Freyr - 01.10.1972, Side 39
73úfe ocj p)ö u/l
tqóq - tfjjt
Skýrsluhald yfir búfé og fóður hefur verið
gert einfaldara en áður var með því að
Hagstofa íslands og Forðagæzlan hafa
gert eyðublöð, sem forðagæzlumenn hrepp-
anna færa og þegar þeim hefur verið safnað
getur úrvinnsla farið fram á nefndum
tveim stöðum. Skýrslurnar eiga að vera
komnar til Forðagæzlunnar fyrir áramót,
en skoðun og talning á lögum samkvæmt
að fara fram snemma vetrar. Á þessu hafa
verið nokkur vanhöld, en yfirleitt eru það
fáir forðagæzlumenn sem draga það veru-
lega fram yfir nýár að fullgera skýrslurnar
og senda þær til úrvinnslu.
Af tölunum má að þessu sinni lesa, að
nautpeningi hefur fjölgað mjög mikið á
árinu 1971 eða um nærri 6.000 frá því, er
verið hafði undanfarin 2 ár. Var það ung-
viði, sem sett var á vetur í hópum að þessu
sinni, því að eftir sumarið 1971 voru hey
miklu meiri en næstliðin 2 ár, eða allt að
þriðjungs aukningu var um að ræða.
Sauðfé var hinsvegar litlu fleira 1971 en
1969 á öllu landinu og hafði aðeins fjölgað
um 6000 á þessu skeiði en um 50 þúsund
frá árinu 1970. Hrossum hafði fjölgað lítils-
háttar.
Um fóðrið er að segja, að það er talið í
m3 en það segir auðvitað ekki alla sögu
um magnið því að gæðin eru sjálfsagt
nokkuð breytileg frá ári til árs. Þó mun
gæðamunur ekki hafa verið verulegur frá
árinu áður, en magneiningafjöldi var mikill
þegar talið er í rúmmetrum. Magn votheys
var svo að segja óbreytt frá árinu áður
(1970) en útheysmagn tæplega 2/5 1971 á
við það er fékkst 1970.
Ef við gerum ráð fyrir, að í hverjum m3
Framh. á hls. 416.
KOMTÐ- HRINCTÐ-3NRTFTÐ
FÓLKSBÍLAR
★
VÖRUBÍLAR
★
BÚVÉLAR
★
VINNUVÉLAR
★
Viljið þér selja, kaupa e3a skipfa á bílum, búvélum
eða vinnuvélum? Hafið þó samband — við munum
aðstoða.
BÍLASALAN
BORGARTÚNI 1
SÍMAfí
19615
18035
mmmw
F R E Y R
413