Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1972, Page 20

Freyr - 01.10.1972, Page 20
Jónsson, Erlendur Árnason, Magnús Guð- mundsson = 14. 4 greiddu ekki atkvæði: Jóhann Péturs- son, Kristinn Bergsveinsson, Jón Hjálm- arsson, Sigsteinn Pálsson. Fyrri hluti tillögunnar samþykktur með 26 : 14 atkv. Þá var 2. töluliður borinn undir atkvæði. Já sögðu: Guðmundur Sverrisson, Gunn- ar Guðbjartsson, Sigurður Þórólfsson, Grímur Arnórsson, Kristinn Bergsveinsson, Guðmundur Ingi Kristjánsson, Gunnlaugur Finnsson, Engilbert Ingvarsson, Hjörtur Sturlaugsson, Grímur Benediktsson, Jósep Rósinkarsson, Sigurður Líndal, Bjarni Halldórsson, Björn Gunnlaugsson, Ingi Tryggvason, Grímur Jónsson, Sigurður Jónsson, Hermann Guðmundsson, Eyjólfs- stöðum, Þorsteinn Geirsson, Þorsteinn Jó- hannsson, Júlíus Jónsson, Pétur Sigurðs- son, Einar Halldórsson, Sigurjón Sigurðs- son, Ólafur Andrésson = 25. Nei sögðu: Ingimundur Ásgeirsson, Jón Kr. Magnússon, Sigurður Snorrason, Össur Guðbjartsson, Benedikt Guðmundsson, Lárus Sigurðsson, Halldór Jónsson, Jón Hjálmarsson, Stefán Valgeirsson, Hermóð- ur Guðmundsson, Skjöldur Eiríksson, Þórð- ur Pálsson, Sveinn Jónsson, Erlendur Árnason, Magnús Guðmundsson = 15. 4 greiddu ekki atkvæði: Jóhann Péturs- son, Jón Helgason, Hermann Guðmundsson, Blesastöðum og Sigsteinn Pálsson. Síðari hluti tillögunnar samþ. með 25 : 15 atk. Þá lagði Grímur Arnórsson fram þessa yfirlýsingu fjárhagsnefndar: „Nefndin telur til’ögu Skjaldar Eiríkssonar, Her- móðs Guðmundssonar og Sveins Jónssonar um út- reikning á stofnframlagi bænda í Bændahöllina ó- framkvæmanlega og getur ekki mælt með sam- þykkt hennar.“ Umrædd tillaga var á þessa leið: „Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í Bændahöllinni 10. til 11. júlí 1972, felur stjórn Stéttarsambands bænda að láta reikna, hvert stofn- fjármagn bænda er í Bændahöllinni. Skal eignarhlutur hvers bónda skráður á nafn hans í réttu hlutfalli við framlög hans. Skal við þann útreikning umreikna framlögin í samræmi við verðgildi peninga á hverjum tíma ásamt með vöxtum og vaxtavöxtum. Telur fundurinn það skýlausan rétt bænda, að þeim verði greiddir venjulegir útlánsvextir af stofnfjármagni sínu í Bændahöllinni ár hvert.“ Flutningsmenn tillögunnar óskuðu at- kvæðagreiðslu um tillögu sína og var hún borin undir atkvæði og felld með 28 : 7 atkvæðum. Fundarstjóri lýsti þá yfir, að fundarstörf- um væri lokið. Formaður Stéttarsambandsins, Gunnar Guðbjartsson þakkaði fundarmönnum mik- inn áhuga á málefnum fundarins og vel unnin störf á fundinum. Hermóður Guðmundsson kvaðst óska stjórn sambandsins til hamingju með sig- urinn í Bændahallarmálinu, en minnti hana á þá miklu ábyrgð, sem hún tæki á sig með ákvörðun slíkra framkvæmda. Sigurður Snorrason kvaddi sér hljóðs. Minnti hann á það, að hann hefði setið á stofnfundi Stéttarsambandsins og síðan alla fundi þess nema einn, en myndi ekki gefa kost á sér framar sökum aldurs. Væri sér nú þakklæti efst í huga til allra þeirra góðu manna, sem hann hefði kynnzt og starfað með í Stéttarsambandinu. Hefðu það verið svo vel gerðir menn, að sómi væri að, hvar sem væri. Óskaði hann þeim og Stéttarsambandinu allra heilla. Guðmundur Sverrisson þakkaði Sigurði góð kynni og mikil störf, bæði í Stéttar- sambandi og heima í héraði. Skjöldur Eiríksson kvaðst vilja kveðja Stéttarsambandsmenn, þar sem hann væri hættur búskap og byggist ekki við að koma þar á fleiri fundi Þakkaði hann samstarfið og góð kynni. Guðm. Ingi þakkaði Sigurði Snorrasyni langt samstarf á stéttarsambandsfundum og lauk lofsorði á staðfestu hans,dreng- lyndi og heilindi. 894 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.