Freyr - 01.10.1972, Side 11
lega fjallað um á vegum sambandsins.
Vitnaði hann fyrst til greinargerðar um
tryggingamál landbúnaðarins og vakti at-
hygli á gildi frjálsra ábyrgðartrygginga og
á slysatryggingum. Þá ræddi hann fisk-
ræktarmál en síðan frumvarp til jarðalaga,
sem lagt verður fram á fundinum til að
leita eftir gagnrýni og nýjum sjónarmið-
um. Hann skýrði nokkuð nýmæli frum-
varpsins og gerði grein fyrir lögum annarra
Norðurlanda um sama efni.
Erindrekinn vék að starfi þeirrar nefnd-
ar, sem fjallar um erfiðar fjárhagsástæður
einstakra bænda. Til nefndarinnar leituðu
278 bændur með ósk um aðstoð og hefur
verið reynt að leysa vanda þeirra. Jarð-
eignasjóður hefur keypt af þeim 13 jarðir,
og margir bændur hafa fengið lausaskuld-
um breytt í föst lán, afborganafrest í 5 ár
og hluta af vöxtum greidda af ríkisfé.
Nokkrir bændur hafa þó ekki enn fengið
úrlausn.
Ræðumaður hvatti bændur til að leita
eftir tillögum ráðunauta um framkvæmdir
á jörðum sínum til að tryggja arðbærar og
hagkvæmar framkvæmdir.
Að lokinni skýrslu erindrekans var gefið
fundarhlé til miðdegisverðar kl. 12.
Kl. 13.25 hófst fundur að nýju.
5. Umræður.
Þá fóru fram umræður um skýrslur og
reikninga. Hermóður Guðmundsson tók til
máls. Ræddi hann um þann ágreining, sem
orðið hefði meðal bænda og stéttarsam-
bandsfulltrúa um einstök atriði í frumvarp-
inu um Framleiðsluráð o. fl.
Þá minntist hann á stækkun Bændahall-
arinnar, sem verið hefur til umræðu og
lagði til að því máli yrði vísað frá þessum
fundi. Óskaði hann eftir skýrari reksturs-
reikningi Hótel Sögu. Því næst ræddi hann
nokkuð kjaramál bænda.
Að lokum spurði Hermóður, hvort
Bændahallarmálið yrði lagt fyrir þennan
fund og á hvern hátt. Fundarstjóri svaraði
því, að stækkun hallarinnar yrði lögð fyrir
nefnd á þessum fundi, svo sem önnur fund-
armál.
Fundarstjóri lýsti því og yfir, að þegar
umræðum lyki um skýrslur og reikninga,
yrði fundinum lokað og yrði hann lokaður
fundur eftir það.
6. Nefndakosningar.
Fundarstjóri las upp og lagði fram tillögur
stjórnarinnar um skipan manna í starfs-
nefndir fundarins. Voru þær allar sam-
þykktar. Urðu nefndir þannig skipaðar:
Laganefnd:
Karl Magnússon, Ingi Tryggvason, Sig-
steinn Pálsson, Ingimundur Ásgeirsson,
Björn Gunnlaugsson, Össur Guðbjartsson,
Hermann Guðmundsson, Blesastöðum.
Verðlagsnefnd:
Júlíus Jónsson, Jóhann Pétursson, Bene-
dikt Guðmundsson, Sigurður Jónsson, Er-
lendur Árnason, Sigurður Snorrason, Stef-
án Valgeirsson, Kristinn Bergsveinsson,
Hermóður Guðmundsson, Sveinn Jónsson,
Magnús Guðmundsson.
Framleidslunefnd:
Skjöldur Eiríksson, Pétur Sigurðsson,
Grímur Benediktsson, Sigurjón Sigurðsson,
Sigurður J. Líndal, Lárus Sigurðsson,
Engilbert Ingvarsson, Sigurður Þórólfsson.
Fjárhagsnefnd:
Jósep Rósinkarsson, Þorsteinn Geirsson,
Grímur Arnórsson, Guðmundur Sverrisson.
Allsherjarnefnd:
Jón Helgason, Bjarni Hákonarson, Gunn-
laugur Finnsson, Einar Halldórsson, Hjört-
ur Sturlaugsson, Jón Kr. Magnússon, Her-
mann Guðmundsson, Eyjólfsstöðum, Þórð-
ur Pálsson, Halldór Jónsson, Jón Hjálm-
arsson, Grímur Jónsson.
F R E Y R
385