Freyr - 15.05.1972, Qupperneq 42
í rannsóknum Daytons dóu 80 manns af
hjartakvillum og krabbameini, þeir er
fengu ómettaða fitu í fæðunni, en dýrafitu
neytendur dóu 87 á sama tíma. Samtals
dóu á því skeiði 174 af fyrrtöldum en 177
af síðartöldum. Fleiri dóu af hjartamein-
um og færri af krabbameinum í dýrafitu-
hópnum en samanburðarhópnum.
í Bierbaums rannsóknum og tilraunum
dóu, á 5 árum, 5 manns úr hjartakvillum
úr samanburðarhópi en f jórir úr þeim hópi,
er fékk dýrafitu. Aftur sönnun þess, að
fitan hafði þar engin áhrif á fjölda dauðs-
falla. í öðrum tilraunum Lerens, Turpein-
ens og fleiri, var fæða fólksins þannig sam-
sett, að samanburður hópanna var fráleitur
og niðurstöður því einskis virði, ef dæma
skyldi áhrif fitu á hjartakvilla.
Ýmsir hafa beint athygli sinni mjög að
Framingham rannsóknunum, sem nýlega
er lokið eftir 20 ára starf. í lokaskýrslu um
þær er greint frá áhrifum þeim, er komið
hafa fram í kolesterolmagni blóðvökvans
miðað við þá þætti, er stafað gætu frá
fæðunni, þ. e. fituneyzlu á dag mælt í
grömmum dýrafitu, samanborið við aðra
fituneyzlu. í greinargerðinni sézt ekki að
nokkurt samband hafi verið milli dýra-
fituneyzlu og kolesterolmagns í blóðinu.
Niðurstaðan hvetur aðeins til varfærni
þegar kenningar um áhrif fæðunnar á
kolesterolmagn blóðs eru færðar á vett-
vang. í Framingham rannsóknunum var
fitumagn fæðunnar mjög breytilegt. Víst
var mismunur á einstaklingum, en fæðan
átti ekki sök á því. Ef gera skal tilraunir
með stóra hópa fólks er æskilegt að vita
hvaða atriði það eru, sem hafa áhrif á
mismunandi magn kolesterols í blóði ein-
staklinga. Auk staðfestingar á kolesterol-
magni blóðsins voru einnig rannsökuð á-
hrifin á æðakerfið, kransæðarnar. Engar
verkanir var heldur hægt að staðfesta þar.
Engar rannsóknir um þessi efni hafa
staðið í 20 ár, aðrar, en þessar í Framing-
ham. Þetta vil ég undirstrika og það um
leið, hvaða þýðingu C-vitamín hefur í sam-
bandi við hjarta- og æðasjúkdóma. Við
vitum að í Finnlandi er C-vitamínskortur
algengur á vetrum og á vorin.
C-vitamín er nauðsynlegt við myndun og
viðhald æðaveggjanna. Einnig er C-vita-
mín nauðsynlegt við viss efnaskipti, m. a.
við brennslu vissra fitutegunda. C-vitamín
lækkar kolesterolmagn, lipoids og fitu í
blóðvökvanum. Við rannsóknir í Austur-
og Vestur Finnlandi árið 1958 sýndi það
sig, að talsverður munur var á C-vitamín-
neyzlu í þessum landshlutum og í samræmi
við það var munur á tíðni hjartakvilla,
þeir voru algengir í Austur-Finnlandi þar
sem C-vitamínneyzla var minni. Að mínu
áliti er spursmálið um hjartaveilur nátengt
vissum hvatakerfum. í sambandi við þetta
mun unnt að finna skýringar á vissum
fyrirbærum varðandi steinefni, vitamín og
vaka, sem meira eða minna eru í tengslum
við þróun og rás hjartakvilla.
Skortur eða ofneyzla þessara þátta getur
truflað heilbrigða efnabreytingu og veiklað
heildarkeðjuna í þeim svo, að hjarta og
æðar hljóti mein af og niðurstaðan verður
ein hvar svo sem veilur eru myndaðar í
keðju lífsrásarinnar.
(Landsbygdens folk. 8/8 1971).
234
F R E Y R