myndasögunnar.
Fred og Ginger í
kröppum dansi
í kvöld kl. 20:00 er á dagskrá
myndin The Gay Divorcee í
leikstjórn Mark Sandrich með
frægasta pari dans- og söngva-
myndanna í aðalhlutverki, þeim
Ginger Rogers og Fred Astaire.
Myndin var gerð árið 1934 og
það er skemmtilegt að greina
frá því að Fred vildi að notaðar
væru langar tökur og að
myndavélin hreyfðist sem allra
minnst svo allur líkami þeirra
skötuhjúa sæist þegar þau
dönsuðu. Þetta markaði nýja
stefnu í því hvernig dansatriði
voru tekin upp. í myndinni seg-
ir frá Mimi sem hyggst skilja við
mann sinn. Frænka hennar
ræður mann til þess að aðstoða
hana við skilnaðinn en mis-
skilningur veldur því að Mimi
heldur að dansari sem fellur
fyrir henni sé sá maður.
Kvikmyndasýningar Kvik-
myndasafns íslands eru í Bæj-
arbíói, Strandgötu 6 í Hafnar-
firði alla þriðjudaga kl. 20:00 og
laugardaga kl. 16:00. Upplýs-
ingar um myndirnar má nálgast
á heimasíðu safnsins www.kvik-
myndasafn.is. Miðasala verður
opnuð hálftíma fyrir sýningu og
miðaverð er kr. 500,-.
Ken Russel, leikstjóri
Kvikmynda-
húsið dautt
Enski leikstjórinn Ken Russel
sem kvikmyndaði á sínum tíma
jafn ólík verk og poppóperu
Who, Tommy, og Women in
love eftir sögu D. H. Lawrence,
er orðinn gamall maður. En
hann er síður en svo dauður úr
öllum æðum. Russel er 78 ára
og hefur um langa hríð búið á
írlandi. Hann lýsti þvf yfir
snemma á þessu ári að hann
væri enn að og síðasta verk sitt,
þrjár stuttmyndir, hefði hann
filmað heima hjá sér og því yrði
dreift á netinu.
Um svipað leyti sendi Steven
Soederberg frá sér myndina
Bubble sem tekin er á stuttum
tíma með óþekktum og
ómenntuðum leikurum. Mynd-
in var frumsýnd samtímis því
að hún var fáanleg á DVD og á
netþjónum.
Yfirlýsing Russel kom fram í
þætti BBC og þótt menn taki
orðum hans með fýrirvara um
dauða kvikmyndahússins, sem
hann boðar, bendir ýmislegt til
að hann reynist hafa rétt fýrir
sér um vaxandi dreifingu
mynda á diskum og neti.
pbb@dv.is