Freyr - 15.05.1972, Blaðsíða 37
Loftrœsting
Um undanfarna áratugi hafa fjölþættar rann-
sóknir og tilraunir verið gerðar í þeim til-
gangi að komast að raun um hvernig hezt er
að loftræsta peningshús. Hafa margar gerðir
búnaðar verið reyndar og mörg próf gerð.
Hér á eftir fer lýsing á inntöku hreins lofts
á tvo vegu, annarsvegar í gegn um tvöfaldan
stromp, hinsvegar í gegn um op á hliðveggj-
um, eins og algengast er. Örvarnar á mynd-
unum sýna hreyfingar loftsins innan veggja.
Myndir og grein er fengið úr dönsku búnað-
arblaði.
Peningshúsin eru eitt af mikilvægustu at-
riðunum í framleiðslumálum bænda. Þess
vegna er nauðsynlegt og eðlilegt að allt sé
gert sem unnt er til þess að búa skepnun-
um sem bezt skilyrði innan veggja, þá þríf-
ast þær þeim mun betur og hirðing þeirra
og gæzla er auðveld.
Frá upphafi vega og enn í dag er and-
rúmsloftið í peningshúsum, og ræsting þess
og hreinsun, mikils virði og hefur bein
áhrif á líðan skepnanna. Loftræstibúnaði
þarf því að haga þannig, að hann verki sem
bezt.
Að sjálfsögðu vita allir, að nauðsynlegt
er og eðlilegt að hafa vald á gerð og gæð-
um andrúmsloftsins innan veggja, en um
hitt eru menn talsvert ósammála, hvers
konar loftræstikerfi eru notuð. Skoðanir
manna á því eru máske mest skiptar af því
að um mörg kerfi er að velja og allir selj-
endur telja sín kerfi öðrum betri.
Gömul kerfi eru endurbætt og nýr loft-
ræstibúnaður kemur á markað við og við.
Rannsóknir halda áfram. Allt miðar þetta
að bættum aðferðum og betur virkum bún-
aði en áður var viðurkenndur. Nýjar að-
ferðir taka ekki alltaf fram hinum eldri en
eitthvað betra en hið gamla kemur jafnan
í dagsljósið, sem bætir og betrar andrúms-
loft peningshúsa.
Tilraunir og rannsóknir síðustu ára, á
sviði loftræstingar, hafa leitt í ljós ýmsa
galla, sem ástæða var til að nema brott og
finna betri tæknibúnað og öruggari til
notkunar en áður var þekktur. Loftræsti-
kerfi getur út af fyrir sig verið gott og
ágætt, en hvað hjálpar það, ef maður þarf
alltaf að vera nærstaddur til að stýra því?
Sjálfvirknin þarf að koma inn hér eins og
á öðrum sviðum.
Það hefur verið talin gildandi regla að
segja fyrir um hvaða hitastig skuli vera í
andrúmslofti peningshúsa og hvaða raka-
stig einnig, en hvað stoðar það þótt kjör-
stig sé á einum eða fáum stöðum í fjósum
ef flestar kýrnar búa við allt annað hita-
og rakastig? Sú hætta er á ferðum og hef-
ur einatt ríkt þar sem ræstingin nær að-
eins til hluta hússins. Því hafa margar