Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1972, Blaðsíða 9

Freyr - 01.10.1972, Blaðsíða 9
inni jöfnun á heildsöluverði rafmagns. Lán til landbúnaðar hafa hækkað verulega, t. d. hafa íbúðarlán hækkað í 600 þúsund krónur og jarðakaupalán í 500 þúsund krón- ur með aðstoð Lífeyrissjóðs bænda. Formaður gerði síðan grein fyrir ýmsum öðrum málum, sem stjórnin hafði til með- ferðar. Ræddi hann um endurbyggingu sláturhúsa, fjárhagsaðstoð við nemendur úr dreifbýli, sem stunda skólanám fjarri heim- ili sínu, landverndarmál, rafvæðingu sveit- anna, breytingar á lögum um Lífeyrissjóð bænda, skuldamál bænda og enn fleiri mál. Hann gat þess, að 2 búnaðarsambönd hefðu keypt Taarup heyþurrkunarverksmiðjur og Stéttarsambandið lánað 3 milljónir króna til þeirra kaupa, gegn því að gerðar verði nákvæmar athuganir á kostnaði og kostum þessarar heyverkunar. Þá ræddi formaður meðferð Alþingis á frumvarpi til Framleiðsluráðslaga og á- stæður þess, að frumvarpið varð ekki af- greitt. Síðan tók hann til meðferðar fram- leiðslu búvara og sölumál. Mjólkurfram- leiðslan jókst um 4,6%, en kjötframleiðsla varð nokkru minni en árið áður. Salan gekk vel og fór vaxandi innanlands, allra mest þó smjörsalan. Uppskera garðávaxta varð meiri en verið hefur um langt skeið. Á síðasta verðlagsári voru útflutnings- bætur notaðar svo til að fullu eins og lög heimila, en á þessu ári eru horfur á veru- legum afgangi vegna minni útflutnings á kjöti og hærra verðs á erlendum mörkuð- um. Niðurgreiðslufé á innlendum markaði er mun meira en áður vegna stóraukinnar sölu, þrátt fyrir lækkun niðurgreiðslna á mörgum vörutegundum. Enn fjallaði formaður um verðlagsmál og verðlagsgrundvöll búvara og breytingar á honum. Hann hafði nú fengið framreikn- aðan verðlagsgrundvöll til bráðabirgða frá Hagstofu íslands. Sýndi sá framreikningur hækkun á verðlagsgrundvelli frá júní s. 1. 5,7%, en frá fyrra ári 24,45%. Stjórn sambandsins ákvað að segja upp verðlagsgrundvellinum frá 1. sept. n. k. og bjóst við nýjum samningum á grundvelli nýrra Framleiðsluráðslaga. Nú náðu þau ekki fram að ganga og einnig eru uppi ráðagerðir hjá ríkisstjórn um tímabundna verðstöðvun. Kemur sá tími ekki vel við bændur, þegar þeir eiga ósamið til tveggja ára, en aðrar stéttir hafa náð umtalsverð- um kjarabótum með tveggja ára samning- um. Þegar skýrslu formanns lauk, var land- búnaðarráðherrann, Halldór E. Sigurðsson, kominn á fund, og bauð fundarstjóri hann sérstaklega velkominn. 2. Reikningar. Sæmundur Friðriksson, framkvæmdastjóri las upp og lagði fram reikninga Stéttar- sambands bænda árið 1971. Tekjur voru samtals......kr. 9.364.002,70 þar af frá Búnaðarmálasj. — 7.099.017,50 en hitt voru vextir Reksturskostnaður varð . . — 3.053.833,90 og tekjuafgangur ........— 6.310.168,80 Eignir sambandsins voru alls í árslok............— 66.098.255,10 þar af í Bændahöllinni .. — 48.138.356,00 Framkvæmdastjórinn gerði einnig grein fyrir reikningum Bændahallarinnar árið 1971, en þeir sýndu tekjuafgang kr. 4.614.286,56 og voru áður afskrifaðar í fyrningu, kr. 6.363.606,40. Tekjur af rekstri Hótel Sögu voru kr. 19.568.779,80 en alls voru tekjurnar kr. 23.217.498,80. Reikningar Stéttarsambandsins og Bændahallarinnar höfðu verið endurskoð- aðir án athugasemda, en annar endurskoð- andi Bændahallarreikninganna, Ingimund- ur Ásgeirsson, benti á, að engir vextir væru reiknaðir af framlögum Búnaðarfé- lags íslands og Stéttarsambandsins til hallarinnar. 3. Ræða landbúnaðarráðherra. Halldór E. Sigurðsson, landbúnaðarráð- herra flutti ræðu um landbúnaðarmál. Gerði hann fyrst grein fyrir störfum síð- F R E Y R 383

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.