Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Side 45
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 45 Upp á líf og dauða fingrunum," segir hún hugsandi. „Þeir hafa ýmist dáið úr of stórum skömmtum eða tekið sitt eigið líf. Það er alls ekki nógu mikið fjallað um að alkóhólismi er banvænn sjúk- dömur sem tekur fjölda mannslífa á ári. Kannski er það skömmin sem fylgir þessu, fólk á erfitt með að til- einka sér sjúkdómshugtakið og mörgum finnst þetta bara aum- ingjaskapur. Þess vegna eru svona miklir fordómar í gangi. En við hvert dauðsfall fölnar blóm inni í manni. Mér fannst þrátt fyrir allt vera svona blómvöndur inni í mér en blómin breyttust í dauðar rósir með hverju dauðsfalli. Neyslan endar alltaf með skelfingu. Sá sem situr með bros á vör í partíi einn daginn getur verið dáinn úr neyslunni þann næsta. Það þola þetta ekkert allir og þó margir tóri ótrúlega lengi kemur skellurinn alltaf fyrir rest í einhverri mynd." Fittaði ekki inn með venjulegu fólki Begga segir að árin hennar milli fimmtán og tvítugs séu meira og minna í móðu. „Ég man enga tímaröð en þama er farið að halla verulega undan fæti. Ég gerði mér grein fyrir því sextán ára að ég átti við vandamál að stríða en mamma og pabbi voru búin að gefast upp. Þau notuðu samt tækifærið rétt áður en ég varð 18 ára til að koma mér inn á Stuðla. Ég var þá búin að fara inn á Vog tveimur árum áður, aðallega til að forvitnast. Ég tók heila meðferð en datt í það um leið og ég kom út af Vrk. Ég nennti ekki að standa í þessu. Ég kunni ekk- ert að lifa í heimi þar sem ekki var drukkið og dópað, vissi ekki hvað ég átti að segja eða gera, ég einfaldlega fittaði ekki inní. Þess vegna leitaði ég aftur í heiminn sem ég þekkti best, þar sem ég var örugg með mig. Ég hélt líka að það væri allt í lagi með mig. Einu sinni geymdi ég til dæmis hreint spítt frá þriðjudegi fram að helgi og fannst það öruggt merki um að ég væri með allt undir kontról." Þýðir ekkert að veimiltítast í dópheiminum Begga tolldi ekki í neinni vinnu enda segist hún hafa verið skapsfygg og ekki kunnað að umgangast fólk. „Ég varð bara brjáluð í skapinu ef eitthvað gekk ekki eins og ég vildi og ég vissi ekkert hvemig átti að sýna umburðarlyndi, hvað þá kærleika. Ég stundaði barina stíft og var alltaf með eldra fólki sem var miklu mglaðra en hægt er að ímynda sér. Þó poppuðu upp litlar prinsessur þar lika sem „Það virkaði alveg öfugt á mig. Ég var lokuð inni á neyðar- vistun þar sem allt var boltað niður og þurfti að borða með plast- skeið. Það passaði mérengan veginn." höfðu farið villur vegar eins og ég. Ég leit á þetta sem spes lífsstíl og hafði auðvitað séð sumt af þessu fólki heima hjá mér þegar ég var yngri. Þarna dæmdi mig enginn, fólki fannst ég bara lítil og krúttleg og var ofsalega gott við mig. Ég var eins og prins- essa." Prinsessulíf Beggu átti þó ekkert skylt við prinsessuh'f í ævintýrunum. „Maður sefur lítið sem ekkert, bara keyrir sig áffam/ Þetta er rosaleg geggjun. Maður verður að vera töff. Það þýðir ekkert að vera að veimiltít- ast eitthvað í dópheiminum. Ég var líka búin að gera það upp við mig að ég gætí ekkert lært og nenntí því ekki hvort sem væri svo þetta væri fínt líf fyrir mig. Svo reynir maður að hugsa ekkilengra." Begga segist hafa tekið þátt í af- brotum til að íjármagna neysluna en svo var hún lflca að selja á tímabili. „Stundum fór ég inn á Vog í smátíma en entist aldei lengi. Annað hvort fór ég sjálfviljug eða var rekin út fyrir að vera vond við húsvörðinn eða eitt- hvað. Þetta vom sorgleg ár." í sama skítinn aftur Fyrstu kynni Beggu af Samhjálp vom þegar hún fór inn á Hlaðgerðar- kot á nítjánda ári. „Ég hafði samt sem áður alltaf trú- að á Guð. Mamma á heiðurinn af því að kynna mig fyrir honum, en ég tók Guð inn í líf mitt í Rockville, árið 2000 að mig minnir. Þar er einnig kristileg meðferð og ég blómstraði þar í smá- tíma, eða þangað til ég tók algjöra u- beygju og sneri baki við Guði. „Ég var langyngst á Hlaðgerðar- koti og fannst ég ekki eiga neina sam- leið með fólkinu þama. Það var samt einhver ólýsanlegur kærleikur í gangi sem ég fann strax fyrir. Ég var ekki inni nema í viku en nokkmm mánuð- um seinna þegar ég var alveg búin á sál og líkama, þá fann ég að ég vildi fara aftur á Hlaðgerðarkot. Ég kláraði Adam er alinn upp í Breiðholt- inu og minnist þess þegar hann tíu ára gamall fór að fara með vinum sínum rtíður í Broadway til að leita að vínflöskum. „Menn vom alltaf að fela áfengi þarna fyrir utan og við fundum oft fimm, sex flöskur sem við gerðum góð skil. Ég varð strax þannig að ég leitaði í áfengið og vildi meira og meira. Ég var lflca til í að prófa hvað sem var annað og fór fljótlega að sniffa." Adam var ekki nema tólf ára þegar hann fór að heiman og í sveit þar sem hann var í þrjú ár. „Þar fór ég að reykja hass og svo var þetta bara botnlaus neysla þegar ég kom í bæinn. Ég bjó um tíma á heimili fyrir unglinga í Búðargerðinu en þegar ég var fimmtán ára var ég kominn í hörð efni og notaði ailt sem var í boði. Ég eignaðist kær- ustu og við þvældumst eitthvað á leigumarkaðnum en eftir að ég hætti með henni eftír fimm ára sambúð fór ég að hanga á búllum með fólki í mikilli neyslu og fór fljótlega út í afbrot." Handrukkarar sem berja fólk í plokkfisk Ástin knúði svo aftur dyra hjá Adam og hann reis í fyrsta skipti upp og fór út á vinnumarkaðinn. „Ég eignaðist dóttur með kærust- unni minni og við fluttum til Dan- merkur þar sem sambandið sprakk í loft upp. Þá fór ég alveg á bominn og þegar ég kom heim var ég orð- inn rekald í orðsins fyllstu merk- ingu." Adam leitaði sér hjálpar og dvaldi í Byrginu í sex mánuði, en eftír það fékk hann dóttur sína til sín og stóð sig ágætlega á meðan. „Þegar hún fór aftur út fór allt í sama farið. Ég var orðinn sprautu- fflciil og lifði í þessum harða dóp- heimi. Já, hann er mjög harður," segir Adam. „Stundum situr maður í einhverri holu í vikur eða mánuði og glápir á sömu myndina á veggn- um en svo þarf lflca að redda dópi og peningum og þá fer maður í af- brotin. Það eru alls konar fjáröflun- arleiðir, innbrot og sníkjur og svo tekur maður okurlán og lendir í handrukkumm sem berja mann í plokkfisk." Fjáröflun og listsköpun Adam segir fjölskylduna sína lít- ið hafa aðhafst nema beðið og von- að að hann vaknaði til lífsins. „Stundum er bara ekkert hægt að gera. Fólk verður að vilja sjálft út úr neyslunni til að eitthvað gerist. Ég hafði farið nokkmm sinnum í afvötnun á Vog en hafði aldrei út- hald í heila meðferð. Ég ákvað svo að fara í Hlaðgerðarkot fyrir einu og hálfu ári og var þar inni í sex mánuði. Þetta var meðferðin sem virkaði fyrir mig. Það var í fyrsta lagi þessi ólýsanlegi kærleikur. Það er eitthvað í loftinu þarna sem er ekki hægt að setja í orð. Ég af- klæddist mínum gamla manni og stóð upp sem ný persóna. Þá per- sónu er ég núna að rækta." Adam býr á Stoðbýli Samhjálpar á Hverfisgötu en hann situr ekki auðum höndum. „Ég er á bfl og keyri milli fyrirtækja til að athuga hvort þau getí séð af einhveiju til starfsins. Það kemur sér vel fyrir kaffistofuna og Hlaðgerðarkot og mér er undantekningarlaust mjög vel tekið. Svo hef ég verið að dunda mér við að smíða skartgripi og búa spítala og þess vegna eigum við sama edrúdag. Við hittumst svo inni á Vogi og fundum að við vildum vera saman. I þetta skipti var ég bara í tíu daga á Vogi og svo fórum við beint í prógramm, en meðferðin ein og sér hefði ekki gert mig edrú. Kærastinn minn var hins vegar harðákveðinn í að vera edrú og mig langaði að vera edrú fyrir hann. Við fómm svo í Samhjálp og þar fann ég loksins það sem ég leitaði að. Maður verður að fá fyllingu í tómið sem skapast þegar áfenginu og dópinu sleppir og fyrir mér er ekkert sem getur fyllt það tóm nema trúin á Guð. Ég fer lflca í Dorkas sem er ætlað konum í Samhjálp en þar eru fundir einu sinni í mánuði. Það er bara yndisleg og kærleiksrflc stund sem ég reyni að sleppa ekki. Svo erum við dugleg að fara á samkomur og hylla konunginn sjálfan. Fólkið í Samhjálp er lflca svo skemmtilegt og gaman að gleðjast með þeim sem gengur vel og vera til staðar fyrir hina sem gengur verr. Það er lykillinn að þessu öllu, að hjálpa hvert öðru og gefa áfram það sem manni hefur verið gefið. Svo finnst mér bara alkóhólistar lang- skemtilegasta fólkið." „Neysian endar alltaf með skelfingu. Sá sem situr með bros á vör í partíi einn daginn getur verið dáinn úr neyslunni þann næsta." Öðruvísi að tala við fólk sem átrú Begga segist líka fá „kikk" út úr sjá allt fólkið sem er að ná árangri í Sam- hjálp. „Fólk sem maður hélt kannski að myndi aldrei ná sér," segir hún. „Svo sér maður ljómann í augunum og hve sátt þau eru við þennan breytta lífsstfl. Mér finnst ég njóta al- gjörra forréttinda, að hafa öðlast trú, því það er það kröftugasta í mínu lífi. Mér finnst að fólk sem þráir að vera edrú og snúa lífi sínu við ætti að reyna Guð. Það var aðalatriðið á Hlaðgerðarkoti og þess vegna var andinn þar svo sérstakur og vinnu- brögðin em allt önnur þegar Guð er tekinn með í dæmið. Starfsfóllkið er uppfullt af kærleika og gleði og kann að deila því með öðmm. Mér finnst allt öðmvísi að tala við fólk sem á tr,fy en hina sem eiga hana ekki." Ný framtíð Beggu og kærastanum hennar fæddist svo lítil dóttir 4. janúar síð- astíiðinn. „Það var yndislegasta stund lífs míns," segir Begga og ljómar af gleði. „Jú, við emm búin að finna nafn á hana og hún verður skírð í Samhjálp 2. aprfl, en nafnið er leyndarmál. Þangað til heitir hún bara stelpurófa," segir Begga og brosir. „Það var svo skrýtið að þegar hún fæddist kom nafnið strax uppJ hugann og okkur fannst ekkert anri- að koma til greina. Það var eins og hún veldi það sjálf." Begga hefúr ekki gert neinar áætíanir um framtíðina aðrar en að hugsa um litlu íjölskylduna sína og halda sínu striki. „Mig langar að læra snyrtifræði eða gullsmíði einhvern tíma í framtíðinni, en eins og er vinn ég bara prógrammið einn dag í einu. Ég gæti lflca hugsað mér að sinna áhugamálinu mínu sem em hestar og halda áfram að syngja, en einu sinni var ég að syngja kristilega tón- list í Byrginu og stundum í Hafnar- fjarðarkirkju. Söngurinn er líf mitt og yndi. En það er ekkert sjálfgefið að vera edrú og þó ég sé búin að ná sextán« mánuðum er ég ekki hólpin. Það er algjörlega undir mér sjálfri komið og mér hefur gengið vel hingað til þó það hafi ekki alltaf verið auðvelt. Verstu stundirnar mínar núna em þó aldrei eins slæmar og skástu stundirnar í neyslunni. Það er lfka stórt atriði að ætía sér ekki um of. Ég þarf að skipuleggja mig vel og ekki síst að passa upp á litlu hlutina. Það em þúfurnar sem fella mann en ekki fjöllin. Nú er ég líka búin að læra að bera virðingu fyrir umhverfinu og öðru fólki og svo er ég hætt að gera lífið flókið. Mér fannst alltaf að ég þyrfti að gera allt 100% en nú veit ég að það er allt í lagi að gera mistök ef maður lærir af þeim." ^ Nú heyrist í lítilli prinsessu t vagninum sem vill athygli mömmu sinnar óskipta. Begga kemur með hana inn af svölunum og þvflflc feg- urðardís. Hún brosir engilblítt til mömmu sinnar og þær mæðgur ljóma eins og sólir. Þegar ég kveð heyri ég þær hjala hvor við aðra og veit í hjarta mér að með Guðs hjálp mun Beggu ganga allt í haginn. Hún er hörkustelpa og hefur öðlast til- gang í lífinu. edda@dv.is Framhaldá næstusíðu Sighvatur Adam Adam segist ekki geta hugsað til enda hvarhann væri staddur efhann hefði ekki kynnst Samhjáip. til lampa og lampaskerma. Ég sendi meira að segja einn lampa í sam- keppni fyrir nokkm. Bara að geta sent hann og verið með var sigur." Margir sem kveljast enn Adam segir vei haldið utan um hann á stoðbýlinu og segist ekki geta hugsað þá hugsun til enda hvar hann væri staddur ef ekki væri fyrir Samhjálp. „Þetta var upp á líf og dauða," segir Adam sem í framtíðinni lang- ar að eignast heimili og fá sér vinnu. „Ég er orðinn þátttakandi í lífinu og vona að ég fari aldrei aftur á þann stað sem ég var á. Nú get ég ekkert gert nema rækta sjálfan mig og gefa öðrum hlutdeild í því sem ég hef eignast. Margir vina minna em enn þarna úti í kvöl og ég legg þá í hendurnar á Guði á hverjum degi. Það að ég skyldi öðlast nýtt líf getur vonandi gefið öðmm von, ég var úrhrak sem enginn hafði trú á lengur. Ég hef tekið þá ákvörðun að vera edrú til æviloka, einn dag í einu, og helga líf mitt Guði og því að hjálpa öðmm. Það gerir það að verkrim að ég sofna sæll á hverju kvöldi." edda@dv.is meðferðina þá, tók bflpróf og fór að vinna í Rúmfatalagemum. Ég var samt ekki tilbúin til að vera edrú og eftír smátíma sprakk allt í höndunum á mér, ég féll, misstí vinnuna og fór í sama skítinn aftur." Begga útskýrir að sumir alkóhól- istar nái ekki bata fyrr en eftír margar tilraunir inni á meðferðarstofnunum og ekki fyrr en fólk fari sjálft að taka sönsum. „Það verður að þiggja þá hjálp sem býðst til að haldast edrú. Það verður samt enginn edrú bara með því að fara í meðferð, það er and- lega prógrammið sem er töfralausn- in. Fólki finnst það kannski illskiljan- legt en það er ömurlegt fyrir alkóhól- ista að vera edrú ef hann er ekki í pró- gramminu og ekki í bata. Þá er eigin- lega skárra að vera dópaður," segir hún. „Og það sem sumir skilja ekki er að ég er ekki alkóhólisti af því ég nota dóp. Ég nota dóp af því ég er alkó- hólistí." Kynntust á Hlaðgerðarkoti Þó Begga væri sjálf dottín aftur var hún alltaf að ráðleggja fólki að fara í Hlaðgerðarkot. „Þar hafði ég fundið allt það góða í lífinu. Og svo fór ég þangað eina ferðina enn. Þá var mamma mín ein heima niðurbrotín og leið rosalega illa en þá greip ég inn í. Ég fékk leyfi til að fara heim og ég pakkaði niður fyrir hana og kom henni inn á Hlaðgerðarkot sem að- standanda. Hún hefur verið allt önn- ur manneskja síðan og er núna virk í Samhjálp. Tveimur vikum seinna var ég komin í fangelsi. Ég var þar í þrjá mánuði og það er verstí tíminn í lífi mínu." Begga segist ekki geta rakið sög- una sína nákvæmlega en hún leitaði þó alltaf aftur í Hlaðgerðarkot. „í síðustu meðferðinni kynntíst ég svo bamsföður mínum en við fórum ekki að vera saman fyrr en seinna. Þá vomm við bæði edrú í svolítínn tíma en svo fór allt á versta veg. Ég fór á fundi og var að reyna að vera eins og þeir sem vom lengra komnir í staðinn fyrir að vera bara nýliði og taka leið- sögn. Ég vildi gera allt í gær. Það end- aði með enn einu fallinu og ég fór á ijögurra mánaða túr sem endaði með sjúkrahúsvist. Á sama tíma var kær- astinn minn, sem ég var reyndar hætt með á þessum tíma, næstum dáinn úr neyslunni. Það var fyrir algjöra Guðs náð að hann bjargaðist." Alkóhólistar langskemmtilegastir „Daginn sem hann fór af spítal- anum og inn á Vog var ég lögð inn á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.