Freyr - 01.10.1972, Page 21
Fundargerðin lesin upp og samþykkt.
Fundarstjórinn, Bjarni Halldórsson tók til
máls. Þakkaði hann fyrst Sigurði Snorra-
syni gott samstarf og mikið framlag á
Stéttarsambandsfundum. Minntist hann
einnig annarra starfa Sigurðar, þ. á. m.
fyrirmyndarbúskapar á miklu höfuðbóli.
Síðan þakkaði hann fundarmönnum góð
fundarstörf, og sagði fundi slitið.
Guðmundur Ingi Kristjánsson.
Þorsteinn Jóhannsson.
Tvær milljónir hæna.
Samvirke, norska tímaritið sem Fe’leskjöpet í Oslo
gefur út, segir frá því í 11. hefti í ár, að í Þýzka-
landi sé verið að reisa eggjabú, þar sem tvær
milljónir hæna verður framleiðslustofn. Þetta er
áformað í Niedersáchen. Þetta vekur bæði ugg og
ótta þar í landi. Deutschen Bauernverband (bún-
aðarfélagið) hefur snúið sér til landbúnaðarráðu-
neytisins í Hannóver og óskað, að það skipti sér
af málinu. Á það er bent, að þetta geti haft ó-
fyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir sö’umál bænda því
að hér er auðvitað um verksmiðjuframleiðslu að
ræða. í öðru iagi er auðsætt, að mengun lofts og
láðs er óumflýjanleg í nágrenninu, segir þar, og
hvað á að gera við öll hræin af þeim 20—25 þús-
undum hæna, sem drepast daglega? er spurt.
Frjóvgað egg
úr kú var flutt í aðra kú á búi einu við bæinn
Hull í Quebec í Kanada í ágúst í fyrra. Eggið
þróaðist hjá hinni nýju móður og óx eðli’ega og
kálfur fæddist, eðlilegur að öllu leyti, að því sem
bezt verður séð. Þetta er talinn vera fyrsti kálfur-
inn, sem til er orðinn á umræddan hátt.
Eggjastokkur kýrinnar geymir milli 50—100 þús-
und vísa til eggja, en hitt er sjaldgæft, að kýr
eignist meira en 10 kálfa.
Er því auðsætt, að miklir möguleikar eru á því
að frjóvga egg ákveðins afbragðs grips og flytja
frjóvguð egg hans yfir í aðrar „fóstrur" sem svo
þroska og fæða kálfinn, en arfbornir eiginleikar
hans stafa að sjálfsögðu frá foreldrum en ekki
fóstru.
Hið fullkomna fjós
Reynsla bœnda af básamott-
unum er nú orðin rúmlega 20
ára hér á landi. Engin fjós eru
góð án þeirra. Þcer borga sig
á '2 árum, hefur skagfirzkur
bóndi skrifað mér. Aðrir kostir
við þœr eru: stóraukinn þrifn-
aður og bcett líðan dýranna.
Slysahœtta er engin. Venjuleg
lengd er 135 cm.
Biörn Kristjánsson
Vesturgötu 3 — Reykjavík
Sími 13930
F R E Y R
395