Freyr

Volume

Freyr - 15.05.1972, Page 35

Freyr - 15.05.1972, Page 35
PHOMA EXIGTJA veldur stórfelldu tjóni. verið hefur lengi að mati dómbærra manna. Samkvæmt upplýsingum bæði frá fram- leiðendum, svo og frá þeim aðilum, sem eru í daglegum tengslum við framleiðendur, þ. e. Grænmetisverzlun landbúnaðarins og yfirmatsmanni garðávaxta, E. B. Malm- quist, kemur þó í ljós, að umræddar skemmdir eru síður en svo í rénun. Þvert á móti virðast þær aldrei hafa verið meiri né öllu útbreiddari en einmitt á þessum vetri. Ástand þetta er því nánast mjög al- varlegt. Nú vaknar vafalaust sú spurning hjá mörgum, hvort ekki muni tiltækt með einhverjum ráðum eða aðgerðum, að kveða niður þurrrotnunina, eða a.m.k. að stemma að einhverju leyti stigu fyrir hinar geig- vænlegu skemmdir hennar, sem verið hafa að undanförnu. í þessu sambandi skal ræktendum bent á að kynna sér áðurnefnd- ar greinar í Frey, hafi þeir ekki þegar gert það, en í þeim er að finna helztu valkosti, sem plöntusjúkdómasérfræðingar telja sig geta bent á til úrbóta, að svo komnu máli. Til vonar og vara skulu þessar ráðstafanir þó rifjaðar hér upp, lesendum til glöggv- unar: 1. Algjör endurnýjun á útsæði og skipta um garðland. 2. Einungis skipta um útsæði. 3. Sótthreinsun útsæðisins skömmu fyrir niðursetningu eða um leið og niðursetn- ing fer fram. 4. Sótthreinsun garðlanda með lyfjum. 5. Sótthreinsun á áhöldum og öðrum nauð- synjagögnum, sem koma í snertingu við kartöflurnar (kassar, flokkunarvélar o. s. frv.). 6. Gætileg meðferð á uppskerunni. 7. Gagnger sótthreinsun kartöflugeymslna á hverju ári. Að skipta alveg um útsæði og jafnframt að skipta um garðland, er í fæstum tilvik- um gerlegt, ef um umfangs mikla ræktun er að ræða. Öðru máli gegnir þar sem rækt- unin er takmörkuð. Sé sýkingin á mjög háu stigi, er þó vart um annað að ræða en að grípa til endurnýjunar á útsæðinu. F R E Y R 227

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.