Freyr

Volume

Freyr - 15.05.1972, Page 13

Freyr - 15.05.1972, Page 13
Þorsteinn hefur sáð og gert gróinn völl þar sem fyrr var urS og aurar og eyðimörk. Af því hafa fregnir borizt, að Þorsteinn á Reyðará fái ánlega afurðir af fé sínu í miklu stærra mæli en gengur og gerist og jafnvel verið methafi á því sviði. Bið ég hann því að gena grein fyrir hvaða aðferðir hann viðhefur ef vera mætti öðrum til fyrirmyndar við meðferð sauðfjár. Beini ég því til Þorsteins nokkrum spurningum og bið hann um svör við þeim. Fara spum- ingar og svörin hér á eftir. — Hvernig hagar þú fóðrun á fé þínu framan af vetri? — Ég hefi alltaf leitast við að koma í veg fyrir aflagningu ánna að haustinu. Til þess að það megi verða þarf að fara >að hygla ánum á einhvem hátt um mánaða- mótin október—nóvember. Stundum hefur þeim verði gefinn fóðurbætir með beitinni allan nóvember, en oftar þó komnar á al- gerða innistöðu fyrir eða um miðjan þann mánuð. Sá háttur veitir mjög mikla trygg- ingu fyrir góðri frjósemi. Vetrarbeit er hér ákaflega rýr og því hefur féð verið hér nærri alveg á algerðri innifóðrun síðast- liðin 10—15 ár. Ég gæti orðað það svo, að hér væri vetrarheit fóðurþjófur. — Notar þú þá kraftfóður með töðunni, með heit eða um sauðburð? — Kraftfóður er alltaf gefið um fengi- tímann og á sauðburði. Notkun kraftfóðurs yfir miðveturinn hefur farið eftir gæðum heys og magni þess. — Hve mikið fóður notar þú að meðal- tali á vetrarfóðraða kind? — Mín fóðurforskrift er sú, að í maí- byrjun séu ærnar 10—12 kg þyngri en á F R E Y R 205

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.