Freyr - 01.10.1972, Page 18
Engilbert Ingvarsson ræddi um 6. gjalda-
lið og óskaði upplýsinga um störf blaða-
fulltrúa og greiðslu kostnaðar vegna þeirra.
Sæmundur Friðriksson svaraði þessu og
veitti skýringar.
Fjárhagsáætlunin var samþykkt sam-
hljóða.
Guðmundur Sverrisson hafði framsögu
fyrir fjárhagsnefnd um stækkun Bænda-
hallarinnar. Mælti hann fyrir þessari til-
lögu:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í
Reykjavík 10.—11. júlí 1972, ályktar að heimila
stjórn Bændahararinnar:
1. Að hefjast þegar handa um viðbyggingu á tveim-
ur hæðum austan Bændahallarinnar, er rúmi
samkomusal fyrir allt að 1000 manns, „kaffi-
teríu", brauðgerð og þvottahús.
2. Að reisa norðan Bændahallarinnar álmu með allt
að 100 gistiherbergjum. Heimild samkvæmt þess-
um tö’ulið er bundin sömu skilyrðum og sam-
þykki Búnaðarþings s. 1. vetur.
Greinargerð:
Um rökstuðning fyrir tillögu þessari vísast til
greinargerðar stjórnar Bændahallarinnar til Bún-
aðarþings og til afgreiðslu Búnaðarþings ó máli
þessu, sem sent var fulltrúum s. 1. vetur.“
Hermóður Guðmundsson andmælti til-
lögunni og stækkun Bændahallarinnar.
Hann lét einnig dreifa skriflegri álitsgerð
um málið meðal fundarmanna.
Stefán Valgeirsson ræddi um kostnaðinn
við stækkun hallarinnar. Hann mótmælti
því, að málið yrði afgreitt á þessum fundi,
en taldi rétt að vísa því til afgreiðslu meðal
bænda landsins.
Sæmundur Friðriksson skýrði frá nokkr-
um fjárhagsatriðum varðandi málið.
Gunnar Guðbjartsson lýsti byggingará-
ætlunum vegna stækkunar Bændahallar-
innar og kvaðst álíta, að þessi framkvæmd
yrði bændastéttinni hagfelld í framtíðinni.
Skjöldur Eiríksson lýsti vantrú á fram-
kvæmdinni og mælti gegn tillögunni.
Halldór Jónsson tók í sama streng.
Sigurður Líndal lýst fylgi við tillöguna.
Þórður Pálsson átaldi, að málið skyldi
ekki hafa verið lagt fyrir bændur almennt
og andmælti tillögunni.
Ingimundur Ásgeirsson talaði gegn til-
lögunni.
Sigsteinn Pálsson sagði, að samþykkt
hefði verið í Búnaðarsambandi Kjalarnes-
þings, að heimila stækkun Bændahallar-
innar, en kvaðst sjálfur vera því andvígur.
En vegna samþykktar búnaðarsambandsins
mundi hann sitja hjá við atkvæðagreiðslu.
Erlendur Árnason taldi málið of illa
undirbúið til þess að hann gæti greitt til-
lögunni atkvæði.
Hermann Guðmundsson á Blesastöðum
mælti gegn því, að málinu yrði vísað heim
í búnaðarfélögin, en studdi tillöguna.
Hermóður Guðmundsson varaði mjög við
að leggja í þá áhættu að stækka Bænda-
höllina. Þá lýsti hann dagskrártillögu, sem
hann sagði að myndi koma fram til að vísa
málinu frá.
Guðm. Ingi Kristjánsson vakti athygli á,
að tillaga nefndarinnar væri í tveimur lið-
um og eðlilegt að bera hana undir atkvæði
í tvennu lagi. Lagði hann sérstaklega á-
herzlu á að fyrri töluliður tillögunnar yrði
samþykktur.
Benedikt Guðmundsson talaði gegn til-
löginni, en Ingi Tryggvason mælti með
samþykkt hennar.
Ingimundur Ásgeirsson gagnrýndi bygg-
ingaráætlanir, en Sigurður Jónsson studdi
tillöguna.
Magnús Guðmundsson spurði, hvort skil-
yrði þau, sem sett væru í 2. lið fyrir stækk-
uninni, ættu einnig við fyrri hluta tillög-
unnar.
Lárus Sigurðsson sagði, að á aðalfundi
Búnaðarsambands Austur-Húnvetninga
hefði verið samþykktur stuðningur við
stækkun Bændahallarinnar með þeim skil-
yrðum, sem sett voru á Búnaðarþingi. Vildi
hann, að þau skilyrði fylgdu báðum liðum
tillögunnar og lagði til, að tekið væri fund-
arhlé til að freista að ná samkomulagi um
málið.
Stefán Valgeirsson lagðist gegn tillög-
392
F R E Y R