Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 1I. MARS 2006
Fréttir DV
Ásta er dugleg, samviskusöm,
erþægiteg, viðkunnanieg og
hreinskiptin í samskiptum.
Ásta getur verið ákaflynd
og ætlar sér stundum of
mikið.
„Ég hefekkert nema góða sögu
að segja afÁstu. Hún er
duglegur og áhuga-
samur þingmaður. Hún
er dugleg að fylgja eftir
þeim málum sem hún
tekur sér fyrir hendur.
Hún er lika afskaplega þægileg
og viðkunnanleg í öllu viðmóti.
Ókostirnir eru kannski helst að
hún er samfylkingarmaður.
Annars getur maður lítið kvart-
að undan henni nema hugsan-
lega fyrir að vera ósammála i
skoðunum."
Guðlaugur Þór Þórðarson, borgar-
fulltrúi sjálfstæðismanna.
Kostirnir eru aö hún er sam-
visku- og eljusöm. Hún er
óskaplega skemmtileg,
góður félagi og fylgin
sér. Svo er hún ákaflega
góð sagnamanneskja.
Ókostir hennar eru helst
ákaflyndið sem getur
reyndar bæði verið kostur og
galli. Annars er ég svo heppin
að ég þekki bara kostina
hennar."
Guörún Ögmundsdóttir þingkona.
„Kostirnir hennar eru að hún er
mjög dugleg. Hún setur sig vel f
þá málaflokka sem hún tekur
fyrir. Hún er skipulögð
og afskaplega hrein-
skiptin íöllum samskipt-
um. Ásta er iðinn þing-
maður og hefur flutt
fjölda mála. Ókostirnir eru
hún ætlar sér stundum um og
of, bæði að sinna þinginu og
ýmsum félagssamtökum úti í
bæ."
Margrét Frímannsdóttir, varaformaður
og þlngkona Samfylklngarinnar.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er fædd í
Reykjavlk ló.október 1949.Hún tókstúd-
entspróffrá MR 1969 og fór þaðan I nám í
félagsvísindum og ensku HÍ. Hún er þing-
kona í Samfylkingunni og hefur setið á
þingisíðan 1995.
Handtekinn
með
amfetamín
Lögreglan í Reykjavík
stöðvaði í reglubundnu eft-
irliti þrítugan ökumann
snemma í gærmorgun á
Hringbraut til móts við
Þjóðarbókhlöðuna. Við
nánari eftirgrennslan lög- .
reglunnar kom í ljós að
maðurinn hafði í vörslu
sinni nokkur grömm af
amfetamíni. Einnig fann
lögreglan tölvukassa og far-
tölvu í bflnum sem grunur
leikur á að sé þýfi. Maður-
inn var handtekinn og
fluttur í fangageymslu lög-
reglunnar.
Dagblaðið Börsen í Kaupmannahöfn fer mikinn í umfjöllun sinni um innrás íslend-
inga í danskt efnahagslíf. Segir að aðvörunarbjöllur hringi nú hjá sérfræðingum sem
óttast hrun íslensks efnahagslífs og að slíkt geti haft víðtækar afleiðingar fyrir
danskt efnahagslíf. Alls er 371 íslendingur skráður í stjórn danskra fyrirtækja. „Eng-
in ástæða til að hafa áhyggjur,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson.
Danska blaðið Börsen í Kaupmannahöfn fer mikinn í umfjöll-
unn sinni um innrás íslendinga í danskt efnahagslíf. Segir blað-
ið að fjöldi íslendinga í stjórnum danskra fyrirtækja blási út sem
aldrei fyrr og það fái aðvörunarljósin til að blikka rautt hjá sér-
fræðingum. Þeir óttist að mikið hrun í íslensku efnahagslífi geti
haft víðtækar afléiðingar fyrir danskt efnahagslíf.
Árið 2001 var aðeins 51 íslend-
ingur skráður í stjórnir danskra fyr-
irtækja en sú tala er nú komin upp í
371. í allt situr þessi fjöldi í 428
stjórnunarstöðum hjá samtals tæp-
lega 200 fyrirtækjum.
Börsen birtir lista með helstu ís-
lensku stjórnendunum. Efst á þeim
lista tróna þeir Birgir Þór Bieltvedt
sem situr í stjórn 14 fyrirtækja og
Skarphéðinn Berg Steinarsson sem
situr í 13 stjórnum. Báðir tilheyri
þeir Baugi Group sem á meðal ann-
ars Magasin du
Nord, Merlin,
Atlas Ej-
endomme
og hefur
keypt
stóran
1 hlut af
j fasteigna-
félaginu
Keops.
Næstu
Birgir Þór Bieltvedt
Kóngurinn i stjórnum
danskra fyrirtækja í
eigu fslendinga.
menn á listanum eru Jón Björnsson
sem situr í 9 stjórnum og þeir Sindri
Sindrason og Þórir Jónsson sem
einnig sitja í 9 stjórnum hvor.
Ástæðulausar áhyggjur
Skarphéðinn Berg Steinarsson
segir að Danir hafi enga ástæðu til
að hafa áhyggjur af Islendingum.
„Við höfum keypt mörg fyrirtæki í
Danmörku og því er eðlilegt að ís-
lendingum fjölgi í stjórnum þeirra,“
segir Skarphéðinn. „Þessi fyrirtæki
eru staðsett í Danmörku og það er
að sjálfsögðu markmið okkar að
reka þau þar með hagnaði og slíkt
ætti að koma Dönum til góða.“
Danir kvíðnir
Fram kemur í Börsen að danskir
sérfræðingar séu orðnir kvíðnir yfir
þeim mildu ítökum sem fslendingar
hafa nú í dönskum fyrirtækjum.
Blaðið ræðir við Steen Thomsen
prófessor við Viðskiptaháskóla Dan-
merkur sem segir meðal annars að
viðskiptahættir fslendinga séu mun
lausbeislaðri en gengur og gerist í
gamalgrónum auðveldum eins og
Bretlandi og Danmörku. Fram kem-
ur hjá Thomsen að náin eigna-
tengsl innan íslensku fyrirtækj-
anna sem haslað hafa sér völl
Danmörku séu áhyggju-
efni.
Eins og Asíu-
kreppan
Aðrir sérfræð-
ingar sem Bör-
sen vitnar til
„Þessi fyrírtæki eru
staðsett í Danmörku
og það er að sjálf-
sögðu markmið okkar
að reka þau þar með
hagnaði og slíkt ætti
að koma Dönum til
góða."
vara við því að aðstæður á íslandi
nú séu um margt líkar því sem
gerðist í Asíu áður en kreppan
skall þar yfir á síðasta áratug.
Hins vegar sjá þessir sér-
fræðingar ljós í myrkrinú ■
hvað varðar lærdóma sem
Danir geta nýtt sér frá ís-
lendingum, það er að hugsa
óhefðbundið í viðskiptum.
Fyrirtækin
Með úttekt Börsen fylgir
ítarlegur listi yfir þau fýrir-
tæki þar sem íslendingar
sitja nú í stjórn. Birgir Þór er
meðal annars stjórnarfor
maður í The Scandinavian
Pizza Company A/S sem
rekur Dó
mínós-
staðina í Danmörku og hann situr
einnig í stjórnum Kgs. Nytorv Aps,
Illum og eignarhaldsfélaginu Th.
Wessel & Vett sem á húseignir
Magasin du Nord. Skarphéðinn Berg
Steinarsson situr meðal annars í
stjórnum Illum, Stodir Holding A/S,
Keops A/S og eignarhaldsfélaginu
Th. Wessel & Vett.
; i
Skarphéðinn Berg Stein-
arsson Telurenga ástæðu
fyrir Dani að hafa áhyggjur af
íslenskum fjárfestum.
Svefnlyfið Stilnoct uppselt á íslandi
Væntanlegt í næstu viku
Stórframkvæmdir í Smáíbúðahverfinu
Brúnin lyftist í
Hólmgarði
Hólmgarður Bjart-
sýni ríkir meðal íbúa
og framkvæmdagleðj.
Svefnlyfið Stilnoct hefur ekki ver-
ið fáanlegt um skeið frá innflytjend-
um og mun að mestu leyti vera upp-
selt víðast hvar í apótekum. Ingi-
björg Sveinsdóttir, lyfjafræðingur
hjá Lyfjum og heilsu í Háaleiti, segir
að lælcnar hafi í stað þess ávísað á
Imovane sem sé ekki ósvsvipað lyf
en innihaldsefni þeirra ekki þau
sömu. „Bæði lyfin eru í flokki vægari
svefnlyfja en langmest er ávísað á
þessar tvær tegundir svefnlyija.
Okkur er ekki kunnugt um hvenær
Stilnoct kemur aftur en það mun
vera eitthvert stopp hjá verksmiðj-
unum úti."
Magnús Júlíusson, hjá Vistor sem
flytur lyfið inn, segir að lyfið sé
væntanlegt í byrjun næstu viku.
„Stilnoct er framleitt í Frakklandi og
við vitum ekki nákvæmlega hvers
vegna verksmiðjan hefur ekki getað
afgreitt það, en mér skilst að það sé
Stilnoct, mest selda svefn-
lyfið á markaðnum ekki til Þess 1 stað hafa læknar talsvert ávlsað á Imovane sem er
emnig vægt svefnlyí
eitthvað tengt framleiðsluvanda.
Það er ekki aðeins hér á landi sem
skortur er á þessu lyfi en hér taka
menn frekar eftir því vegna þess hve
mikið það er notað," ségir Magnús
og vonar að þeir sem noti þetta lyf
að staðaldri geti beðið eða fái ávísun
á eitthvað annað í staðinn.
Mikil bjartsýni ríkir meðal íbúa
við Hólmgarð í Reykjavík og fram-
lcvæmdagleði í mörgum húsum.
Fyrir skipulagsráði Reykjavflcurborg-
ar liggja nú ekld færri en fimm um-
sóknir um leyfi tfl að hækka þök,
byggja kvisti og hreinlega lyfta hús-
um við götuna. Eru umsóknirnar
flestar svo gott sem samhljóða.
Þegar er búið að lyfta þökum
margra húsa við Hólmgarð og
reyndar víðar í Smáíbúðahverfinu.
Þær umsóknir sem nú liggja fyrir hjá
skipulagsráði gera ráð fyrir stækkun
viðkomandi íbúða um 58,1 fermetra
og munar um minna þegar algengt
fermetraverð í hverfinu er 300 þús-
und krónur.
Húsin sem til stendur að hækka
og stækka eru Hólmgarður 6, 8, 37,
39 og 52.
Skipulagsráð frestaði ákvörðun í
málunum og vísaði tfl skipulagsfull-
trúa tfl umsagnar. Ef honum líst á
verður hafist lianda.