Freyr - 01.10.1972, Side 26
e. Borgarfirði, Mýrum, Snæfellsnesi og
Dölum, sýndu, að fóðurgildi hennar er ná-
lægt landsmeðaltali eða frá 1.82—1.96 kg í
F.E. Próteininnihald reyndist vera heldur
ofan við það, eða 77—83 g í kg heys. Fóður-
gildið er mun lægra nú en 1970 og sama
á sér stað með próteinið.
Töðusýni úr Borgarfirði urðu alls 21.
Meltanleiki töðunnar er 64.2%, sem jafn-
gildir 1.89 g heyi í F.E. og meltanlegt hrá-
prótein 83 g í kg heys. Fóðurgildi töðunnar
er jafnt landsmeðaltali, en próteinið lítið
eitt hærra.
í fyrra var taðan bezt úr Borgarfjarðar-
sýslu, með aðeins 1.65 kg í F.E. og 89 g
meltanlegt hráprótein í kg heys.
Úr Mýrasýslu komu 20 sýni, sem höfðu
66.2% meltanleika eða 1.82 kg í F.E. og 73
g meltanlegt prótein í kg.
Á Mið-Vesturlandi er taðan úr Mýra-
sýslu með hæst fóðurgildi en minnst pró-
teininnihald, sem er 4 g lægra en meðal-
talið yfir landið.
Af Snæfellsnesi bárust einnig 20 töðu-
sýni. Meltanleiki þeirra var 65.0%, fóður-
gildið 1.84 kg í F.E. og meltanlegt prótein
80 g í kg heys. Taðan af Snæfellsnesi er
heldur ofan við landsmeðaltal hvað fóður-
gildi og prótein snertir.
Að þessu sinni bárust aðeins 10 sýni úr
Dalasýslu, til rannsóknar. Fóðurgildi er
1.96 kg í F.E., en meltanlegt prótein 82 g
í kg heys.
Fóðurgildið er aðeins lakara en lands-
meðaltalið og lakast af Mið-Vesturlandi, en
meltanlegt prótein aðeins ofan við það.
Af Vestfjörðum voru efnagreind 60 töðu-
sýni, 26 úr Barðastrandasýslu, 24 úr ísa-
fjarðarsýslum og 10 úr Strandasýslu.
Taðan af þessu svæði er langbezt yfir
landið með meltanleikann 67.6% í Barða-
str., 67.2% í ísafjarðars. og 68.7% í Stranda-
sýslu. Jafngildir það fóðurgildinu 1.73, 1.76
og 1.67 kg af heyi í F.E. Meltanlegt prótein
mældist 83 g, 84 g og 91 g í kg heys. Lætur
nærri að fóðurgildi töðunnar í ár sé það
sama og 1970, en próteinið er örlítið lægra.
Úr Húnaþingi bárust 32 sýni til með-
ferðar, 16 sýni úr hvorri sýslu. Meltanleik-
inn var 64.5% í V.-Húnavatnssýslu og
62.3% í A-Húnavatnssýslu. Svarar það til
1.88 og 1.96 kg af töðu í F.E. Meltanlegt
prótein var ákvarðað 88 og 90 g í kg heys,
og er það aðeins lægra en síðastliðið ár,
en þá var það 90 og 95 g. Árið 1970 þurfti
aðeins 1.7—1.8 kg af heyi í F.E.
Ákvörðuð voru 17 sýni úr Skagafirði og
21 úr Eyjafirði. Fóðurgildi og prótein töð-
unnar í Skagafirði var það sama nú og
1970, eða 1.85 kg hey í F.E. og 82 g prótein
í kg heys.
í Eyjafirði er fóðurgildi töðunnar aðeins
betra í ár eða 1.81 kg í F.E., en 1.87 árið
1970. Meltanlegt prótein í Eyjafirði er nú
aðeins 73 g í kg heys, sem er fyrir neðan
landsmeðaltal, en 1970 var það 20 g hærra.
í S-Þingeyjarsýslu er taðan jöfn lands-
meðaltalinu að gæðum með 63.6% meltan-
leika og 1.89 kg í F.E.
N-Þingeyjarsýsla er með 66.6% meltan-
leika og 1.76 kg í F.E., sem er aðeins lakara
en á síðastliðnu ári. Meltanlegt hráprótein
er það sama í báðum sýslum, eða 73 g í
kg heys, sem er 20 g lægra en árið 1970.
Alls voru efnagreind 38 sýni úr Þingeyjar-
sýslum.
Af Austurlandi bárust 40 töðusýni, 19 úr
N-Múlasýslu og 21 úr S-Múlasýslu. Meltan-
leiki töðunnar reyndist 65.4% í N-Múla-
sýslu og 66.9% í S-Múlasýslu með fóður-
gildinu 1.82 og 1.76 kg í F.E.
í N-Múlasýslu er meltanlegt prótein 77
g í kg heys, sem er jafnt landsmeðaltalinu,
en í S-Múlasýslu aðeins 68 g. Próteininni-
hald töðunnar á Austurlandi er nú 10—17
g minna í kg heys en á síðastliðnu ári.
Úr A-Skaftafellssýslu voru enfnagreind
38 töðusýni, en 20 úr V-Skaftafellssýslu.
Meltanleiki og fóðurgildi töðunnar reyndizt
í báðum sýslum 63% sem svarar til 1.91 kg
í F.E. Fóðurgildi töðunnar í Skaftafells-
sýslum er aðeins lakara en í meðaltöðu yfir
landið og um 12% lakara en 1970.
Meltanlegt prótein er einnig undir með-
400
F R E Y R