Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Side 4
4 LAUCARDAGUR 11. MARS 2006
Fréttir DV
Bíl stolið í
Eyjum
Lögreglan í Vestmanna-
eyjum fékk tilkynningu í
gærmorgun frá eiganda
Colt-bifreiðar að bílnum
hafi verið stolið. Virðist eig-
andi bílsins hafa skilið bíl-
inn eftir opinn og með
lyklana í bílnum. Segir Lög-
reglan í Eyjum að allt of ai-
gengt sé að fólk skilji eftir
lyklana í bflum sínum yfir
nóttina og ef bfllinn verður
fyrir tjóni þá bætir trygg-
ingafélagið ekki tjónið þar
sem bifreiðin er opin og
lyklarnir í svissinum. Lög-
reglan í Eyjum leitar að
bflnum en vonast til að
finna hann fljótlega því
ekki er svo auðvelt að
stinga af.
Svörtverð-
bólguspá
Spámenn greiningar-
deildar KB Banka iíta svart-
sýnum augum á hækkun
vísitölu neysluverðs, öðru
nafni verðbólguna. í hálf-
fimm fréttum Greiningar-
deildarinnar segir að vísi-
talan hafi hækkað í mars
um 1,12 prósent frá fyrri
mánuði og við það hækki
hún á ársgrundvelli úr 4,1 í
4,5 prósent og því enn ofar
efri þolmörkum verðbólgu-
markmiðs Seðlabankans.
Veiking krónunnar er helst
um að kenna - en á móti
kemur að dregið hefur úr
hraða hækkunar húsnæðis-
verðs.
Innbrot í
Hlíðunum
Lögreglan
handtók tvo
menn í gær-
morgun grunaða
um innbrot í
Víðihlíð. Lögregl-
an í Reykjavík
fékk tilkynningu
um innbrotið og
sjónarvottar gátu
bent á bifreið
mannanna sem
voru síðan
stoppaðir og handjárnaðir
við Suðurhlíð. Við nánari
eftirgrennslan lögreglunnar
fannst þýfið í bifreið mann-
anna. Telur lögreglan að
þýfið sem fannst í bflnum
gæti verið úr öðrum tveim-
ur innbrotum sem voru til-
kynnt til lögreglu fyrr um
nóttina.
Karen Guðfinna Guðmundsdóttir og fyrrverandikærasti hennar Bjarki Þórir Kjart-
ansson áttu í dramatísku rifrildi á síðasta ári sem endaði með áílogum og að lok-
um með því að Karen stakk Bjarka í bakið með eldhúshníf. Þegar lögreglan kom á
staðinn fundust 185 kannabisplöntur, tæp 400 grömm af kannabisefni og kannabis-
blandaður vökvi.
Karen Guðfmna Guðmundsddttir hefur verið ákærð fyrir að
stinga manninn sinn og barnsföður, Bjarka Þðri Kjartansson, í
bakið í september á síðasta ári. Þegar lögregla kom á staðinn
vegna hnífstungunnar fann hún 185 kannabisplöntur, tæp 400
grömm af kannabisefni og tvo lítra af kannabisvökva. Karen og
Bjarki eru því bæði ákærð fyrir fíkniefnamisferli.
Fíkniefni fundust
Eftir að Karen stakk Bjarka í
bakið var lögreglan kölluð á
staðinn vegna skarkalans, en þau
bjuggu í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði.
Þegar lögreglan kom á vettvang til
þess að hlúa að sárum Bjarka kom í
ljós að gríðarlegt magn af kannabis-
plöntum og tæp 400 grömm af
kannabisefni ásamt kannabisblönd-
uðum vökva var
að finna á heimili
þeirra. Karen var
handtekin og
Bjarki sendur á
sjúkahús.
Bjarki Þórir Kjartans-
son Var stunginn i bakið
og lögreglan fann tölu-
vert magn afflkniefnum
heima hjá honum.
Karen reiddist svo mikið í
áflogunum að hún stakk
hann í bakið með eldhús-
hníf. Hann segist ekki átta
sig á því nákvæmlega
hvernig til áfloganna kom.
„Við erum skilin," segir Bjarki
Þórir en hann neitaði í Héraðdómi
Reykjaness í gær að hafa sparkað í
Kareni umrætt kvöld. Bjarki játaði
þó að hafa átt fíkniefnin. Hann segir
að þau hafi lent í áflogum þar sem
mikið hafi
gengið
á.
„Hún var með anorex-
íu og þess vegna litu
áverkar hennar út
eins og áflogin hafi
verið alvarlegri en
þau voru í raun."
Konan með anorexíu
„Hún var með anorexíu og þess
vegna litu áverkar hennar út eins og
að áflogin hafi verið alvarlegri en
þau voru í raun,“ sagði Bjarki fyrir
Héraðsdómi Reykjaness um líkams-
árásarákæruna á hendur sér. Hann
sagði að konur með anorexíu fái
auðveldar marbletti og því hafi
áverkar hennar í raun gefið meira í
skyn en raunverulega átti sér stað.
Hann segir að þau hafi aðeins lent í
ryskingum
Fyrirgefur hnífstunguna
„Ég fyrirgef henni að sjálfsögðu,"
segir Bjarki, sem fékk rýting í bakið
frá fyrrum konu sinni. Hann segir að
mikið rugl hafi verið á þeim þegar
þetta átti sér stað og þau hafi bæði
verið í gríðarlegri neyslu. Hann segir
að sambúð þeirra hafi verið eins og
sambúð fflda geti oft verið, storma-
söm.
Aðalmeðferð málsins fer fram
síðar í mánuðinum.
valur@dv.is
Partýið sem varð of stórt
Það er ekki tekið út með sældinni
að vera organleikari á Austfjörðum.
Það er bara svo leiðinlegt. Sífelldir
útfararmarsar. Þess vegna er gott að
hafa Intemeúð.
Á Netinu er hægt að láta hugann
reika inn og út úr gufhvolfinu, spjalla
við vinina eða skoða myndir af alls-
bemm stelpum. Það er skemmtilegt.
Vandamáiin byrja bara ef maður
er of gestrisinn og býður alltof mörg-
um heim til sín á Netinu. Þá er voðinn
vís. Sumir gestanna er nefnilega gjör-
samlega tjúllaðir og gætu þess vegna
tekið upp á míga út um glugga upp á
i
Svarthöfði
lofti á meðan maður er sjálfur niðri í
eldhúsi að spjalla við einhverjar kell-
ingar um eftirréttauppskriftir.
Ef migið hefur verið á einhvem út
um gluggann á húsinu þínu þá er við-
búið að sá verði þokkalega pirraður.
Komi aiveg brjálaður á dyrbjölluna og
heimti að mígarinn gefi sig fram og
standi reikningisskil gjörða sinna.
Oftast er hægt að flæma slflcar
fýlupúkaboðflennur burt með því að
segja að pissukallinn hafi barasta
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað bara fint, enda nóg að gera," segir Sigrún Elsa Smáradóttir varaborgarfulltrúi
R-listans I borgarstjórn. „I kvöld ætla ég að skemmta mér með vinnufélögum mínum á árs-
hátíð lceforma. Er reyndar rétt í þessu á leiðinni út til að finna mér gott sjal til að bera á öxlun-
um en það er alltafsami höfuðverkurinn að ákveða i hverju maður klæðist, einkum efmaður
hefur breyst I vextinum á milli ára. Ég er búin að ákveða í hverju ég verð og hlakka bara til
kvöldsins. Ég á ekki von á öðru en árshátíðin veröi skemmtileg, þaö er alltafgaman að pússa
siguppoghittavinnufélaganautanvinnu.“
gufað sporlaust upp út um garðdyrn-
ar. Soml Það sé skítt en ekkert við því
að gera. Þetta kaupa semsagt flestir.
En svo er alitaf einn og einn lóner sem
heldur áfram að tuða.
Höfuðverkur organleikarans á
Austfjörðum var einmitt svona for-
hert lónertýpa sem var orðin uppgef-
in á stöðugum þvagleka út um allar
dyr og gættir á hethöll kirkjumanns-
ins. Alit í einu var komin kona með
gult hár sem bankaði allt að utan hjá
okkar manni. Hótaði að hvæsa og
blása þar til húsið yrði um koll. Tón-
listarmaðurinn skalf á beinunum og
rak að endingu alla gestina út beint í
gin þessarar illskeyttu konu.
Og þannig er staðan í dag: Org-
anistinn er á bömmer og tíu litlir net-
verjar eru í maganum á vondu kerl-
ingunni sem vildi ekki láta pissa á sig
ilr launsátri. Hvað gerist næst?
Sturtar hún þeim niður?
SvartböföL