Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Side 62
62 LAUGARDAGUR 77. MARS 2006
Síðast en ekki síst DV
DVD diskar sem eyðast á tveimur dögum
„Það hefur verið ágætis sala á
þessu, enda kostar þetta bara 500
kall," segir Jón Karlsson, verslunar-
stjóri í Hagkaupum í Skeifunni, sem
nú selur DVD diska sem verða ónot-
hæfir um 48 tímum eftir að þeir eru
teknir úr umslaginu. Viðskiptahug-
myndin gengur út á tímabundna
leigu á höfundarrétti myndarinnar
og þannig séð hugsað sem „leiga"
fremur en kaup, þótt þeir sem disk-
ana kaupa þurfa ekki að
hafa áhyggjur af óheyrilega
háum dagsektum videoleiganna -
eitthvað sem títt hefur tæmt pyngju
ritstjórnar Ha?
Framleiðendur diskanna segja
Ha?
Tveggja daga diskar
Meöal titla er hægt að
fínna myndina 48 hrs.
sem eyðist á 48 hrs.
gæði myndanna engu minni en
hefðbundinna diska, en með sér-
stakri efnablöndu verður diskurinn
svartur eftir tiltekinn tíma og þannig
ólæsilegur. Þó er hægt að skoða
diskinn eins oft og mögulegt er þar
til „eyðingin" hefst. Framleiðendur
lofa að umhverfinu sé hvergi stefnt í
hættu með notkun diskanna, því
þeir séu lesanlegir í öllum spilurum
og diskinn er hægt að endurvinna ef
honum er skilað tii ffamleiðanda.
Þorvaldur Þorláksson, fram-
kvæmdastjóri Bónusvídeós, hefur
litla trú á framtaki verslananna. „Á
þessum diskum er efni af eldra tag-
inu, svipað því sem almennt fylgir
frítt með nýjum myndum á vídeó-
leigum." Sem hefiid fyrir sektir
myndbandaleiganna vonast rit-
stjórn Ha? að þeir fari að hugsa sinn
gang verði nýjir titlar á boðstólnum.
Hvað veist þú um
Háskóla Islands
1. Hvar var skólinn fyrst til
húsa?
2. Hvað voru margir við
nám fyrsta starfsárið?
3. Hvaða skólar runnu
^S&man við stofnun
háskólans?
4. Hvaða ár flutti skólinn í
háskólabygginguna við
Suðurgötu?
5. Hvað lögðu margir stund
á nám í skólanum 2005?
Svör neöst á síöunni
Hvað segir
mamma?
„Þetta er
indæll dreng-
t~a^jr," segir Lilja
Bergsteins-
dóttir, móðir
Hilmis Snæs
Guðnasonar
leikara.
„Hann er
duglegur og
vinnursína
vinnu vel.
Hann er glaðlegur og hress og sein-
þreyttur til vandræða. Hann hefur
náttúrulega sitt skap og lætur eng-
ann vaða yfír sig þó þanþolið sé mik-
iö. Hann var ósköp Ijúfur og glaður
drengur í uppvextinum og aldrei til
vandræða. Hann hefur alltaf haft
gaman afþví að segja frá og var
strax I Hagaskóla farinn að sýna til-
burði til að feta leiklistarbrautina."
Hilmir Snær Guðnason lauk námi
við Leiklistarskóla fslands árið
1994. Hann var fastráðinn við
Þjóðleikhúsið til ársins 2005 þar
sem hann fór með fjölmörg hlut-
verk, m.a. Kristján í Veislunni, en
fyrir það hlutverk hlaut hann
Grimuna - íslensku leiklistarverð-
launin. Hilmir hefur leikið i fjöl-
mörgum kvikmyndum og fékk
Edduverðlaunin fyrir leiksinn í
Mávahlátri. Hilmir hefur undan-
farið leikið i einleiknum Ég ermín
eigin kona, sem sýnt hefur verið
■ fyrir fullu húsi i Iðnó. Sýningum á
þvi fer nú að Ijúka.
/Sw,
f ; •; -v
Gott hjá Láru Ómarsdóttur aö tala
við 56 milljón Breta um barneignir
sínar.
?*v8r viö spumingum:
1.1 Alþingishúsinu við Austurvöll. 145 3. Prestaskólinn,
Læknaskólinn og Lagaskólinn. 4. 1940 5. Tæplega 6.800
Hállnuð lör Nylon um Stðra-Bretland
Bretaprins líklega meðal málaðra áhorfenda
-. > >■
Nylon Birtust á forsiðu
Salford Advertiser en för
þeirra um Bretiandseyjar
er nú hdlfnuö og viðtökur
hafa veriö frdbærar.
„Þetta er sannar-
lega mikið ævintýri
og allt annað en við
erum vanar. Við
ferðumst hér um
Bretland og komum
fram tvisvar til
þrisvar á dag við alls-
konar tilefni. Það
sem hefur komið
mest á óvart er mikill
áhugi fjölmiðla á
þessum litla túr okk-
ar. En það er bara fer-
lega gaman," segir
Alma Guðmundsdótt-
ir í Nylon-flokknum.
Nú er mikill túr
Nylonstúlkna um
Bretlandseyjar hálfnaður
og hefur aÚt gengið að
óskum - svo vel reyndar
að Alma segir að þær
verði að leggja nokkuð á sig við
að halda sig við jörðina. En þetta eru
sannarlega skref í þá átt að ná athygli
heimsbyggðarinnar. „Og það er
ferlega góð stemning hjá okkur og
við erum að ná að kenna hljóðmann-
inum og tour managemum okkar ís-
lensku," sagðiAlma.
Þær Alma, Klara, Camilla and Em
- eins og þær kalla sig á hinu enska
HA»0* • *“*
sMKmoMraMrtsít ~ ^ » .
Hot Ice-lands in city
Nyloris material goes down weU with
pupils írom two lucky Salford schools
og
málsvæði - em sem
sagt í fluggír. Og engar ýkj-
ur að þær hafa náð að
fanga athygli þarlendra
fjölmiðla. Fjölda útvarps-
viðtala, sjónvarpsviðtala
blaðaviðtala er að baki og
Nylon í Stoke Nylon-stúlkur töluöu til hálfar milljónar hlustenda útvarpsstöövar íStoke.
framundan. Nylon-flokkurinn rataði
til dæmis á forsíðu á blaðinu Salford
Advertiser, sem og á forsíðu Sentinel
í Stoke, Stafford and Stone Chronicle
og Yorkshire Evening Post - auk þess
að vera í ítarlegu viðtali við Signal
FM 92.5. Hlustendur Signal em hálf
milljón en útvarpstöðin er í Stoke
þar sem íslendingar þekkja sig í bolt-
anum.
Tónleikaferðin byrjaði í Skotlandi
í lok febrúar og endar í London 31.
mars nk. Nylon kemur fram við ýmis
tækifæri, í skólum, félagsmiðstöðv-
um, háskólum eða næturklúbbum.
Og fær mikil viðbrögð.
Sem dæmi má nefna þegar þær
tóku lagið í stúdentaklúbbi við St.
Andrews University á dögunum og
var mikil stemmning. Mættu gestir
kiúbbsins málaðir í íslensku fána-
litunum og sumir með íslenska fán-
ann með sér. St. Andrews er þekkt-
astur fyrir það að William breta-
prins sækir skólann. Ómögulegt er
um að segja hvort William var með-
al gesta, enda karlpeningurinn mál-
aður.
Kröftugur hópur blaðamanna
Ég man eftir þessum tíma, hvort
ég man," segir Eggert Skúlason, fyrr-
verandi fréttamaður, sem þama er
hægra megin fyrir miðju á ritstjórn-
arfundi hjá dagblaðinu Tímanum.
„Myndin var tekin 1987, á 70 ára af-
mæli Tímans. „Ég átti þriggja ára
starfsreynslu að baki og var þama
fféttastjóri með Birgi Guðmunds-
syni. Á myndinni em nokkrir sem
enn tengjast blaðamennsku eins og
Þór Jónsson, fréttastjóri á NFS, Berg-
ljót Davíðsdóttir, blaðamaður á DV,
Pjetur Sigurðsson, ljós-
myndari á DV, og Birgir
Guðmundsson. Hins
vegar er Gunnar Smári
Egilsson nýlega hættur
þegar þessi mynd er tekin
en honum kenndi ég allt
sem hann kann," segir
Eggert hlæjandi og minn-
ist hve gaman hafi verið
að vinna með öllu þessu
ágætisfólki enda hafi fylgt
því mikill kraftur.
Ritstjórnarfundur á Tíman
um 1987 á 70 ára afmæli
biaðsins Á myndinnistjórna
fréttastjórarnir, Eggert Skúla-
son og Birgir Guðmundsson,
fundi en ritstjórinn, Níels Arni
Lund, stendur aftan viö Birgi.
EHTmTCTVAWMUI
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
MinnistöfUir
FOSFOSER
MEMORY
- oq sötuaöili
ími: 551 9239
irkiaska.is
Birkiaska
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN