Freyr

Volume

Freyr - 15.05.1972, Page 18

Freyr - 15.05.1972, Page 18
legum atriðum frábrugðin hefðbundnum gróðurhúsum, eða eins og hér greinir: Hlið- ar eru lóðréttar um 2,80 m á hæð, þak bogadregið, sem er talið betra gagnvart ljósstreymi. Stöðluð breidd er um 12,50 m en lengd eftir þörfum. Þó er auðvitað alltaf hagstæðast, að húsið nái vissri lágmarks- lengd. Enginn steyptur grunnur er undir húsunum, en steyptir stöplar undir stoðum á hliðum og í göflum. Plastið er látið ganga 20—30 cm í jörð. Þess má geta, að umrætt plast á að þola hitastig frá-^-40-\- 130°C. Til þess að sýna hvernig þessi hús líta út, fylgir hér uppdráttur af helztu atriðum viðvíkjandi byggingunni. Verðlag þessara húsa er nokkuð hátt, en þau eru verk- smiðjuframleidd að öllu leyti. Fermetri í 50x12,50 m húsi er tjáður vera um 70 DM, sem eflaust yrði 2500—2800 kr. hingað komið. En í verði er allt innifalið, bygging, loftaugu á þaki og hliðum ásamt mótorum fyrir loftun, dyr o. s. frv. Undantekning er þó hitun og frágangur á grunni. Ef aðeins er tekin einföld þakloftun, lækkar verð verulega og sömuleiðis ef loftun á hliðum er sleppt. Ef verulegt magn húsa er pantað, lækkar kostnaður verulega (ca. 43 DM á m2). Járngrind er öll galvanhúðuð. Það er athyglisvert, að nokkur þeirra gróðurhúsa, sem byggð hafa verið úr plastplötum hér á landi, hafa í verulegum atriðum það byggingarlag, sem hér er greint frá. Til eru verksmiðjubyggð hús, sem ætluð eru fyrir harðplastplötur og eru allmiklu ó- dýrari. Sem dæmi um slíkt má nefna Block Europa frá Gabler Schorndorf í Þýzka- landi, þar sem tilbúið hús með harðplast- plötum og vandaðri grind og loftunarút- búnaði á göflum kostar um 34 DM eða um 850 kr. eftir gengi. Sennilega þyrfti að bæta við þá upphæð a. m. k. 50% til að fá vænt- anlegt verð hér á landi. í verðinu er hvorki frágangur á grunni né hitalögn. Akrylplast. Þess var áður getið að akrylplast væri sér- staklega gott bæði hvað snerti ljóshæfni og endingu. Gallinn á því hefur hingað til verið sá, að það hefur verið afar dýrt og erlent verð hefur verið um 6—700 kr. á ferm. án tolla og flutningskostnaðar. Hefur akrylplast þess vegna ekki komið til greina sem byggingarefni í gróðurhús fram að þessu. Nú hefur það skeð, að nokkur stór- fyrirtæki á sviði plastframleiðslu hafa lækkað verð á akrylplasti verulega. Er nú svo komið, að enska efnasamsteypan I.C.I. telur sig geta boðið tilbúin gróðurhús á því sem næst hliðstæðu verði við gróður- hús úr gleri. Þar sem ljóshæfni akrylplasts er meiri og bogamyndað þak hleypir inn hlutfallslega meira ljósi, er þess að vænta, að slík hús gæfu meiri uppskeru, en hve miklu mundi muna er að svo komnu ekki hægt að segja um. Þó benda bæði enskar og sænskar rannsóknir frá síðari árum til, að hann muni vera nokkur. í þessu efni er enn mörgu ósvarað, en efa- laust er hér um að ræða marga ókannaða möguleika. Tvöfaldar akrylplötur. Önnur gerð af akrylplasti kann að eiga eftir að hafa verulega þýðingu, en það eru plötur úr tvöföldu akrylplasti (plexigler). Þessar plötur eru sem vænta má enn mjög dýrar, en þar sem þær gætu hafa vissa þýðingu, t. d. við byggingu húsa, þar sem 210 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.