Freyr

Volume

Freyr - 15.05.1972, Page 6

Freyr - 15.05.1972, Page 6
Stjórn Búnaðarfélags íslands, kjörin 1971 til fjögurra ára. Talið frá vinstri: Ásgeir Bjarnason, Einar Ól- afsson og Hjörtur E. Þórarinsson. BUNAÐARÞING 1972 Búnaðarþing, hið 54. í röðinni, var sett í Bændahöllinni mánudaginn þann 14. febrú- ar. Formaður Búnaðarfélags íslands og forseti þingsins setti það með ræð-u, er fjallaði fyrst og fremst um afkomu land- búnaðarins á liðnu ári svo og viðhorf þau, sem við blasa og nokkur atriði þeirra verk- efna, sem að er unnið um þessar mundir sérstaklega á sviði þess hluta þjóðarinnar sem byggir sveitirnar. Við setningu þings- ins flutti landbúnaðarráðherra Halldór E. Sigurðsson erindi og formaður Kvenfélaga- sambands íslands, frú Sigríður Thorlacius, ávarpaði þingið. Kjörnir aðalfulltrúar mættu til þings 23 og tveir varafulltrúar, þeir Guttormur V. Þormar, fyrir Búnaðarsamband Austur- lands og Engilbert Ingvarsson, frá Búnað- arsambandi Vestfjarða, en þeir hafa ekki fyrr tekið sæti á Búnaðarþingi. Að venju munu tíðindi frá Búnaðarþingi verða birt í Búnaðarritinu og skal því að- eins í stuttu máli drepið hér á örfá atriði þeirra 33 mála, er afgreidd voru á þinginiu, en samtals voru þar fram lögð 39 mál. Þau verkefni, sem fulltrúar fengu til meðferðar, voru sum mjög tímafrek og má þar sérstaklega nefna tvo stærstu laga- bálkana, sem íslenzkir bændur vinna eftir og þá varðar sérlega, en það eru jarðrækt- arlögin og búfjárræktarlögin. Hvoru- tveggja voru til endurskoðunar og á þeim gerðar verulegar breytingar í vissum atrið- um. Að sjálfsögðu eiga þau framundan leiðina í gegnum Alþingi og fyrirfram verður ekki séð hvaða breytingar kunna að verða gerðar á þeim frá því, er Bún- aðarþing samþykkti. Milliþinganefndir höfðu unnið að endurskoðiun lagabálka 198 F R E r R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.