Freyr - 15.05.1972, Blaðsíða 38
skepnur sætt vanlíðan, að ekki hefur verið
nógu rækilega um þessi efni fjallað.
Tilviljunarfyrirbæri á þessu sviði mega
aldrei gilda. Það hafa þau gert of víða og
oft svo að skepnum hefur verið búin van-
líðan í húsvistinni. Talað hefur verið um
loftræstingu með yfirþrýstingi og undir-
þrýstingi, endurstreymiskerfum og jafn-
streymiskerfum, en öll hafa þau haft ein-
hverja annmarka. Aldrei hefur neitt þeirra
leyst allan vanda.
Sjálfsagt er vandfundið það kerfi, sem
enginn annmarki loðir við, en tilviljun má
ekki ráða hvernig loftræstibúnaður verkar.
Það má ekki vera rakaþrungið umhverfi
um einn grip og dragsúgur um annan eins
og svo oft hefur verið. í samráði við ýmsa
ráðunauta og marga starfandi bændur hef-
ur verið leitað eftir vandamálunum, sem
við brenna, í þeim tilgangi að útrýma þeim
og fullkomna nýja tækni. Með sívirku
hringstreymi þykir nú líklegast að jafn-
virkur árangur náist, og hann virðist názt
bezt með því að hafa brottrás notaða lofts-
ins í gegn um stromp á þaki, hlýja loftið
leitar alltaf upp, og fá hreina loftið inn um
raufar á veggjum eða við glugga. Hið nýj-
asta í þessu sambandi er að gera stromp-
inn tvöfaldan svo að um úthólf hans
streymi hreint loft inn en gufumettað kol-
sýruloft út um miðjuna. Framleiðendur
síðastnefndu gerðar strompa telja þann
loftræstibúnað hinn eina rétta. Hvort svo
er virkilega hlýtur reynslan að staðfesta
eða afneita, en hvað sem öllu líður getur
verið eðlilegt að halda sig við það loft-
ræstikerfi, er hefur mesta sjálfvirkni.
Rafknúðar rellur hafa þótt góðar og ágæt-
ar, en þegar rafmagnið svíkur eru þær
óvirkar og mörg dæmi eru um köfnun bú-
fjár þegar svo ber við. Sívirkt hringstreymi
(aktiv turbulens) er góð loftræsting, sem
þarf að ná til allra hluta peningshússins.
(Landsbladet).
HRÆRIVÉLAR
Síðumúla 21. - Sími 84443
150 og 220 I fyrir
steypu og tilbúinn
áburð o. fl.
LANDVÉLAR HF.
230
F R E Y R