Freyr - 01.10.1972, Page 6
AÐALFUNDUR
Árið 1972 var aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda haldinn í Bændahöllinni í
Reykjavík. Hófst hann mánudaginn 10.
júlí kl. 9.10.
Formaður sambandsins, Gunnar Guð-
bjartsson, setti fund og bauð fundarmenn
velkomna. Minntist hann tveggja manna,
er nýlega höfðu látizt og báðir höfðu setið
á stéttasambandsfundum. Þeir voru:
Þórir Steinþórsson, fyrrverandi skóla-
stjóri í Reykholti, en hann sat stéttarsam-
bandsfundi 1957—1962.
Páll Diðriksson, bóndi á Búrfelli, en hann
var fulltrúi á stéttarsambandsfundum frá
árinu 1957 til dauðadags. Hann var einnig
í stjórn stéttarsambandsins frá árinu 1963.
Formaður gerði nokkra grein fyrir ævi-
störfum þessara manna, en síðan risu fund-
armenn úr sætum til að votta minningu
þeirra virðingu sína.
Formaður nefndi til fundarstjóra Bjarna
Halldórsson. Tók hann þá við fundarstjórn
og tilnefndi aðstoðarfundarstjóra Ólaf
Andrésson, en fundarritara Guðmund Inga
Kristjánsson og Þorstein Jóhannsson.
í kjörbréfanefnd voru skipaðir:
Sigurður J. Líndal, Sigsteinn Pálsson og
Hermann Guðmundsson á Blesastöðum.
Var þá gert fundarhlé, meðan nefndin
starfaði, en síðan gerði Sigurður J. Líndal
grein fyrir áliti hennar og lagði fram þessa
fulltrúaskrá:
380
F R E Y R