Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Qupperneq 18
Sport DV Stólatilboð næstu 10 daga eða meðan birgðir endast. rrri í i '1 Hilton Kr. 12.450,- Wien Kr. 8.800,- & Myra Kr. 6.600,- C rrn Franz Kr. 7.500,- Iber Kr. 12.450,- Madrid Bordeaux Kr. 4.950,- Gullrún ehf. www.eikin.is Bfldshöfða 16 • Sími 577*2577 isiandsmeisxai [siandsmeistarar 2006 18 sigrar og 4 töp ??? Deildarmeistaratitlar Keflavíkur: i»2 <malSt^SSSg& 1997 19 sigrar og 3 töp - Islandsmeistarar mlstgeta ■ ■ f Maður leiksins J Moye skoraði 37 stig og hélt Jeb ivey á sama tima I aöeins 15 stigum. A.J. Moye var kátur eftir sigur- inn. „Ég hef mikinn sigurvilja og hef spilað fyrir meistaralið allan minn feril. Ég ætlast til þess að vinna alla leiki. Ég heyrði það þeg- ar ég kom hingað að Keflavík væri alltaf best í stóru leikjunum en var orðinn ansi pirraður á nokkrum slæmum töpum okkar framan af tímabilinu. En það töluðu allir um að Keflavík væri eins og lest og þegar hún kæmist á ferðina þá réði enginn við okkur og ég er mjög ánægður með að fá að taka þátt í því að koma Keflavíkurhraðlest- inni á ferðina aftur," sagði Moye eftir að deildarmeistaratitilinn var í höfn. Draumabyrjun breyttist fljótt í martröð Það stefndi frekar í burst hjá Njarðvík en Keflavík í upphafi leiks því Njarðvík skoraði 9 fyrstu stig leiksins og var komið í 13-2 eftir að- eins 4 mínútur og 15 sekúndur. Brenton Birmingham skoraði 8 af þessum 13 stigum sem lofaði góðu því þegar hann spilar vel þá eru Njarðvíkingar illviðráðanlegir. Kefl- víkingar voru búnir að minnka muninn í fjögur stig fyrir lok fyrsta leikhlutans en vömin hafði þá þegar lamað sóknarleik Njarðvíkurliðsins og því var aðeins fyrir þá að bíða að skotin fæm að detta í sókninni. í öðmm leikhluta skoraði A.J. Moye 13 stig (gegn 10 frá Njarðvík) og Kefl- víldngar vom komnir með öll tök á leiknum sem þeir síðan hertu eftir því sem vonleysi Njarðvíkinga jókst. Hmn Njarðvlkursóknarinnar var al- gjört og á 28 mínútna kafla hélt Keflavíkurvörnin Njarðvík í aðeins 32 stigum og breytti stöðunni úr 2- 13 fyrir Njarðvík í 81-45 fyrir Kefla- vík. Njarðvík vann síðustu 5 mínútur leiksins 28-3 og bjargaði andlitinu en það var rosalegt að horfa upp á eitt allra sterkasta lið landsins verða að smástrákum í höndunum á Kefl- víkingum sem flengdu þá fyrir fram- an fullu húsi í Sláturhúsinu sem enn á ný bar réttnefni. Tók Ivey úr umferð Flestir myndu telja 37 stig og 12 ffáköst vera bestu rökin fyrir því að Bandaríkjamaðurinn A. J. Moye hafi verið maður leiksins en Moye nýtti 14 af 23 skotum sínum (60,9%), hitti úr 8 af 9 vítum (89%) og þá fengu Njarðvíkingar 12 villur fyrir að brjóta á honum í bæði sókn og vöm en Moye fiskaði meðal annars tvær sóknarvillur í þessum leik. Þessi upptalning er vissulega glæsileg en það var tölfræðilína Jeb Ivey í liði Njarðvíkur sem sýndi kannski stærsta framlag Moye í leilcnum. A. J. Moye viðurkenndi að hann væri þreyttur eftir leikinn enda bú- inn að skila gríðarlega stóm hlut- verki í sókn og vörn í 38 mínútur og 42 sekúndur. Hann hélt Jeb Ivey í 9 stigum og 31% skotnýtingu (4 af 13) fyrstu 34 mínútur leiksins og þeim tíma var Ivey einnig með 6 tapaða bolta og aðeins eina stoðsendingu. Ivey bætti aðeins við sínar tölur á bullmínútum í lokin en skoraði samt bara 15 stig helmingi minna en hann hafði gert að meðaltali gegn Keflavík í hinum leikjunum í vetur. Settist niður með Sigurði þjálfara „Þetta er nýja skipulagið hjá okk- ur. Eftir ■bikarúrslitaleikinn þar sem við töpuðum illa fyrir Grindavík þá settist ég niður með Sigurði þjálfara og sagði honum að ég gæti dekkað besta léikmanninn í hinum liðunum sama hvaða stöðu þeir spila. í deild- arleiknum gegn Grindavík nokkmm dögum eftir bikarúrslitaleikinn leyfði Sigurður mér að dekka Jeremiah Johnson í seinni hálfleik og ég hélt honum í 3 stigum og þvingaði hann í að tapa mörgum boltum. Ég fékk líka að dekka Clifton Cook á sunnudag- inn og hann átti þá slæman leik," sagði Moye og tölumar ljúga ekki. Johnson skoraði 16 stig og gaf 5 stoðsendingar í fýrri hállfeik í um- ræddum leik en í þeim seinni þegar hann spilaði á móti Moye náði hann aðeins að skora 3 stig og klikkaði á 6 af 7 skotum sínum. Clifton Cook klikkaði á 15 af 21 skoti sínu og skor- aði aðeins 18 stig en hafði verið með 36,7 stig að meðaltali og 55% skotnýt- ingu í þremur síðustu leikjunum á undan að hann hitti fyrir Moye. Þurfa að vera langt yfir 2 metra til að ná skoti „Ég er alveg eins fljótur og þessir strákar en það sem hjálpar mér mik- ið að ég er sterkur og ég get hoppað hátt. Leikmaður þarf að vera langt yfir 2 metrum til að ná skoti á móti mér. Ég er líka duglegur og tilbúinn að vera á fullu í 40 mínútur," sagði Moye sem hefur sýnt hæfileika sína sem varnarmanns með því að dekka þrjá af fljótustu og bestu bakvörðum deildarinnar í síðustu leikjum. Keflavíkurvömin hefur reynst mörg- um Uðum erfið í úrslitakeppninni undanfarin tímabil og það er eins og Sigurður Ingimundarson hafi nú fundið sjötta gírinn í A. J. Moye sem getur dekkað alla leikmenn mótherj- anna, allt frá litlum og fljótum bak- verði upp í stóran og sterkan mið- herja. Það verður því erfitt að eiga við Keflvíkinga í úrslitakeppninni. ooj@dv.is Dregiö í fjórðungs- og undanúrslit í Meistaradeild Evrópu í gær: Patrick Vieira snýr aftur á Highbury Patrick Vieira mun spila á Highbury á nýjan leik þegar lið hans, Juventus, dróst gegn Arsenal í fjórðungsúrslitum Meistaradeild- ar Evrópu í gær. Vieira var fyrirliði Arsenal til margra ára en var seldur Dregið í MeístaradeiliHnni Fjórðungsúrslit 28.-29. mars og 4.-5. apríl ! vs. Juventus til Ítalíumeistaranna í sumar. Fé- lagi hans og landi, Thierry Henry, er nú orðinn fyrirliði enska liðsins en þeir mætast nú sennilega í fyrsta sinn sem andstæðingar í al- vöm knattspyrnuleik. m <20 CHAMPIONS LEAGUE Inter Mllan / Ajax*|vs. Vlllarreal Lyonl vs. ACMilan vs. Barcelona —..... ii — - - ■ Undanúrslit: 18.-19. apríl 25.-26. aprfl ‘Urslit leiksins sem fer fram 14. mars { . ræður því hvort liOið fer áfram.______________Heimild: UEFA ©2006 KBT Úrsllt: 17. maí „Við verðum 100% klárir í þenn- an leik og bjóðum Patrick velkom- inn aftur á uppáhaldsvöllinn sinn," sagði Arsene Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal. „En við munum sannarlega ekki auðvelda honum hlutina. Það skal þó tekið fram að við erum að mæta heilu liði, ekki einum manni." David Dunn, varastjórnafor- maður félagsins, brosti sínu breið- asta eftir dráttinn. „Það var sérstakt að fá Real Madrid en það verður ekki mikið flottara en þetta," sagði hann. „Strákarnir okkar líta vel út og em klárir í slaginn." Tvö ensk lið féllu úr leik í 16-liða úrslitum og mætast liðin sem slógu þau úr keppninni - Barcelona og Benfica. Enn á reyndar eftir að leik- ari síðari viðureign Inter Milan og Ajax en honum var frestað um viku þar sem Inter deilir heima- velli sínum með AC Mil- an, sem lék í vikunni á San Siro. eirikurst@dv.is Patrick Vieira Mætir í röndótta búningnum á Highbury. Nordic Photos/Getty
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.