Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2006, Side 40
T* Y t í C 0 C Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndar er gætt. *-* q _»-* Q rj Q
SKAFTAHLlÐ 24, 105 REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMI550 5000 5 "690710N111117
• Á laugardaginn
héldu Samtökin 78
ball í Iðu-húsinu
til styrktar Hinseg-
in bíódögum. Mik-
ill mannfjöldi var
samankominn þar
en hápunktur
kvöldsins var þó þegar glys-
drottningin sjálf, Silvía Nótt,
mætti á staðinn með dansara
sína, Homma og Namma.
Silvía tók lagið við mikinn
fögnuð viðstaddra og endaði
atriði sitt á því að láta bera sig
um allan sal. Ekki tók hún þó
Til hamingu ísland því henni
er bannað að syngja það opin-
berlega þar til ljóst er hvort
hún verður fulltrúi íslands í
Eurovision í Grikklandi í vor...
Langarhann svona
mikið á Eurovision?
J? idoác
SpjallþáttalÉgiir í ferðabransann Grikkir
lausir við tilgerð og smeðjuskap
„Þetta eru ferðir til Cyclades-
eyja, sem nefnast Hringeyjar á ís-
lensku, lífsnautnaferðir þar sem
fólk fær að kynnast fallegri náttúru,
góðum ströndum, góðum mat og
frábæru mannlífi," segir Egill
Helgason sjónvarpsmaður.
Þeir sem fylgst hafa með Agli í
gegnum tíðina þekkja áhuga hans á
Grikklandi þar sem hann hefur ver-
ið tíður gestur. Nú stígur Egill
skrefmu lengra og skipuleggur
ferðir þangað í samstarfi við ferða-
skrifskrifstofuna Prima/Emblu. Eg-
ill segir Prima/Emblu sérhæfa sig í
vönduðum sérferðum. „Þannig að
þetta er nokkuð fínna en fjölda-
ferðirnar sem flestar ferðaskrifstof-
ur bjóða upp á. Við leggjum
áherslu á góða gistingu og þæg-
indi," segir Egill sposkur - þegar
farinn að tileinka sér tungutak
ferðamálaþjónustunnar. Og fer
reyndar létt með það:
„Miðpunkturinn verður eyjan
Naxos, sú grænasta á þessu svæði,
en þaðan er hægt að fara í skoðun-
arferðir, til dæmis til Mykonos þar
sem er mjög fjörugt næturlíf eða til
Delos þar sem í fornöld var eyja
guðsins Appolons."
Spurður um þennan Grikk-
landsáhuga segist Egill hafa milli-
lent í Grikklandi fyrir tíu árum á
leið frá ísrael. „Ég hreifst strax af
mannlífinu þar, Grikkir eru ein-
staklega þægilegt fólk. Lausir við
tilgerð og smeðjuskap. Ég veit ekki
betri stað til að dvelja á en þessar
eyjar. Glæpir eru til dæmis nærri
óþekktir þar."
Egill segir ferðir sína nauðsyn-
lega hvíld frá fjölmiðlum. „Síðla
veturs byrja ég að telja niður, hvað
á ég eftir marga þætti þangað til ég
kemst til Grikklands. Á veturna
held ég tengslum með því að
stunda grískunám - sem að vísu
gengur afarhægt."
Spjallþáttakóngurinn er ekki frá
því að þetta sé að einhverju leyti
leið hans út úr hinu mikla amstri
sem fylgir fjölmiðlamennsku.
„Já, ég held það. Mér finnst gott
Egill Helgason Erekkifrá
því að með skipuiagningu
ferða til Grikklands sé komin
eins konar útgönguleið úr
fjöimiðiaamstri.
að komast reglulega frá þessu litla
landi, stundum týnir maður aðeins
perspektífinu í fámenninu hérna.
Annars kúpla ég mig alveg frá þessu
þegar ég er í Grikklandi, fylgist þá
ekkert með því sem gerist heima."
gerðu góð kaup á húsgögnum, Ijósum og
gjafavöru, 10-60% afsláttur