Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1972, Page 24

Freyr - 01.10.1972, Page 24
SIGURJÓN J. BLÁFELD: NÆRINGARGILDI OG EFNAINNIHALD TÖÐUNNAR 1971 1. Fyrri rannsóknir Síðastliðin fimm ár hefur Rannsóknastofn- un landbúnaðarins í samvinnu við Búnað- arfélag íslands, annazt skipulagðar rann- sóknir á næringar- og efnainnihaldi í ís- lenzkri töðu. Haustið 1967 voru rúmlega 100 töðusýni tekin til meðferðar víðsvegar að af landinu. Síðan hafa árlega verið ákvörðuð um 20 töðusýni úr hverri sýslu landsins, sem hér- aðsráðunautar hafa séð um töku á. 2. Rannsóknir töðusýna 1971 Söfnun töðusýnanna og upplýsingum um þau var háttað svipað og undanfarin haust, nema hvað ný eyðublöð voru tekin í notk- un, til að auðvelda söfnun og úrvinnslu gagna. Viðunandi upplýsingar höfðu 396 sýni sem tekin voru til uppgjörs. Að þessu sinni voru öll töðusýnin af fullverkaðri töðu úr hlöðum. Fóðurgildi, prótein- og steinefnainnihald töðunnar var ákvarðað hér við stofnunina, ásamt greiningu í grastegundir. Tölva Reiknistofnunar Háskólans var notuð við útskrift og umreikninga á niðurstöðum efnagreininga. Búnaðarfélag íslands, héraðsráðunautar og dýralæknar, fengu síðan niðurstöðurnar til leiðbeininga. Haldið var áfram með þá nýjung að til- kynna prótein- og steinefni í grömmum í kg heys, eins og byrjað var á síðastliðið haust. 3. Meltanleiki, fóðurgildi og prótein í töðunni 1971 Meltanleiki og fóðurgildi töðunnar 1971 er heldur lakara en árið 1970, en samt betra en í meðalárferði. Próteininnihald töðunnar er aftur á móti það lægsta, sem mælst hefur síðan þessar rannsóknir hófust. Að meðaltali yfir landið var meltanleiki töðunnar 64.7% og þarf því 1.89 kg í F.E., sem er um 6% meira en 1970. Meltanlegt hráprótein er aðeins 77 g í kg heys. Tafla I. sýnir fóðurgildi og efnainnihald töðunnar í sýslum landsins ásamt notkun tilbúins áburðar á hektara. Úr Kjósarsýslu voru efnagreind 18 töðu- sýni, sem höfðu að meðaltali 62.4% meltan- leika, sem svarar til 1.97 kg af heyi í F.E. Meltanlegt hráprótein var ákvarðað 77 g, í kg heys. Taðan úr Kjósarsýslu er því að- eins lakari en landsmeðaltalið hvað fóður- gildi varðar, en próteinið er það sama. Rannsóknir á töðu af Mið-Vesturlandi þ. 398 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.