Freyr

Árgangur

Freyr - 15.05.1972, Blaðsíða 22

Freyr - 15.05.1972, Blaðsíða 22
iöCW Matjurðabókin Garðyrkjufélag íslands gaf út Matjurtabók árið 1958. Sú bók er fyrir nokkru uppseld. Þótti því viðeigandi að gefa hana út aftur og að þessu sinni aukna og endurbætta og sniðna eftir nútíma við- horfum. Til þess voru valdir þrír aðilar — EINAK INGI SIGGEIRSSON, INGIMAR SIGURÐSSON og ÓLI VALUR HANSSON — að endurrita og sjá um útgáfuna fyrir hönd félagsins, sá síðastnefndi sem ritstjóri. MATJURTABÓKIN er 230 blaðsíðna rit með fjölda mynda og sundurliðuðu efnisyfirliti, ásamt lista yfir íslenzk og latnesk plöntuheiti, og er sá listi mjög þarfur, því að á því hefur borið, að ís- lenzk heiti hafi sézt á prenti og verið gefin allt öðrum jurtum en þau eru í raun og veru tileinkuð. Umræddri bók er skipað í fjóra aðalkafla, þessa: Undirstöðuatriði matjurtaræktar — Ræktun al- gengra tegunda — Krydd- og krásjurtir — og Berjarækt. Fyrsta kaflanum cr svo skipað í 12 þætti, er samtals fylla um það bil helming bókarinnar. Með ágætri flokkun efnisins er sérlega auðvelt að finna það, er mann fýsir að lesa um hverju sinni því að þáttunum er raðað og blaðsíðutal tilgreint við hvert atriði í hverjum kafla. Vilji lesandi t. d. finna hvað þar er sagt um gróðurreiti og sáningu í þá, er Vn þáttur fyrsta kafla einmitt um gróður- reiti og þar er atriðið sáning tilgreint á bls. 52. Eða ef lesandi vill fræðast um ræktun gulróta þá er að líta á efnisyfirlit: Ræktun algengra teg- unda, það er kafli B, þar er enginn þáttur skráður, en atriði um gulrætur og ræktun þeirra tilgreint á síðu 132. Bókin er því á sína vísu skráð á líkan hátt og alfræðiorðabók, mjög aðgengileg til þess að finna það, sem lesarinn vill fræðast um og hún tjáir. Alfræðiorðabók er þó ekki um að ræða heldur leiðbeiningarrit, ætlað áhugamönnum í matjurta- ræktun og berjaræktun, en vafalaust geta lærðir garðyrkjumenn einnig haft af henni nokkurt gagn, enda er bókin skráð af þremenningum, sem spenna yfir vítt svið hagnýtra og fræðilegra efna, byggð- um á traustum forsendum reynslu og Iærdóms. Þeir, sem fyrr hafa tiieinkað sér þekkingu um þekja yfirborð ökusvæðis á hlaðinu. Úti í sveitum er varla um að ræða asfaltþakn- ingu, hún er svo umsvifamikil og yfirleitt svo langt frá sveitabæjum, að hæpið er að hún komi til greina, nema ef vera skyldi í nánd við þá vegi, sem verið er að mal- bika með asfalti. Hitt virðist vera stað- reynd, sem við blasir um þessar mundir, að í ýmsum og ef til vill mörgum þorpum, verði götur þaktar tjörumöl um komandi ár. Liggur þá nærri að álykta og spyrja hvort viðeigandi þyki að athuga hvort bændur sjái sér fært að fá olíumöl á um- ferðasvæðin við íbúðarhúsin? Er hægt og forsvaranlegt að fá olíumöl á hlaðið? Þessu verður auðvitað svarað á ýmsan hátt og vafalaust setja margir fram spurningu á móti. Hvað kostar það á fermetra og hvem- ig þarf að undirbúa það? Þessu verður að sjálfsögðu ekki svarað hér, en því er málið fært á vettvang, að vissulega er viðeigandi að bændur kanni þetta viðhorf, einkum þeir, sem búa í ná- munda við þá staði, sem olíumalarlagning er fyrirhuguð á götum eða vegum. Getur þá vel verið til athugunar hve margir grannar innan sveitar hafa í hyggju að efna til slíkra framkvæmda svo að þeir, ef til vill í félagi, geti sjálfir undirbúið að nokkru eða miklu leyti samkvæmt for- skriftum þeirra, sem leggja skulu mölina á yfirborðið. Það er hér eins og víðar, að mikið veltur á undirbúningsvinnunni. Málinu er hér með beint á vettvang því að hér er um að ræða menningaratriði, því að aukin umgengnismenning hlýtur að fylgja og framkvæmdin getur verið félags- legt framtak að nokkru eða verulegu leyti. G. 214 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.